Réttur


Réttur - 01.01.1981, Page 44

Réttur - 01.01.1981, Page 44
um. Þegar upp var staðið bjuggu íslend- ingar við meira frelsi en nokkur önnur þjóð. Og við glötuðum ekki sjálfstæði okkar þrátt fyrir hernámið. Enn í dag er baráttan gegn hernáminu, þjóðfrelsis- baráttan, rekin af meiri breidd og meiri krafti en annarsstaðar. Það er þetta allt sem nú þarf að verja. Og það verður ekki gert öðruvísi en með því að barátta verkalýðshreyfingarinnar verði færð meira yfir á pólitískan vett- vang. Verkalýðshreyfingin á hiklaust að styðja vinveittar ríkisstjórnir og standa að stofnun þeirra. Verkalýðshreyfingin verður að hafa yfirsýn yfir lengra tímabil og taka raunhæfan þátt í langtímamark- miðum, ef vinveittar rikisstjórnir vilja standa að slíkri stefnumótun. Verkalýðs- hreyfingin verður að taka þá áhættu að henni verið núið því um nasir að hún taki beinan þátt í pólitík. Ef ríkisvald vill raunverulega vinna af heilindum þá á verkalýðshreyfingin að styðja það ríkis- vald. Innbyrðis togstreita verður að hverfa og pjakk endalausra þrýstihópa um að fá svolítið meira en aðrir. Verkalýðshreyf- ingin verður að hafa eina heildaryfirsýn. Ef hún hefur kjark til þess mun framtíðin verða áframhaldandi sigurganga. Hrafn Sæmundsson 44

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.