Réttur - 01.04.1987, Síða 42
cftir háttsettum manni hjá lögreglunni.
Nú hefur lögreglumaður loksins haft sam-
band við Ijósmyndarann frá Dagens Ny-
heter. „Hann baðst afsökunar á því að
þetta hefði dregist svona lengi,“ segir
Ijósmyndarinn, „og skýrði töfina með því
að þeir hefðu verið að finna upplýsingarnar
frá mér í kassa. Þetta er nú ekki heil-
brigt.“ Per-Erik Nilsson, formaður lög-
fræðinganefndar þeirrar sem nú hefur
morðrannsókn lögreglunnar til athugun-
ar, segir: „Þetta kemur mér ekkert sér-
staklega á óvart. Þetta er alvarlegt mál,
— það er ákaflega mikilvægt að upplýs-
ingum sé ekki laumað undan.“)
Að leggja saman tvo og tvo
Hér að ofan hefur verið raðað niður
ýmsum staöreyndabrotum sem annað-
hvort eru á flestra vitoröi eða hafa komið
fram í einhverri mynd í sænsku pressunni,
en hún hefur meðhöndlað morðið á
Palme annarsvegar sem feimnismál og
hinsvegar eins og hverja aðra æsifregn
sem nota má með nokkurra daga millibili
til að auka lausasöluna. Þetta sambland
af tæpitungu og glundroða hefur gert það
að verkum að þetta mál allt hefur tekið á
sig draugalega mynd í hugum sænsks al-
mennings. Hér hefur verið gerð tilraun til
að raða staðreyndabrotunum upp í heil-
lega mynd og er hún í fáum orðum
þannig:
Palme þvældist fyrir Bandaríkjunum á
alþjóðavettvangi, þau litu á hann sem al-
varlegan sundrara og áhrifamikinn and-
stæðing hernaðarstefnu sinnar. í Banda-
ríkjunum eru pólitísk morð „eðlilegur“
þáttur stjórnmálalífsins og bandaríska
leyniþjónustan CIA er alræmd fyrir póli-
tísk morð (sjá greinar þar um hér fyrir
aftan). Heimssamtök andkommúnista
WACL er eitt af verkfærum CIA. Hægri-
Eftirinaður Palme, Ingvar Carlsson, er ■
náitinni í Bandaríkjunuin. Hann er fyrsti
sænski forsætisráðherrann í 26 ár sem hcf-
ur verið boöiö í opinbera heimsókn til
Bandaríkjanna.
öfgamenn í Svíþjóð beinlínis hötuðu
Palme, þá er m.a. að finna í Svíþjóðar-
deild WACL og lögreglunni.
Palme hafði með skömmum fyrirvara
beðist undan fylgd lífvarða kvöldið sem
hann var myrtur, um það gat aðeins fólk
með tengsl í lögreglunni og leyniþjónust-
unni vitað. Hægri öfgamenn úr lögregl-
unni voru á undarlegu stjákli nálægt
morðstaðnum um það leyti sem morðið
var framið, einnig sást til lögreglubíla
90