Réttur


Réttur - 01.04.1976, Blaðsíða 24

Réttur - 01.04.1976, Blaðsíða 24
in ekki komist til valda? Því væri fróðlegt að velta fyrir sér. Þegar ríkisstjórn íhaldsins og Framsóknarflokks- ins komst til valda rættist langþráður draumur mafíanna í báðum flokkum; fyrir 18 árum slitnaði upp úr fimm ára helmingaskiptastjórnum þessara flokka og margur flokksmaðurinn þar hafði áhuga á því að endurnýja kunningsskapinn. Ég hygg að áhuginn á þessu samstarfi hafi ekki síst verið meðal framsóknarforustunnar sem aftur vildi kom- ast að kjötkötlunum. Þeir vitrari I forustu Sjálf- stæðisflokksins höfðu ekki sérstakan áhuga á stjórnarsamstarfi með framsókn en það var lífs- spursmál fyrir Geir Hallgrímsson sem formann flokksins að verða forsætisráðherra Strax og stjórnin var mynduð tóku ránfuglarnir að brýna klærnar og áður en varði hafði átt sér stað mesta kjaraskerðing á skömmum tíma sem sögur fóru af, samhliða fylgdi veruleg verðhækkanaskriða og hægri stjórninni tókst engan veginn að ráða við vöxt verðbólgunnar. Stjórnarflokkunum tókst að framkvæma ránsherferð sína þrátt fyrir nokkurt andóf verkalýðshreyfingarinnar, en það andóf var óneitanlega veikt I fyrstu. Nú er nýlokið kjaraátökum, þeim harðvítugustu sem hér hafa átt sér stað á valdatíma núverandi ríkisstjórnar. Verkalýðshreyfingin háði víðtækasta allsherjarverkfall sem sögur fara af, hálf miljón vinnudaga tapaðist. I þessu verkfalli kom vel fram að styrkur verkalýðshreyfingarinnar er slíkur að ríkisstjórnin getur ekki brotið vald hennar gjörsam- lega á bak aftur, hið faglega vald hennar. Jafnframt kom I Ijós I þessu verkfalli, sem gjörbreytti svip þess, skilningur meðal forustu verkafólksins á nauðsyn þess að tengja pólitíska baráttu og fag- lega baráttu saman I órofa heild. I verkfallinu gaf Alþýðusambandið út Vinnuna I tugum þúsunda ein- taka sem dreift var víðsvegar af verkfallsmönnum. I Vinnunni voru settar fram kröfur um pólitíska samstöðu verkalýðsins, kröfur sem að vísu hafa heyrst áður, en hafa aldrei verið jafnháværar og eindregnar og einmitt nú. KRÖFUR TIL ALÞÝÐUBANDALAGSINS En þegar skilningurinn vaknar þannig I verka- lýðshreyfingunni hlýtur Alþýðubandalagið að gera stærri kröfur til sjálfs sín en nokkru sinni fyrr. Nú er það verkefni Alþýðubandalagsins að setja fram kröfur um breytingar á þjóðfélaginu, sem eru þannig vaxnar að launafólk geti fylkt sér um þær I kjarabaráttu og kosningaslag. Því aðeins er unnt að ætlast til þess af verkaýðshreyfingunni að hún taki þátt I að koma pólitískum kröfum I framkvæmd, að félagsmenn hennar hafi tekið virkan þátt I að móta þær. Við slíkar aðstæður einar getur verka- lýðshreyfingin stutt rikisstjórnir I þessu landi stéttabaráttunnar. I liðnu verkfalli tókum við íslenskir sósíalistar af fullum krafti undir kröfur verkalýðssamtakanna. En við vorum ekki nægilega duglegir við að sýna fram á hvernig þeim ætti að koma I framkvæmd. Því að það er staðreynd sem ekki verður á móti mælt að það er ekki hægt að tryggja raunverulegar kauphækkanir, raunverulega lífskjarabót alþýðunn- ar, án þess að gjörbreyta þjóðfélaginu. Og hvað skal gera, hvernig skal breyta? Ég vil leyfa mér að nefna hér nokkur atriði, sem ég tel liggja beint við að benda á I efnahagsmálaum- ræðunni á Islandi um þessar mundir: I fyrsta lagi verður að stöðva sóun þá sem á sér stað i versluninni. Hér á landi eru um 2000 smásöluverslanir og 500 heildverslanir. Heildversl- unin veður I gjaldeyrinum þrátt fyrir gjaldeyrisskort og sífelld erlend lán. Þetta á að stöðva með því að setja innflutningsverzlunina eða þýðingarmikla þætti hennar að minnsta kosti undir félagslega stjórn. Má i því sambandi nefna olíuverslunina, innflutning á byggingavörum, innflutning á bifreið- um og skyldum tækjum. I þessu sambandi er ég ekki að tala um að rikið loki þeim verslunum sem nú fara með þessi viðskipti, heldur að innflutning- urinn sem slíkur verði háður skynsamiegu eftirlitl. I öðru lagi þarf að taka upp raunhæfa áætlana- gerð I stað þeirra einskisnýtu óskalista sem nú eru kallaðir áætlanir og framleiddir á færibandi I fram- kvæmdastofnuninni. I þessari áætlanagerð þarf að raða framkvæmdum rikisins, sveitarfélaga og einka- aðila I forgangsröð þar sem tillit er tekið til fjár- hagslegrar getu, skynsamlegrar nýtingar vinnuafls og fleiri þátta. I slikri áætlanagerð þarf að taka algerlega fyrir stækkun þeirrar þungu yfirbygging- ar, sem er að sliga allt þjóðfélagið og beita þarf ráð- stöfunum til þess að draga úr þessari yfirbygg- ingu. I þessu sambandi má minna á bankana og tryggingafélögin 15. Hina þjóðfélagslegu sóun I verslun og fjárfest- ingu verður að stöðva. Þar með sparast miljarðar króna. 88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.