Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 76
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
1+7=1
FJÖLMENNI var við opnun nýrrar verslunar JHM
sport á Stórhöfða 35 í gærkvöldi þar sem boðið var
upp á sýningu Bretans Steve Colley á klifurhjóli.
Lögð var braut fyrir kappann, sem heimsfrægur er
fyrir leikni sína í íþróttinni, og olli hann áhorf-
endum ekki vonbrigðum. Einnig var boðið upp á
sýningu á stökkum og reykspólskeppni á sérstökum
bifhjólum ásamt því sem kynntar voru nýjar vörur
hjá JHM, s.s. 2006 árgerðir af GasGas- og TM-
hjólum.
Morgunblaðið/Sverrir
Listir leiknar á klifurhjóli
VÍSITALA neysluverðs í mars er
252,3 stig og hækkaði um 1,12% frá
fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði
hefur verðbólga samkvæmt mælingu
Hagstofunnar verið 4,5%. Verðbólg-
an er því töluvert yfir 2,5% verð-
bólgumarkmiði Seðlabanka Íslands
og hefur verið svo í rúm tvö ár. Þá er
verðbólgan yfir efri vikmörkum
verðbólgumarkmiðsins sjöunda
mánuðinn í röð. Á fréttavef ASÍ segir
að þessi staða hljóti að vekja spurn-
ingar um efnahagsstjórnina og hvort
það geti talist viðunandi árangur í
stjórn efnahagsmála að verðbólga sé
yfir verðbólgumarkmiði 25 mánuði í
röð og verðbólguhorfur dökkar.
Á fréttavef Alþýðusambands Ís-
lands segir að aukin verðbólga nú
skýrist að stærstum hluta af því að
útsölum á fötum og skóm er nú lokið
og hækkar sá liður vísitölunnar um
16,9%. Húsnæðisliður vísitölunnar
hækkar einnig nokkuð eða um tæpt
prósent. Að auki hækka ýmsir vöru-
og þjónustuliðir í vísitölunni.
Þá segir ASÍ að margt bendi því til
þess að undirliggjandi verðbólgu-
þrýstingur sé að aukast, og tekur
greiningardeild KB banka í sama
streng í umfjöllun sinni. Veiking
krónunnar að undanförnu muni geta
haft áhrif til hækkunar á verðbólgu á
næstunni.
Næsti vaxtaákvörðunardagur
Seðlabankans er 30. mars og telur
ASÍ að líkur hafi aukist á því að
bankinn tilkynni um meiri vaxta-
hækkanir en áður hefur verið búist
við.
Hagstofan segir verðbólgu síðustu tólf mánaða mælast 4,5%
ASÍ segir verð-
bólguhorfur dökkar
Verðbólgan | 22
BÆNDUR á Suðurlandi eru byrj-
aðir að plægja kornakra sína og
undirbúa jarðveginn fyrir korn-
sáningu í næsta mánuði.
„Við vorum bara að bíða eftir
því að klakinn færi úr jörðu, en við
erum býsna snemma á ferð í ár,“
segir Þórarinn Ólafsson, sem í
gær var að plægja akra foreldra
sinna í Drangshlíð II undir
Eyjafjöllum.
Var hann þar í slagtogi með fé-
lögum sínum af næstu bæjum, en
alls voru þeir að plægja á bilinu
26–35 hektara fyrir Drangshlíð og
notuðu til þess þrjár dráttarvélar
með samtals fjórtán plógskerum.
„Hér hefur löngum verið vagga
kornræktar á Íslandi,“ sagði Þór-
arinn, en í nágrenni við Drangs-
hlíð eru t.d. bæirnir Önundarhorn,
Þorvaldseyri og Raufarfell, en
korn hefur verið ræktað á þessum
bæjum sl. tuttugu til þrjátíu ár,
lengst á Þorvaldseyri.
Þótt Þórarinn og félagar hafi
verið að plægja nú verður ekki sáð
í akrana fyrr en um miðjan næsta
mánuð, en í millitíðinni þarf að
bera skeljasand á akrana til þess
að tryggja að í jarðveginum hald-
ist rétt næringarefni.
