Réttur


Réttur - 01.04.1976, Blaðsíða 58

Réttur - 01.04.1976, Blaðsíða 58
vera afdrifarík, og opna augu vinnandi fólks í Frakklandi fyrir því að það eitt sé þess hagur, að haldið verði lengra á þessari braut. FRANSKI KOMMÚNISTAFLOKKURINN í DAG Höfuðstöðvar franska kommúnistaflokks- ins á Place du Colonel Fabian í 19- hverfi Parísar minna á virki. Þetta er marglyft hús byggt í hálfmána og gæti allt eins verið bæki- stöð einhvers auðhringsins, svo nýtískulegt sem það er í útliti. Það er ekki heiglum hent að komast inn og ýmsar varúðarráðstafanir eru viðhafðar áður en gestkomandi er hleypt inn á skrifstofurnar. Þarna eru tii húsa skrif- stofur sambandsstjórnar, miðstjórnar og flokksformanns franska kommúnistaflokks- ins, auk útgáfustarfsemi á hans vegum, sem er mjög viðamikil. Það blandast engum hug- ur um að úr þessu húsi er stjórnað miklum flokki. I febrúar á þessu ári voru félagar í flokkn- um um 500 þúsund. I síðustu kosningum hlaut hann rúmar fimm miljónir atkvæða, og 73 þingmenn kjörna af 546 þingmönnum í franska þinginu. Þar sem kosningalög eru beinlínis sniðin þannig, að þau eru óhagstæð kommúnistum og sósíalistum, svara þing- mannatalan alls ekki til hlutfallstölunnar í kosningum, sem ’73 var 21.3% og hefur í áratugi haldist um 20%. SKIPULAG OG SAMSETNING FLOKKSINS Félagar franska kommúnistaflokksins skiptast í rúmlega 23.178 sellur (um tíu þús- und í bæjarfélögum, átta þúsund í fyrirtækj- um, og fimm þúsund og fimm sundruð í sveitarfélögum). Sellurnar eru skipulagðar í 97 samböndum, sem hvert um sig hefur framkvæmdastjórn, miðnefnd og skrifstofu. 1 miðstjórn flokksins situr 121 fulltrúi og eru þeir valdir á flokksþingum, sem haldin eru á þriggja ára fresti. Efst í valdapýramída flokksins er svo fimmtán manna pólitísk framkvæmdanefnd kjörin af miðstjórn og sex ritarar miðstjórnar, sem eru formanni flokksins til aðstoðar. Umræðan um stefnubreytingu franska kommúnistaflokksins hefur hleypt miklu lífi í allt flokksstarfið. Forráðamönnum flokks- ins var ljóst að áður en hægt væri að kynna almenningi nýja stefnu og ný vinnubrögð yrði að ræða þessi mál til þrautar innan flokksins og taka upp nýja starfshátm. Þetta virðist hafa tekist. Það er áberandi hvað franski kommúnistaflokkurinn er ungur flokkur. Kynslóðaskipti hafa orðið á nokkr- um árum. Meðalaldur flokksbundinna er lík- lega um 37 ár. Meðalaldur rúmlega 1500 fulltrúa á 22 flokksþinginu var aðeins 32 ár. Kosningarnar til miðstjórnar á þinginu end- urspegluðu þessa þróun. Á þinginu voru 48.4 prósent fulltrúanna undir þrítugu, og 79-3% undir fertugu. 62.1% fulltrúanna höfðu gengið í Komm- únistaflokkinn eftir 1958, 30.09 prósent eftir 1972. Þátttaka kvenna í flokksstarfinu hefur einnig aukist. Á þinginu var þessi staðreynd augljós. 484 konur voru meðal fulltrúa, 75 prósent þeirra hafði gengið í flokkinn eftir 1958. I miðstjórn flokksins voru á 22. flokks- þinginu valdar 23 konur í stað 16 áður. Ennfremur má geta þess að á flokksþing- inu var skýrt frá því að fyrirtækjasellum á Parísarsvæðinu hefði fjölgað um 44 prósent frá síðasta þingi. I stóru kjördæmi eins og Gironde hafa 58.2% félaganna gengið í flokkinn eftir ’68, og hvorki meira né minna en 24% eftir '12. Hinsvegar voru aðeins 18.5% núverandi félaga gengnir í flokkinn 122
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.