Réttur - 01.01.1980, Side 46
Löngum síðan hafa morg ungmennafé-
lög öðru hverju samþykkt andmæli eða
viðvaranir vegna dvalar erlends hers í
landinu.
Annar aðili, sem stundum hefur haft í
frammi kröftug mótmæli gegn herstöðv-
um á landinu, er verkalýðshreyfingin
eða Alþýðusamband íslands. Þetta á þó
einkum við árin 1945—46 og að nokkru
leyti árið 1949 eins og nánar mun að
vikið.
Þriðji aðilinn og sá sem hvað lengst
hefur gustað um eru stúdenlar við Hd-
skóla íslcmds. í Stúdentablaði 1. desem-
ber 1940 og 1941 er þegar tekið mjög í
sama streng og Ungmennafélag íslands,
en síðan hafa skipst á hæðir og lægðir
eftir því hvernig meirihluti Stúdentaráðs
var skipaður hverju sinni. En hefðbundin
ráð stúdenta yfir fullveldisdeginum 1.
desember hafa orðið þess valdandi, að
átökin um þetta mál hafa nær alltaf sett
svip sinn á daginn og gert þau að árviss-
um atburði.
Önnur baráttusamtök hafa flest verið
líkt og lótusblóm, sem lifnuðu og dóu, en
aldrei leið á löngu þar til annað spratt
upp, ef eitt lagðist í dá.
Her„vernd“ Bandaríkjanna 1941
7. júlí 1941 tóku Bandaríkin við yfir-
herstjórn á íslandi af Bretum. Þetta var
liður í langtímaáætlun þeirra um yfirráð
á vesturhveli jarðar, og haustið 1940
hafði stjórn Bandaríkjanna tilkynnt, að
varnarlína þeirra lægi lyrir austan ísland.
Nauðugir urðu Bretar að láta ísland af
hendi, en um þetta leyti stóðu þeir mjög
höllum fæti í styrjöldinni og urðu að
46
kaupa aukna aðstoð Bandaríkjanna dýru
verði.
Hér var þó sá munur á, að íslenska
ríkisstjórnin var jrvinguð til að óslm eftir
vernd Bandaríkjanna. Þau voru vita-
skuld of vammlaus til að hernema okk-
ur, enda ekki enn orðin beinn styrjald-
araðili. Ekki er enn með öllu Ijóst, hvaða
þvingunum var beitt, en viðskiptahags-
munir voru vafalítið þungir á metunum.
Þá skuldbundu Bandaríkin sig til að
hverfa burt með allan heralla sinn „undir
eins og núverandi ófriði er lokið“, eins-
og stóð í tilkynningu íslensku ríkisstjórn-
arinnar. En í tilkynningu Bandaríkjafor-
seta sama dag stóð hinsvegar „undir eins
og núverandi hœttuástandi i milliríkja-
viðskiptum er lokið.4)
Það verður naumast hjá því komist að
greina frá viðbrögðum sumra Sjálfstæð-
ismanna af garnla skólanum, þegar álykt-
unin um herverndina var lögð fyrir Al-
þingi 9. júlí. Þar er bæði vikið að hótun-
um herveldanna, og auk þess er áhuga-
vert að sjá, hvernig jressir menn hugsuðu
þá enn um sjálfstæði og hlutleysi.
Gísli Sveinsson:
„Það er víst, að engin ríkisstjórn, sem
hefur sér að baki einhuga Aljringi og að
því er vitað er einhuga þjóð um þetta atr-
iði, að halda fast við hlutleysið, mundi
ótilneydd gera þetta. Þess vegna er það
alveg gefið, þó að Jrað liafi ekki komið
l'ram frá ríkisstjórninni, og það er nú í
hugum háttvirtra þingmanna, eins og
Jrað er nú í hugum Jijóðarinnar, að hæst-
virt ríkisstjórn hafi verið til neydd að
gera þetta. — Ég býst við, að Jrað sam-
komulag, sem hér er lagt fyrir hæstvirt
Aljúngi, verði að samjrykkja gegn sam-
vizkunnar mótmælum."
Á