Kornakrar undir
Eyjafjöllum plægðir
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
HAGNAÐUR FL Group-samstæð-
unnar fyrir skatta árið 2005 var rúm-
ir 20,5 milljarðar króna samanborið
við rúmlega 4,3 milljarða króna
hagnað árið áður. Að teknu tilliti til
skatta var hagnaður tímabilsins tæp-
ir 17,3 milljarðar króna, samanborið
við tæpa 3,6 milljarða króna árið áð-
ur. Arðsemi eigin fjár nam 55,2% á
tímabilinu. Hagnaður af fjárfest-
ingastarfsemi nam rétt rúmum 15,4
milljörðum króna, en hagnaður af
flugrekstri og ferðaþjónustu nam
rúmum 1,8 milljörðum.
Afkoma fyrirtækisins er í sam-
ræmi við spár greiningardeilda Ís-
landsbanka og Landsbanka, en
nokkuð yfir væntingum greiningar-
deildar KB banka, sem spáði um 16,3
milljarða króna hagnaði.
Lagt er til við aðalfund FL Group
sem haldinn verður 21. mars nk. að
greiddur verði 35% af hagnaði fé-
lagsins í arð eða 6.038 milljónir
króna.
FL Group
skilar 17,3
milljarða
hagnaði
Afkoma | 22
UM næstu helgi verður leikið á
glerhörpu á tónleikum Kammer-
sveitar Reykjavíkur – í fyrsta sinn
hér á landi að því er best er vitað.
Glerharpan var vinsælt hljóðfæri á
öldum áður og jafnvel svo að vitað
er til þess að sú fræga Marie An-
toinette sótti kennslustundir í
glerhörpuleik.
Benjamin Franklin átti þátt í
auknum vinsældum hljóðfærisins
og hannaði nýja útgáfu þess árið
1761. Vinsældirnar dvínuðu þó er
sú kviksaga komst á kreik að fólk
gæti sturlast af slíkri spila-
mennsku.
Á tónleikum Kammersveitar
Reykjavíkur sunnudaginn 19.
mars, mun franskur sérfræðingur í
glerhörpuleik, Thomas Bloch, sýna
listir sínar.
Glerhörpu-
leikur í
fyrsta sinn
hérlendis
Var talin | 67
ÓVENJUMIKIÐ var um hraðakstur
á þjóðvegum landsins í gærdag
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu. Á Norðurlandi voru hátt í
hundrað ökumenn stöðvaðir vegna
hraðaksturs og að sögn lögregl-
unnar á Akureyri virtist sem góð-
viðrið hafi ruglað ökumenn í ríminu
og þeir ekki ráðið við löglegan öku-
hraða. Á Suðurlandi var sömu sögu
að segja en þar vakti mikill hraði
einstakra ökutækja meiri athygli
en fjöldi brota.
Frá því klukkan ellefu í gær-
morgun þar til klukkan sjö í gær-
kvöldi hafði lögreglan á Blönduósi
kært um 50 ökumenn vegna hrað-
aksturs og sá sem greiðast ók var á
130 km hraða. Að sögn lögregl-
unnar á Blönduósi bölvaði sá öku-
maður nýkeyptum radarvara og
sagði sennilega vera örgustu pen-
ingaeyðslu. Undir þessi orð tekur
lögreglan og vill minna ökumenn á
að ódýrast sé að aka á löglegum
hraða.
Illa gengur
að halda
hámarkshraða
♦♦♦
ÖKUMAÐUR og tveir farþegar
jeppabifreiðar voru fluttir á slysa-
deild Landspítala – háskólasjúkra-
húss eftir að bifreið þeirra valt utan
vegar við Gullinbrú í Reykjavík á
áttunda tímanum í gærkvöldi.
Jeppanum var ekið norður Gull-
inbrú og var hann rétt kominn yfir
brúna þegar ökumaður missti
stjórnina og lenti bifreiðin utan veg-
ar, á ljósastaur og valt í kjölfarið.
Fólkið sem allt er á tvítugsaldri
slapp vel miðað við aðstæður og var
útskrifað að loknum rannsóknum á
slysadeild. Bíllinn er talinn mikið
skemmdur og þurfti dráttarbíl til að
flytja hann af vettvangi.
Keyrði á staur
og velti bílnum