Réttur - 01.01.1975, Page 37
Arnmundur Backman
Nýsköpun sjávarútvegs
í tíð vinstri stjórnar siðari
LANDHELGISMÁLIÐ
OG SJÁVARÚTVEGUR
I. Sjálfsagt munu margir þeirrar skoðunar
nú, að enn á ný hafi það verið landhelgis-
málið, sem setti mestan svip á valdaskeið
vinstri stjórnar í landinu. Utfærsla landhelg-
innar í 50 mílur 1. september 1972 verður,
er fram líða stundir, trúlega talin merkasta
mál þessara ára. En baráttan fyrir rétti okkar
yfir fiskimiðunum í kringum landið náði
þá eyrum alheimsins og einhuga smáþjóð
okkar skipaðist í forystusveit þeirra fjöl-
mörgu þjóða, sem heyja baráttu fyrir yfir-
ráðum yfir auðlindum sínum. Sú staðreynd
blasir við, að sjónarnrð okkar Islendinga
náðu almennri viðurkenningu á þessum
árum. Eftirleikurinn ætti því að vera léttari
nú, ef hugur fylgir máli.
II. Það er auðvitað engin tilviljun, að
stefna og árangur í landhelgismálinu eru
tengd vinstri stjórnunum tveim. Þá er merk-
ið reist af miklum eldmóði, eftir langvar-
37