Réttur - 01.04.1987, Side 27
vétríkin 1949 skópu sér kjarnorkuvopn,
hafa Bandaríkin ekki þoraö að hefja
fyrirhugaða kjarnorkustyrjöld af ótta við
eigin — og allsherjar tortímingu.
Þjóðin hafði áður fengið forsmekkinn
af aðferðum þeim, sem stórveldi auðsins
nota til að beygja hana undir vilja sinn.
1941, þann 24. - 25. júní, hafði Bretland
hótað að einangra Island svo að engar
siglingar kæmust frá eða til landsins, —
svelta þjóðina í hel, ef ríkisstjórnin bæði
ekki Bandaríkin um hervernd — og beygt
þannig þann forsætisráðherra, er lengst
stóð á móti yfirdrottnunarkröfu Banda-
ríkjanna.2
Og aftur var svikum beitt, er ísland var
selt inn í Atlantshafsbandalagið 1949. Þá
hafði utanríkisráðherra Bandaríkjanna
heitið því að hér yrði aldrei her á friða-
rtímum.3 Þetta loforð var svikið tveim
árum síðar og bandarískur her hertók ís-
land og hefur verið hér síðan, enda af-
hjúpaði sá innrásaraðili fyrirætlanir sínar,
er hann sveik „samninginn“ frá 1941 um
að fara af landi burt að stríði loknu — og
krafðist þriggja mikilvægra landshluta af
íslandi til 99 ára, til þess að koma þar upp
gríðarlegum herstöðvum.
Síðan hefur þessi ofbeldisher hersetið
land vort, er með milljónamútum að
koma sér upp þægri þjónastétt, er með
valdi yfir fjölmiðlum og ríkisvaldi að
reyna að svæfa þjóðina, svo hún sjái ekki
hvert er verið að leiða hana, — og beitir
öllum áhrifatækjum nútímans til þess að
spilla svo stórum hluta þjóðarinnar, að
hinir erlendu auð- og her-drottnar fái
slíkt vald yfir landi voru að þeir geti gert
það í senn að árásarstöð gegn Sovétríkj-
unum og því að skotspæni, er þeir hæfu
það heimsstríð, sem þá hefur dreymt um
síðan 1945, er þeir hugðu sig einvalda
drottnara heims í krafti einokunar á
atómsprengju sinni.4
í meir en 80 ár hafa framsýnustu skáld
og stjórnmálamenn þjóðarinnar varað
hana við þeim dauðadómi, er henni væri
búinn, ef hún stæði ekki á verði.
Það hreinsar enginn land vort úr þeim
vítisviðjum, sem verið er að vefja um það
æ fastar, — nema þjóð vor sjálf!
Það þarf hug hreinan af þeim eitraða
áróðri landræningjans, sem nú er reynt að
blinda þjóð vora með.
Hvatningarorð Stephans G. eiga meira,
erindi til vor nú en nokkru sinni:
„Lýður, bíð ei lausnarans. Leys þig
sjálfur!“
— „Meðan lífið býður“, segir hann á
öðrum stað í þessari frelsishvöt sinni. Það
er sem skáldið mikla hafi fundið á sér
hvað við lá.
SKÝRINGAR:
1 Eisenhower forseti í kveðjuræðu sinni 1961.
2 Auk þingmanna sósíalista hafði Hermann Jónas-
son þverskallast við hernámskröfu Bandaríkja-
stjórnar, uns morð-hótunin: að svelta þjóðina,
— barst.
3 Hermann Jónasson krafðist þess að loforðið um
herleysið yrði sett inn í „Nato-samninginn“ 1949
og sat hjá við atkvæðagreiðsluna, er því var neit-
að. Sósíalistar o.fl. greiddu atkvæði gegn.
4 Um alla sögu þessa máls er fjallað í bókinni „fs-
land í skugga heimsvaldastefnunnar" einkum á
bls. 199-367.
75