Réttur


Réttur - 01.01.1981, Blaðsíða 54

Réttur - 01.01.1981, Blaðsíða 54
frelsisbaráttu hennar. Ríkisstjórn og Al- þingi sýndu henni ekki einu sinni þá kurteisi að bjóða fulltrúum hennar á 1100 ár afmæli íslandsbyggðar. (Þorðu yfirvöld vor það ekki af ótta við að móðga Dani?) Og til eru þeir menn á ís- landi sem álíta kúgara Grænlendinga ,,samherja” vora!* Það er tími til kominn að Grænlend- ingar, Færeyingar og íslendingar taki upp miklu nánari samvinnu bæði um at- vinnumál sín, utanríkismál og fleira. Þótt fámennar séu þjóðir þessar og óvopnaðar, þá hafa þær vegna legu sinnar og auðæfa til lands og sjávar, að- stöðu til þess að vernda hagsmuni sína, ef forustumenn þeirra þora vægðarlaust að beita þeim „vopnum”. Við skulum minnast þess að Alþingi íslendinga samþykkti aldrei innlimun Grænlands sem ,,amt” í Danmörku. Oss ber að styðja af fremsta megni að grænlenska þjóðin fái í sínar hendur öll þau þjóðréttindi, sem hún sjálf vill, — einnig fullt sjálfstæði og fullan rétt yfir öllum auðlindum síns stóra lands, ef hún krefst þess. Við vitum að Grænlendingar muni eiga þar við ramman reip að draga. Jafnt auðhringir Efnahagsbandalagsins sem og Bandaríkin mæna girndaraugum til auð- æfa Grænlands og munu sækja þar á. Grænlendingar þurfa því á allri þeirri að- stoð að halda, sem fáanleg er frá þjóðum þeim, sem vilja standa með þeim í að af- létta nýlenduokinu gamla að fullu og hindra að þeir verði stærri og verri gömmum að bráð, er þeir losna endan- lega undan þeirri dönsku „forsjá”, sem í svipinn hefur ofurselt þá Efnahags- bandalaginu. En það er ekki aðeins á stjórnmála- sviðinu, sem Grænlendingar og íslend- ingar ættu að geta unnið saman. Einnig á viðskiftasviðinu, í sambandi við framleiðslu á fiski, ull ofl. ættu að vera miklir möguleikar til samhjálpar og samvinnu þessara tveggja fámennu þjóða, sem um aldir hafa orðið að þola nýlendukúgun, en eiga nú i rauninni yfir slíkum hafflæmum og landflæmum að ráða sem stór ríki væru: í því felast miklir þróunarmöguleikar, en líka miklar hættur í grimmum gammaheimi auð- drottnanna, nábúa beggja. Því ber þeim að snúa bökum saman. Og það þarf ekki síður að efla sam- starfið á menningarsviðinu. Til þess er ekki síst gott tilefni, þegar 1000 ár eru liðin frá því íslendingar fundu Græn- land, nú 1982 — að talið er. Ætti ísland að undirbúa það rækilega, hátíð þessara tveggja þjóða — og bæta jafnframt fyrir brotið, sem framið var af íslendinga hálfu 1974. — 1964 lagði ég til á Alþingi að send yrði þingmannanefnd til Græn- lands, m.a. til að sýna þeim samstöðu í sjálfstæðisbaráttu þeirra. Þvi var ekki sinnt. — En nú verðum við að bæta fyrir vanræksluna og brotin og sýna þeim í verki þann hlýhug, virðingu og sam- starfsvilja, er tengi þjóðir vorar órjúf- andi vináttuböndum. SKÝRINGAR: I' Sjá greinina „Skyldan við Grænlendinga”, bls. 98- 101 í „Rétti” 1975. p pv 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.