Réttur


Réttur - 01.01.1981, Page 24

Réttur - 01.01.1981, Page 24
Leonel Rugama: Jörðin er fylgihnöttur tunglsins Apollo 2. kostaði meira en Apollo 1. Apollo 1. varsvosem nógu dýr Apollo 3. kostaði meira en Apollo 2. Apollo 2. kostaði meira en Apollo 1. Apollo 1. varsvosem nógu dýr Apollo 4. kostaði meira en Apollo 3. Apollo 3. kostaði meira en Apollo 2. Apollo 2. kostaði meira en Apollo 1. Apollo 1. varsvosem nógu dýr Apollo 8. kostaði heilan helling en menn fundu ekki fyrirþví vegna þess að geimfararnir voru mótmœlendatrúar og lásu biblíuna á tunglinu og við heimkomuna hlutu þeir blessun Páls páfa sjötta Apollo 9. kostaði meira en allir hinir tilsamans að meðtöldum Apollo 1. sem var alveg nógu dýr Langafar fólksins í Acahualinca voru ekki eins hungraðir og afarþess Langafarnir dóu úr hungri Afar fólksins í Acahualinca voru ekki eins hungraðir og feður þess afarnir dóu úr hungri Feður fólksins í Acahualinca voru ekki eins hungraðir og fólkið sjálft Feðurnir dóu úr hungri Fólkið í Acahualinca er ekki eins hungrað og synirþess Synir fólksins í Acahualinca fœðast ekki sökum hungurs en hungrar í að fœðast til að deyja úr hungri Sælir eru fátœkir, þvíþeir munu tunglið erfa. 24

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.