Réttur


Réttur - 01.04.1976, Page 72

Réttur - 01.04.1976, Page 72
NEISTAR Brotar manna brimfley og beita valdi enn, kunnir fyrir ,,fair play“ og fæddir „gentlemen." Lárus H. Blöndal 1976. Þín sekt er uppvís, afbrot mörg og stór, og enginn kom að verja málstað þinn. Ó, græna jörð, þar Shakespeare forðum fói til fundar við hinn leynda ástvin sinn. Þú brennur upp, þér gefast engin grið, og gamalt bál þú hefur öðrum kynt. Ó, lát þér hægt, þó lánist stundarbið, að lokum borgast allt í sömu mynt. Og jafnvel þó á heimsins nyrstu nöf þú næðir þrælataki á heimskum lýð, það varð til einskis, veldur stuttri töf. Það vinnur aldrei neinn sitt dauðastríð." Steinn Steinarr: Imperium Brittanicum (birt í „Rétti" í mars 1941) „Hér er sem steinatungur tali um trú hins sterka á kraftsins rétt, um týndar grafir, gleymda vaii, sem gylltu Englands veldissali, — en áþján, grímu frelsis flett, á frægðarvarða og merki stari og lúti á hverri stöpulstétt að styttukuldans harða svari. —“ „Hér berst og iðar heimsins hjarta, hér hrærist dælan gulls og blóðs, er innst við rætur ormar narta; en æðin slær við bakkann svarta svo hljótt með lífsstraum fjöru og flóðs, þar Fara’ós skuggi er sem bendi um reikningsskap hins ríka sjóðs til ræningjans — með kross í hendi." Einar Benediktsson: Úr „Tempsá“. um breska yfir- drotnunarstefnu „Þín trú er sú, að sölsa upp grund, þin siðmenning er sterlingspund." „Menn bölva þyngd þins aura-oks, — Ó, England, — spá að hafi nú þín háttvirt kirkja og kaupmenn loks samt kæft út hjá þér dáð og trú. Úr hverri þinni hugsun skín út hagsvon einhver, smá og lág. Og öllu er skrifa skáldin þín er skildings-markið sama á.“ ,,Ef enskur klækur kemst I verð hann kallast vara, ekki synd, Þú kallar ránið kauprétt þinn, og kemst svo af við boðorðin." „Hið enska gull skal fúna fyr en frelsisþrá sé þörð á dyr." Stephan G. Stephansson í „Transvaal" 1899. „Sjá lávarðs-durginn darka um láð með dramb og glys og þesskyns allt, þó mannmergð stór sé honum háð, er herrann glópur þrátt fyrir allt. Þrátt fyrir allt og allt og allt, alstirnt brjóst og þesskyns allt, hver ágæt sál, í anda frjáls, mun að því hlægja þrátt fyrir allt." Úr: Robert Burns „Því skal ei bera höfuð hátt?“ Þýðing Steingr. Thorsteinsson. „Að Sturlungar um stýrið grípi enn var staðfest þar — og betur skilst það senn, að Bretans pund er lands vors leynistjórn." (Ég vissi eitt sinn enskan herramann, og enginn sýndist kurteisari en hann. Hann gaf með vinstri hendi helga bók, — með hægri lífið sjálft í staðinn tók). Jóhannes úr Kötlum úr „Frelsi" 1935. 136

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.