Réttur - 01.04.1976, Side 60
Er Atlandshafsbandalagið
fyrir auðvaldið eða lýðræðið?
Þessi fyrirsögn er þversögn — sem stendur — Atlandshafsbandalagið er skapað af
auðvaldinu, fyrir auðvaldið, en undir yfirskyni lýðræðis, en afneitar enn sem komið er
þess krafti: óttast það ef „lýðurinn" skyldi fara að vilja ráða. — Við íslendingar höf-
um fengið smjörþefinn af því nú undanfarið hvernig herfloti Natoveldis, hins forna
breska nýlendukúgara, er notaður gegn okkur í lífs- og þjóðfrelsis-baráttu vorri.
Frá sjónarmiði sjálfstæðs, vopnlauss íslantís er það fásinna að vera í hernaðarbanda-
lagi og fyrir þjóðina er það smán og lífshætta að hafa hér erlendan her.
En þar fyrir þurfum við að fylgjast með því af athygli og raunsæi hverju fram vindur
í Atlandshafsbandalaginu og hverjar hugsanlegar breytingar kunna að verða á því.
Atlantshafsbandalagið — eða Nato öðru
nafni — var myndað af auðmannastétt
Bandaríkjanna til baráttu gegn sósíalism-
anum og til eflingar auðdrottnunar í heim-
inum. En slíkt má ekki segja — aðeins gera.
„Fagurt skal mæla en flátt hyggja." I 1.
gr. sáttmálans stendur því að aðilar séu
„staðráðnir í því að varðveita frelsi þjóða
sinna, sameiginlega arfleifð þeirra og menn-
ingu, er hvíla á meginreglum lýðræðis, ein-
staklingsfrelsi og lögum og rétti."
Bandaríkjastjórn var alveg ákveðin í því
að Nato væri eingöngu til framdráttar auð-
valdi í heiminum, en hún neyddist til að nota
„lýðræðið" sem skálkaskjól, af því ýms ríkin,
t.d. Norðurlönd, tóku það alvarlega. Samt
tókst henni að knýja fram að Tyrkland yrði
með, þótt svo lýðræðið þar væri vissulega
í hæsta máta vafasamt, en landið því þýð-
ingarmeiri skotpallur á Sovétríkin. En Spáni
fasismans tókst henni ekki að fá inn. Norð-
urlönd neituðu.
Háttsetmr embættismaður Bandaríkja-
stjórnar var að því spurður nokkru eftir
stofnun Nato, hvað Bandaríkjastjórn gerði
ef kommúnistar kæmust til valda í Nato-
landi á lýðræðislegan hátt. Hann svaraði:
„Slíkt getur ekki gerst." — Það var nú í þá
tíð.
En nú hefur slegið flemtri á forustumenn
124