Réttur - 01.01.1981, Blaðsíða 59
Nýnasisminn í V-Þýskalandi
Karl Dönitz, sem hafði verið yfirmað-
ur þýska flotans í síðasta stríði — og sem
slíkur líka ábyrgur fyrir morðum nasista-
kafbátanna á íslensum sjómönnum, —
dó um síðustu áramót 88 ára og var jarð-
aður 6. janúar. Við jarðarförina var sem
gamli nasisminn væri risinn upp á ný.
Hakakrossarnir blöstu við, kransar birt-
ust frá morðsveitum ,,Waffen-SS”, fyrr-
verandi foringjar Nato-hers báru mikið
lof á Dönitz við gröfina, nýnasistar lýstu
hann þar sem hinn „löglega forseta
þýska ríkisins’ allt til dauðans. (Hann
var látinn taka við af Hitler, er hann
skaut sig.)
Það var greinilegt á þeim þúsundum,
sem þarna komu saman í Aumuhle, að
það var verið að nota tækifærið til að
sýna að nasisminn væri enn við lýði í
Vestur-Þýskalandi. Og samtímis var svo
sýnt og sannað að gamla Gyðingahatrið,
— sem leiddi til glæpaverkanna í Aus-
witz og víðar, gasofnanna og annara
kvalastaða, þar sem 6 miljónir Gyðinga
voru myrt, — gengi enn ljósum logum í
V estur-Þýskalandi.
Á legsteina Gyðinga í kirkjugarðinum
í Frankfurt am Main var hakakrossinn
málaður.
Hakakrossar málaðir á legsteina Gyðinga
Nýnasistarnir virðast vera að fá vold-
ugan bandamann þar sem hinn nýi
Bandaríkjaforseti er, sem tekur upp
höfuð-kjörorð Hitlers: Stríð gegn heims-
kommúnismanum.
Kjörorð nýnasistanna er: „Hitler
hvarf brott frá hálfnuðu verki”.
59