Réttur - 01.01.1975, Page 69
INNLEND n i
VÍÐSJÁ
ÁRÁS Á LÍFSKJÖRIN
Á þeim tíma sem liðinn er frá því núver-
andi ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins kom til valda hafa gerst at-
burðir í efnahagsmálum sem afhjúpa innsta
kjarna þessara flokka gjörsamlega. Verður
framganga þeirra í efnahagsmálum nú nokk-
uð rakin — með því að nefna fáeinar tölur:
1. ágúst, þegar ríkisstjórnin tók við var
vísitala framfærslukostnaðar 295,8 stig. 1.
febrúar sl. var vísitalan hins vegar 365 stig;
hafði hækkað um 68,2 stig á valdatíma
stjórnarflokkanna. Nú hafa verið ákveðnar
nýjar verðhækkanir og ber þá fremst að
nefna þær verðhækkanir sem stafa af geng-
islækkuninni frá 12. febrúar. Er þar um að
ræða um 7% verðhækkanir að meðaltali á
öllum vörum, en um 25% hækkun á inn-
flutningi, þar sem gengislækkunin var 20%.
Að meðtöldum þeim verðhækkunum sem
hljótast af gengislækkuninni hafa jaegar
ákveðnar, og framkomnar hækkanir náð um
30% á aðeins fimm mánuðum eða um 6%
á mánuði. Heimsmet!
En á sama tíma og þessi verðhækkana-
skriða hefur gengið yfir þjóðina hefur
verið í gildi bann við vísitölubótum á kaup.
Launamenn hafa því ekkert fengið upp í
þessar gífurlegu verðhækkanir þar sem þriðju
hverri krónu hefur verið stolið. 1. október
fengust að vísu svokallaðar láglaunabætur,
3.500 kr. á mánuði, sem urðu 10% á lægstu
launin, en þessar „bætur' komu aðeins á
laun upp að 53.500 kr. Öll laun þar fyrir
ofan eru án hverskonar vísitölubóta. Þetta
þýðir:
— að maður sem hafði 60 þúsund krónur
1. ágúst þyrfti nú að hafa 78.000 til þess
að kaupa sömu lífsnauðsynjar og í ágúst.
— að sá sem notaði 100.000 kr. 1. ágúst
þyrfti nú 130.000 til þess að geta keypt
sama magn lífsnauðsynja.
— að sá sem hafði 35.000 1. ágúst þyrfti
nú 45.500 kr. á mánuði til þess að kaupa
sama magn lífsnauðsynja, en hann hefur að-
eins 38.500 kr.
Þeir fyrrnefndu — sem hafa 60.000 og
100.000 á mánuði hafa hins vegar enga
hækkun fengið upp í verðhækkanirnar. Þó
segir það sig sjálft að vöntun þessa síðast-
nefnda — sem hafði 35.000 á mánuði 1.
ágúst — er sárust.
Þær miklu verðhækkanir sem hafa átt sér
stað á undanförnum mánuðum eiga að 54
hlutum rætur að rekja til þátta, sem ríkis-
stjórnin sjálf fær ráðið við. Er það mjög and-
stætt því sem gerðist á fyrri hluta sl. árs og
á árinu 1973, þegar verðhækkanir stöfuðu
fyrst og síðast af erlendum uppruna. Er nú
— í ársbyrjun 1975 — almennt viðurkennt
að verðbólguaukningunni sé lokið þó að
verðbólgan haldi vafalaust áfram erlendis í
svipuðum mæli og hún hefur gert, enn um
nokkurt skeið.
Sem fyrr segir hækkar allt verðlag frá
valdatöku núverandi ríkisstjórnar um 30%
en það er um 94 stig í k-vísitölu. Þessar verð-
69