Réttur


Réttur - 01.04.1976, Blaðsíða 28

Réttur - 01.04.1976, Blaðsíða 28
er eitt íslenskra stjórnmálaflokka í sókn um þessar mundir. Aðrir flokkar ýmist hjakka í sama farinu eða eru dæmdir til fylgistaps. Þessi sóknarstaða Alþýðubandalagsins færir því hins vegar auknar skyldur; í næstu kosningum þarf Alþýðubandalagið að verða enn stærra að fylgi en nú er. En það þarf sterk bein til að þola meðlætið og þess vegna verður flokkurinn að svara hinum miklu möguleik- um sínum með því að gera tillögur um nýja stjórnun þjóðfélagsins, tillögur sem íslenskt launafólk, yfir- gnæfandi meirihluti þjóðarinnar, er áreiðanlega reiðubúinn til þess að styðja. En flokki íslenskra sósíalista er ekki nóg að hafa tillögur til úrlausnar, honum er ekki nóg að auka fylgi sitt, hann þarf að hafa félagslegan styrk, sem er enn meiri en fylgið segir til um og þann styrk getur flokkurinn því aðeins öðlast að hann efli að miklum mun styrk sinni og starf í verkalýðs- hreyfingunni. Það verður að viðurkennast að innan verkalýðshreyfingarinnar hefur flokkurinn ekki eflst á síðustu árum. Hann stendur þar enn á gömlum grunni Sósíalistaflokksins. Hér þarf að verða breyt- ing á, ekki aðeins til þess að tryggja að sósíalistar haldi því sem náðst hefur áður, heldur einnig til þess að nema ný lönd. Flokkur sósialista sem ekki starfar vel að verka- lýðsmálum rís ekki undir nafni, flokkur sósíalista sem ekki hefur jafnan að leiðarljósi lögmál stétta- baráttunnar er ekki lengur sósíalískur flokkur. Hann er rekald i úfnum sjó stéttaátakanna, sem allt eins getur borið á land í verstöð stéttaóvin- arins. Nú eru framundan miklar sviptingar í íslenskum stjórnmálum. Enginn veit, síst ráðherrarnir sjálfir, hversu langlíf hún verður ríkisstjórn hægriaflanna. I haust er Alþýðusambandsþing og á miklu veltur að vel takist til þar um skipan forustu og um til- lögumótun. Á ASl þingi í haust þarf að setja fulltrúa afturhaldsflokkanna — sem kallaðir voru ,,hvítliðar" í síðasta hefti Réttar — út úr áhrifa- mestu valdastöðum. Á þinginu þarf að samþykkja pólitískar kröfur um það hvernig á að leysa úr hinum þjóðfélagslegu vandamálum. Með slíkar til- lögur að veganesti ættu sósíalískir flokkar að geta unnið þá sigra sem nægt gætu til þess að koma þeim í framkvæmd. En jafnframt þessum tíðindum eru augljósar framundan stórfelldar hættur fyrir sjálfstæði þjóð- arinnar. Þær eru þegar merkjanlegar og hafa þegar sumar hverjar verið nefndar í þessu greinarkorni. Við að meta þessar hættur við pólitíska ákvarðana- töku kann að verða nauðsynlegt að endurmeta fyrri afstöðu og það kann að verða brýnt að rifa sig upp úr einsýnum matsgerðum sjálfstæðismálanna. Þær hættur sem nú steðja að eru efnahagslegar. En þær eru einnig utanríkispólitiskar; ný viðhorf innan Atlanshafsbandalagsins hljóta að gjörbreyta mati okkar íslenskra sósíalista um leið og við verðum að gera okkur ijóst að samhliða breytingum á Atlanshafsbandalaginu eru hættur á því að Banda- ríkin læsi klónum enn fastar um okkur íslendinga en áður. Nú á dögunum hefur Kissinger utanrikisráð- herra Bandaríkjanna lýst því yfir að NATO muni ekki þola sósíalisma í NATO-rikjunum. Þessi blygð- unarlausa hótun utanríkisráðherrans á að sjálf- sögðu fyrst og fremst að beinast að Italiu, þar sem kommúnistar bæta fylgi sitt dag frá degi, en þessi hótun hlýtur einnig að koma rækilega við okkur íslendinga. Við erum i þeim mun meiri hættu en italir sem við erum nær bandaríska heimsveldinu. Og hættan er sú að bandarikjastjórn vilji víggirða sig með Islandi og Asóreyjum andspænis rauðri Vestur-Evrópu. Allt þetta krefst endurmats, ekki á stefnunni, heldur á stjórnlistinni. Við það endurmat leggjum við stéttabaráttu og lögmál hennar til grundvallar. 92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.