Réttur - 01.01.1981, Side 49
„konungs”- eða ættarhöfðinga-tigninni
42 ára, er bróðir hennar dó 1624. Hún
háði langt frelsisstríð við Portúgala, til
þess að hindra þá í að stækka yfirráða-
svæði sitt og ræna frjálsum Angóla-
mönnum og selja sem þræla. — Portú-
galar voru þræl-kristnir sem kunnugt
er. —
Um Nzingu urðu margar þjóðsögur til
og ljóð mörg kveðin um hana. Við hirð-
ina skipuðu konur mörg helstu tignar-
sætin. Konurnar lærðu vopnaburð og
háðu frelsisbaráttuna við hlið karl-
mannanna. Nzinga var í karlmannabún-
ingi og segir sagan að hún hafi og haft
við hlið sér marga ,,fylgisveina” (í merk-
ingu sem karlmenn nota: ,,fylgikonur”)
og klæddust þeir kvenfötum.
Nzinga hagnýtti af miklum klókindum
hagsmunaandstæðurnar milli nýlendu-
veldanna, gerði 1641 bandalag við Hol-
lendinga gegn Portúgölum. Og 1656, 74
ára að aldri, gerði hin gráhærða drottn-
ing friðarsamning við Portúgala, en hélt
þó valdi sínu og áhrifum óskertum. —
Nzinga andaðist 17. desember 1663, 81
árs að aldri. Þjóð hennar leit á hana sem
stjórnmálaleiðtoga, herforingja og bar-
áttumann gegn nýlenduþrælkuninni —
allt í senn.
En eftir andlát hennar tókst Portúgöl-
um loks 1671 að leggja undir sig Angola
og arðræna þar, kúga og myrða í tæpar
þrjár aldir, þar til Angolaþjóðin nú
hefur brotið nýlenduhlekkina af sér.2
SKÝRINGAR:
1 Gott er til minningar um Ólöfu riku að lesa „Man-
söng Svarts á Hofstöðum um Ólöfu Loftsdóttur”, í
„Visnakveri Fornólfs”.
2 Sjá m.a. grein í Rétti 1976, bls. 104—105: „Sigur al-
þýðubyltingar í Angóla”.
49