Réttur


Réttur - 01.01.1981, Blaðsíða 30

Réttur - 01.01.1981, Blaðsíða 30
kostnaðar sem launþegi kann að þurfa að leggja í, vegna innheimtu- aðgerða hans á hendur launagreið- anda. 6. Lögskráning sjómanna Með lögum nr. 44/1980 er gerð sú breyting á lögskráningu sjómanna að útgerðarmaður skal með skriflegri tilkynningu eða á annan hátt láta skipverja vita um lögskráningu og afskráningu, ef hann er ekki við- staddur hana. Ber útgerðarmanni samkvæmt nýju lögunum að sanna að skipverja hafi verið tilkynnt um lögskráningu úr skipsrúmi, ef um er deilt. Ef skipverja hefur eigi borist vitneskja um lögskráningu úr skips- rúmi á réttum tíma, er honum heim- ilt að véfengja gildi hennar með því að bera upp andmæli við lögskrán- ingarstjóra. 7. Laun sjómanna í veikinda- og slysatilfellum Með lögum nr. 49/1980 er gerð breyting á 18. gr. sjómannalaganna og réttur sjómanna til launa í veik- inda- og slysatilvikum aukinn veru- lega. Samkvæmt lögunum á skipverji nú rétt á óskertum launum í allt að tvo mánuði fyrstu tvö starfsárin. Hafi skipverji verið ráðinn á sama skip eða hjá sama útgerðarmanni í tvö ár, eykst réttur þessi um einn mánuð og um tvo mánuði ef um fjögurra ára samfellda ráðningu er að ræða hjá sama útgerðarmanni. Þessi heildar- réttur í fjóra mánuði eftir fjögur starfsár kemur í stað réttar til tveggja mánaða ef um yfirmann var að ræða en eins mánaðar ef um undirmann var að ræða. 8. B.S.R.B. — B.H.M. Með bráðabirgðalögum nr. 68/ 1980 eru gerðar ýmsar lagfæringar á lögum um kjarasamninga BSRB. Þar er m.a. ákveðið að lögin skuli taka til starfsmanna sjálfseignarstofnana, sem starfa í almannaþágu og njóta fjárframlaga til launagreiðslna úr ríkissjóði eða af daggjöldum. Einnig er þar ákveðið að kjarasamningar skuli vera skriflegir og um lengd þeirra samið í aðalkjarasamningi. Áður var lengd kjarasamninga bund- in í lögum. Með lögunum er einnig opinberum starfsmönnum tryggðar atvinnuleysisbætur sambærilegar við annað launafólk. Með bráðabirgða- lögum nr. 69/1980 er félögum BHM tryggður réttur til atvinnuleysisbóta með sambærilegum hætti. 9. Skráning lífeyrisréttinda Með lögum nr. 91/1980, um skráningu lífeyrisréttinda er boðið að 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.