Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 59
INNLEND BlgMi ■
VÍÐSJÁ ■lllM 1
Enn um farandverkafólk
í grein Tryggva Þórs Aðalsteinssonar
hér í Rétti um farandverkafólk er rakið
nokkuð það sem gerst hefur á undan-
förnum mánuðum meðal farandverka-
fólks frá því það reis upp og mótmælti
kjörum sínum í Vestmannaeyjum á síð-
astliðnu sumri, eins og mörgunr er í
fersku minni.
Nú allra síðustu vikurnar hafa málefni
farandverkafólks enn verið í sviðsljósi
frétta og umræðna, og það ekki að
ástæðulausu.
Suður í Grindavík konr til átaka nú í
marsmánuði á milli farandverkafólks,
sem unnið hefur hjá Hraðfrystihúsi Þór-
kötlustaða h.f. og atvinnurekandans þar.
Erlendar stúlkur, sem þar hafa verið í
vinnu frá í haust sáu sig tilneyddar til að
yfirgefa staðinn ásamt fleirum og ráða
sig í vinnu annars staðar. Fyrir nrilli-
göngu Baráttuhóps farandverkafólks
fengu erlendu stúlkurnar vinnu á Suður-
eyri, en þar hefur verið búið all miklu
betur að verkafólki, en víða annars stað-
ar. í Grindavík gekk svo langt að at-
vinnurekendur siguðu lögreglu á farand-
verkafólkið, þar senr það að kvöldlagi
lrélt kveðjuhóf, áður en það yfirgaf pláss-
ið. Þetta gerðist þrátt fyrir að samkvæm-
ið færi friðsamlega franr í alla staði.
Aðbúnaðarmálin komust enn á ný dag-
skrá af þessu tilefni og í Þjóðviljanum
var m.a. bent á stórlrættulegan frágang
á rafmagni í verbúð Þórkötlustaða h.f.
Rafmagnseftirlitsmenn, heilbrigðisfull-
trúi og fulltrúi frá Öryggiseftirliti ríkis-
ins komu á vettvang og kröfuðust úrbóta.
í sölunr Alþingis voru mál fararrd-
verkafólks til umræðu og upplýsti félags-
málaráðherra, Svavar Gestsson, að hann
hefði skipað nefnd til að kanna og gera
tillögur unr úrbætur farandverkafólki til
handa, bæði erlendu og innlendu.
Af þessu má sjá að baráttu farand-
verkafólks þokar franr á við. Þó ekki sé
langt síðan fyrst var vakin atlrygli á þessu
lrefur all nokkuð áunnist.
59