Réttur - 01.01.1981, Blaðsíða 31
skrá skuli í eina heildarskrá lífeyris-
réttindi allra landsmanna.
Samkvæmt lögunum skal skrásetja
iðgjaldagreiðslur allra manna, þann
lífeyrissjóð eða þá sjóði sem greitt
hefur verið til og þau réttindi sem
hver maður á samkvæmt reglum þess
sjóðs sem hann er aðili að.
Lífeyrisskráin er til þess ætluð að
veita einstaklingum og atvinnurek-
endum upplýsingar um til hvaða líf-
eyrissjóðs iðgjald skal greiða fyrir
hvern mann eða um hvaða sjóði er
að velja, eigi það við. Lífeyrisskráin
skal veita upplýsingar um greiðslur
iðgjalda og lífeyrisréttindi og skráin
skal gefa út árlega yfirlit um lífeyris-
réttindi og iðgjaldagreiðslur lands-
manna. Þá var með lögum nr. 95/
1980, um söfnunarsjóð lífeyrisrétt-
inda, stofnaður sérstakur lífeyrissjóð-
ur sem tók við eignum, skuldum og
verkefnum biðreiknings lífeyris-
sjóðsiðgjalda.
10. Fæðingarorlof
í tengslum við gerð kjarasamninga
á árinu 1980 gaf ríkisstjórnin yfirlýs-
ingu um að hún myndi beita sér fyrir
ýmsum félagslegum réttindamálum.
Eitt þessara mála er fæðingarorlof
fyrir allar konur. Samkvæmt lögum
þessum um fæðingarorlof nr.
97/1980 eiga nú allar konur sama
rétt til þriggja mánaða fæðingaror-
lofs, en á mismunandi launum, allt
eftir atvinnuþátttöku. Með lögunum
verður sú meginbreyting að heima-
vinnandi konur og þær sem stunda
óveruleg hlutastörf fá í fyrsta skipti
fæðingarorlof. Þá taka lögin til
feðra einnig, en þeir eiga nú rétt til
þess að taka hluta fæðingarorlofs í
stað móður.
Samkvæmt lögunum á foreldri
sem hefur hálfa til fulla dagvinnuþátt-
töku á almennum vinnumarkaði síð-
ustu 12 mánuðina fyrir fæðingu, rétt
á óskertum mánaðargreiðslum í þrjá
mánuði. Viðmiðunargreiðslurnar
voru, þegar lögin voru sett, gkr. 530
þús. á mánuði. Foreldri sem hefur
fjórðungs til hálfa dagvinnuþátttöku
á síðustu 12 mán. á rétt á 2/3 af þess-
um greiðslum í þrjá mánuði. Foreldri
sem er utan vinnumarkaðar, heima-
vinnandi eða er með fjórðungs dag-
vinnuþátttöku eða minni á samkvæmt
lögunum rétt til 1/3 af fullri viðmið-
unargreiðslu í þrjá mánuði.
Sú meginbreyting verður með lög-
unum að nú greiðist fæðingarorlof
úr lífeyrisdeild Tryggingastofnunar
ríkisins gegn framvísun vottorðs
læknis og sönnunar um launagreiðsl-
ur og atvinnuþátttöku. Áður var
fæðingarorlof, eins og kunnugt er,
bundið kjarasamningum og greiðsl-
um atvinnurekanda og atvinnuleysis-
bótum. Ef um fleirburafæðingu er
að ræða framlengist fæðingarorlof
um einn mánuð. Sé móður nauðsyn-
legt af heilsufars- og öryggisástæð-
um að hefja töku fæðingarorlofs
meira en einum mánuði fyrir áætlað-
an fæðingardag, á hún rétt á fæðing-
arorlofslaunum í allt að fjóra mán-
31