Réttur


Réttur - 01.01.1981, Blaðsíða 41

Réttur - 01.01.1981, Blaðsíða 41
með hærri sköttum, hærri vöxtum og meiri verðbólgu”. Kaninn er farinn að kvarta undan byrðunum, er hann leggur á! Hann vill að Nato-þjóðir Evrópu taki meir á sínar herðar. En sumir sérfræðingar Yestur-Evrópu óttast tvöföldun atvinnuleysisins þar á næstu fimm árum — og amerísku hring- arnir eru farnir að undirbjóða þar með vörum sínum og valda harðvítugustu árekstrum. Ef íslenskir valdhafar fengjust til að hugsa raunsætt, þá myndu þeir reyna að tryggja íslenskt atvinnulíf gegn afleiðing- um kreppunnar, með því að reyna að ná vaxandi viðskiptum við sósíalistisku löndin. Hjá þeim hefur framleiðslan vax- ið á sama tíma, sem hún féll í Efnahags- bandalagslöndunum hlutfallslega við heimsframleiðslu (t.d. stál úr 26,2% 1970 í 29,2% 1979, — olía úr 16,2% í 19,1% 1979, — og þannig mætti lengi telja). En hjá skammsýnum valdhöfum hér virðist helst áhugi fyrir að draga úr viðskiptum, t.d. minnka olíuinnflutning frá Sovétríkjunum og fá verri og dýrari olíu frá Bretum í staðinn. En möguleik- inn til stóraukningar islenskra iðnaðar- vara er ekki notaður, — við keyptum þó 30% alls íslensks innflutnings frá sósíal- ísku löndunum 1958.1 Það er vitanlegt hvað afturhaldið á ís- landi hugsar sér í þessum efnum: Það ætlar að láta auðvaldskreppuna dynja yfir ísland og hefja í skjóli hennar þá fyrrum boðuðu „leiftursókn” gegn al- þýðu er mistókst 1979: með gífurlegu at- vinnuleysi, vægðarlausum kauplækkun- um og niðurskurði félagslegra umbóta. Og fyrsta atlagan skal gerð að lýðræð- inu. Afturhaldsmenn íhaldsins, Geir-fugl- arnir, hafa þegar boðið Framsókn sam- starf um að skifta á milli sín þingsætun- um og útiloka áhrif verklýðshreyfingar- innar: Það á að gerast með því að koma á 49 einmenningskjördæmum, m.ö. orð- um afturganga fyrirætlananna frá kring- um 1950, þegar þessi þokkalega árás á áhrif og vald kjósenda og afnám jafn- réttis strandaði á því hvort vera skyldu 17 eða 21 einmenningskjördæmi í Reykja- vík. — Þetta er nú það sem bak við býr, þegar afturhaldið hrópar hæst um lýð- ræði, en undirbýr svo að reka rýtinginn í bak þess. Spurningin er bara: Hvenær þorir afturhaldið í Framsókn að taka höndum saman við ofstækisöflin í íhaldinu til slíkrar árásar á lífskjör íslenskrar al- þýðu? Og þá kemur um leið hin spurningin: Ætla samtök alþýðu, fagleg og pólitísk, að bíða eftir þeirri holskeflu ófarnaðar, — eða taka þau nógu snemma höndum saman öll á hinum pólitíska vettvangi til þess að afstýra ógæfunni og láta brask- arastéttina sjálfa borga? Skýringar: 1 Það er máske rétt að geta þess vesælum Nato-sálum á íslandi til hughreystingar, að Vestur-Þýskaland hefur stórfellda viðskiftasamninga við Sovétríkin og önnur sósíalistisk lönd, sem m.a. tryggja yfir 300.000 manns í Vestur-Þýskalandi atvinnu, þegar atvinnu- leysið tröllríður því Nato-ríki. 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.