Réttur - 01.01.1981, Blaðsíða 1
64. árgangur
1981 — 1. hefti
Vér íslendingar stöndum nú sem mannkynið gjörvallt frammi fyrir
þeim tveim ólíkustu og andstæðustu kostum, sem mannkynið
nokkru sinni hefur átt um að velja: annarsvegar róttækustu tækni-
byltingu sögunnar, er gert gæti land vort — og smámsaman gervalla
jörð — að þeim unaðsreit skapandi vinnu og menningarlífs, er skáld-
in forðum sáu í fegurstu draumsýnum, enda sé þá þjóðfélaginu
stjórnað af viti og réttlæti, — og hinsvegar þess að þurrka út þjóó
vora og máske mannlífið allt á jörðinni í eldi atomstríös, af því ríkustu
valdhafar jaröar valdi þeim vítiseldi, er slíkt ódæði geti unnió, en ráði
ekki viö eigin lesti valdagirndar og ofstækis.
Við íslendingar getum nú aflétt þeim þrældómi langs vinnutíma,
sem yfirstéttin meó óstjórn sinni á atvinnullfinu og sífelidum gengis-
lækkunum og veróbólgu hefur valdið alþýðu manna. Við getum í
krafti tölvuvæðingar og annarra gerbyltinga I krafti orku auðlinda
vorra, hagnýttra í eigin þágu, skapað hér mannsæmandi líf meö
„gullöld frístunda” og glæsilegs menningarlífs, ef alþýðan sjálf, póli-
tískt einhuga, stjórnar þjóófélagi voru af viti og réttlæti, en hagnýtir
um leiö þekkingu og atorku bestu vísindamanna vorra og víðsýnustu
atvinnurekenda.
En smásálarháttur kramarans og hrossaprangsmáti kjördæma-
braskara liggur sem mara á hugum þeirra manna, sem þjóðin hefur