Réttur


Réttur - 01.04.1976, Page 4

Réttur - 01.04.1976, Page 4
gegn kerfinu, leitin að hugsjóninni, er þar í fullu fjöri. ★ Allt frá uppkomu auðvaldsskipulags í Bretlandi , myndun fyrstu kaupmanna- og útgerðarstaða þar, hafa Bretar, þá oft í harðri keppni við Hansa-staði fyrr á öld- um, — rænt íslensk fiskimið, stundum þurrausið svo að fiskur lifði þar af aðeins vegna heimsstyrjalda. Haf íslands og jörð Irlands eru elstu arðránssvæði breska heimsræningjans, engilsaxneskrar heims- valdastefnu. Síðustu áratugina beitir ann- ar voldugasti auðhringur Breta, Unilever, —- sem um leið er voldugasti útgerðar- aðili Vestur-Þýskalands, — „sætabrauð- inu og svipunni'' á víxl í viðskiptum við ísland: lætur ríkisstjórnir þessara landa beita svikasamningum eða ofbeldi til skiptis. Verslunarvaldið er umboðsmaður hins erlenda auðvalds á Islandi. Kramaraandi þess grefur um sig í þjóðlífinu sem melur í ullarflík. Svikin í þriðja þorskastríðinu kallar þetta auðvald „stórkostlegan sig- ur“ alveg eins og 1961, þegar það kallaði ,,óuppsegjanlega“ landráðasamninginn, sem batt ísland við 12 mílur og Alþingi varð að rifta 1971, ,,mikinn sigur" (Mbl. 10. mars 1961). Keflavíkurgangan mikla var aðvörun gegn uppgjöf þeirri, er fram fór 1. júní, og jafnframt var þar skorin upp herör gegn her Bandaríkjanna á Islandi. ★ Það reynir nú á Alþýðubandalagið, á reisn þess og hugsjónaeld, á skipulags- hæfileika þess og forustuþrótt, að virkja þessar fjöldahreyfingar sem markvissan pólitískan mátt: sumpart að fá hundruð og þúsundir þess áhugafólks, sem svo ótvírætt hefur tjáð vilja sinn til baráttu, inn í flokkinn, til að gera hann vígreifan fjöldaflokk, — sumpart að skipuleggja til pólitísks samstarfs alla þá, sem á einn eða annan hátt buðu fram þrótt sinn til átaka 15. maí. Þá má ekki gleymast að framar öllu er það í Reykjavík, sem sigurinn verður að vinnast, — og þar hefur nú einmitt fjöld- inn sýnt sinn mátt, sem virkja skal. — En þar er líka höfuðvígið, þar sem aftur- haldið hefur búið um sig með aldarfjórð- ungs köldu stríði og þjóðernislegri lág- kúru. Þess má minnast að Kommúnista- flokkur Islands hafði 1937 15,2% kjós- enda í Reykjavík, Sósíalistaflokkurinn 1942 (haustið) 30,2% og Alþýðubanda- lagið, eftir harða og sigursæla baráttu 1974 20,6%. Nú er hið þrotlausa hug- sjónarika fjöldastarf framundan, til þess að tvinna saman stéttabaráttu alþýðu og þjóðfrelsishreyfinguna í þá pólitísku flóð- bylgja, er feykir burt því andlega fúa- timbri þjóðlegrar niðurlægingar og þeirri svikamyllu alþýðukúgunar, sem aftur- haldsöflin byggja völd sín á. í þingkosningunum 1908 reis þjóðin upp gegn innlimunarstefnu afturhaldsins þá og sigraði. 1942 reis íslensk alþýða upp í skæruhernaði og tvennum þing- kosningum og braut af sér gerðardóms- fjötrana og fátæktarhlekkina. SLÍK UPPREISN ER ÞJÓÐINNI LÍFS- NAUÐSYN NÚ. Myndin í upphafi er af útifundinum á Lækjartorgi að lokinni Keflavíkurgöngu. 68

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.