Réttur - 01.04.1987, Page 30
venda okkar kvæði í kross, nálgast morð-
ið á Palme úr gagnstæðri átt og spyrja
þeirrar spurningar sem eðlilegt er að
spyrja þegar morðrannsókn hefst: Hver
vildi Palme feigan? Lykilinn að svarinu
við þessari spurningu hlýtur að vera að
finna í þeirri staðreynd að Palme var
áhrifamikill og umdeildur stjórnmála-
maður bæði heimafyrir en einkum á al-
þjóðavettvangi.
Heimafyrir
Þó að Palme væri ekki róttækur í
sænskum innanríkismálum og væri í for-
sæti fyrir kratastjórn sem rekur ekki
beinlínis verkalýðsvingjarnlega efnahags-
stefnu, þá fór hann mikið í taugarnar á
sænskum hægrimönnum. Hann var víg-
fimur og hæðinn í rökræðum, dró þá
sundur og saman og átti engan verðugan
andstæðing meðal sænskra stjórnmála-
manna. Hann hafði heilbrigða og sjálf-
stæða afstöðu í mörgum málum, t.d. tók
hann aldrei mark á kafbátasjónleiknum
síendurtekna og vændu sumir sænskir
generálar hann jafnvel um föðurlands-
svik.
Afturhaldið gerði hann að sérlegum
allsherjarandskota. Sem dæmi má nefna
að sænskir heimdellingar og vökustaurar
(æskulýðs- og stúdentasamtök Hægri-
flokksins, Moderaterna) lögðu út línuna
frá generálunum og skömmu fyrir morðið
gáfu þeir út níðmyndir af honum og
dreifðu lygum um einkalíf hans. Hægri-
öfgasamtökin Evrópski verkamannaflokk-
urinn, EAP, (eins og klisjan „evrópski"
bendir til er hér um að ræða útibú frá
bandarískum samtökum, Ameríska
verkamannaflokknum, en forsprakki
þeirra samtaka, LaRouche, hefur oft lýst
því yfir að Palme væri svikari við málstað
Bandaríkjanna og því ætti að skjóta
78
Þessi auglýsing um skotspjald með mynd af Palme
er tekin úr sölubæklingi frá hægriöfgatímaritinu
Contra.
„íbúum Svíþjóðar er stýrt af brjálæðingi, geðveik-
um morðingja sem kemur fram úr napri vetrarnótt-
inni og læðist að fórnardýrinu með öxina reidda til
höggs,“ segir í blaði hægriklíkunnar EAP. Myndin
er af veggspjaldi frá sömu samtökum.
Piltavla
PiUavlan betsár av ett set med en bastavla och fyra utbyt-
bara máltavlor. Tvá máltavlor förcstiiller Olof Palme, en
vardera Konstantin Tjemenko och Fidei Castro. Setet
inneháller ocksá tre pilar. Ett komplett sct kostar49:*. Det
gár bra att komplcttcra med m<avlor, fyra máltavlor
kostar 10:*.