Réttur


Réttur - 01.10.1982, Blaðsíða 48

Réttur - 01.10.1982, Blaðsíða 48
að þessu sinni ekki eins hagstæðar at- vinnurekendum, og venjulega, og þeir hefðu kosið. Hin opinberu efnahagsvöld voru í höndum ríkisstjórnar, sem póli- tískur málsvari launþega var þriðjungsað- ili að. f>að gat því brugðið til beggja vona um afstöðu ríkisstjórnarinnar. Virk áhrif á skoðanir almennings, þ.á m. félags- menn launþegasamtakanna, á efnahags- vandanum voru því þýðingarmeiri nú en oft áður. Hins vegar brá svo við að þessu sinni, að sjónarmið atvinnurekenda voru svo yfirgnæfandi í efnahagsumræðunni, að segja má að þeir hafi setið einir að því að skýrgreina efnahagsvandann fyrir al- þjóð. Gagnrýnisraddir úr fylkingu laun- þega heyrðust varla. Við ríkjandi aðstæð- ur er að sumu leyti hægt að skilja hógværð Alþýðubandalagsins í þessum efnum. Það er ávallt hæpið fyrir verkalýðssinnaðan stjórnmálaflokk að ganga skrefi framar í kjarabaráttunni en samtök launþega sjálfra. Þetta á ekki hvað síst við, þegar viðkomandi flokkur býr við jafnþrönga stöðu í ríkisstjórn og Alþýðubandalagið á þessu ári og raunar enn. Hina þunnu þögn launþegasamtakanna um ástandið og hið algera gagnrýnisleysi ríkisfjölmiðl- anna á málflutning atvinnurekenda og opinberra efnahagsstofnana er hins vegar erfiðara að afsaka. Ekki er ósennilegt að það megi rekja til hins nánast algera skorts á skipulegri gagnrýni, að efnahags- stofnanir þjóðarinnar þóttust að þessu sinni þess umkomnar að teygja reiknifor- sendur sínar út á, og jafnvel út fyrir, ystu nöf þess, sem verjanlegt er, í því skyni að styrkja hagsmuni atvinnurekenda. 3. Ályktanir Helstu atriði þeirrar atburðarásar, sem að framan hefur verið rakin, eru sem hér segir: Launþegar hafa átt undir högg að sækja allar götur síðan 1974. Allt þetta tímabil hefur atvinnurekendavaldið í landinu beitt þá tangarsókn stöðnunar þjóðar- tekna á vinnandi mann annars vegar og löggjafar um kaupmáttarskerðingu hins vegar. Þrátt fyrir fall hægri stjórnarinnar og töluverðar stjórnmálasviptingar í fram- haldi af því, hafa ekki orðið veruleg þáttaskil í þessu ferli. Ólafslögin 1979 og efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar frá í á- gúst sl. eru skýr áminning um, að horn- steinninn í efnahagsstefnu viðreisnarinn- ar og ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar er enn í fullu gildi. Mikilvægustu ástæðuna fyrir því, að ekki hefur tekist að knýja fram nýja stefnu í kjaramálum á undanförnum fjór- um árum, tel ég vera þá, að efnahagskenn- ingar klæðskerasaumaðar á hagsmuni at- vinnurekenda hafa orðið ríkjandi í við- horfum launþega til efnahagslífsins. Þetta er engin tilviljun. Síðan viðreisnarstjórn- in féll fyrir rúmum áratug og formleg tök atvinnurekenda á stjórnmálastofnunum þjóðarinnar linuðust þar með, hafa at- vinnurekendur lagt ofurkapp á að verja hagsmuni sína með því að móta sjónar- mið þeirra, sem með formlegu völdin fara, þ.e. kjósenda og stjórnmálamanna í umboði þeirra. Aðferð þeirra hefur öðru fremur verið sú, að reka linnulausan áróður fyrir því, að hagsmunir atvinnu- rekstrarins séu jafnframt hagsmunir þjóð- arheildarinnar. í þessu skyni hafa þeir í ríkum mæli beitt fyrir sig sérfræðistofnun- um í efnahagsmálum; bæði opinberum stofnunum og sínum eigin, og látið þær 240
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.