Morgunblaðið - 25.03.2006, Page 30
30 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í MARS
Ingibjörg Lilja Didriksdóttir,verkefnisstjóri MBA-námsins við Háskólann íReykjavík, fór í nóv-
emberlok í tíu daga námsferð með
sautján MBA-nemendum úr skól-
anum til Monterrey, þriðju stærstu
borgar Mexíkó.
– Hver voru tildrög ferðarinnar?
„Háskólinn í Reykjavík er í sam-
starfi við EGADE-háskólann í
Monterrey í norðurhluta Mexíkó,
en skóli þessi er hluti af Monterr-
ey Tec-háskólanum. Nemendurnir
völdu að taka alþjóðlegt námskeið
í þjónustustjórnun með tíu mexí-
kóskum nemendum. Þetta er í
þriðja sinn sem farið er út með ís-
lenska nemendur í þessum tilgangi
og í maí er áformuð önnur náms-
ferð með MBA-nema til Boston í
alþjóðlega verkefnisstjórnun í sam-
starfi við Boston University.“
– Hvernig var fluginu háttað?
„Við flugum til New York og
gistum þar eina nótt á útleiðinni.
Komum svo heim í gegnum Dallas
og Boston, gistum aðra nótt þar og
náðum U2 tónleikum um kvöldið
sem voru frábærir.“
– Hvernig var veðrið?
„Það var ótrúlega yndislegt, um
25 stig á daginn og svona 16 gráð-
ur á kvöldin sem er óvenju heitt
miðað við þennan árstíma.“
– Hvað gerðuð þið skemmtilegt
annað en að lesa og læra í
námsferðinni?
„Við fórum í tvær fyrirtækja-
heimsóknir í borginni, annars veg-
ar í tryggingafyrirtæki og hins-
vegar í bjór- og
gosdrykkjaverksmiðju, en borgin
er annars mikil iðnaðar- og há-
skólaborg. Hér áður fyrr var mikið
um alls konar verksmiðjur á þess-
um slóðum, en nú hefur þekking-
ariðnaðurinn mikið til tekið við.
Við skoðuðum skemmtilega mið-
borgina og smökkuðum kiðlinga-
kjöt, sem svæðið er þekkt fyrir og
fólk verður að prófa, eigi það leið
þarna um. Nokkrir úr hópnum
fóru á undanúrslitaleik í mexí-
kósku knattspyrnunni þar sem
heimalið Monterrey Tec lék við og
vann erkifjendurna Tecos frá há-
skólanum í Guadalajara. Við fórum
líka á lítinn búgarð rétt fyrir utan
borgina þar sem nemendum var
skipt upp í fjögur lið, sem áttu að
setja upp mexíkóskan veitingastað
og keppa sín á milli um besta stað-
inn og besta matinn. Íslendingar
geta án efa lært heilmikið um
þjónustustjórnun af heimamönnum
enda var öll þjónusta til fyr-
irmyndar.“
HVAÐAN ERTU AÐ KOMA?
Borðuðu kiðlingakjöt í Monterrey
Ingibjörg Lilja Diðriksdóttir ásamt mexíkóskum nemanda. Íslensku gestirnir tóku lagið með mexíkóskri Mariachi-hljómsveit.
join@mbl.is
Monterrey er þriðja stærsta borg Mexíkó. Ingibjörg Lilja
Didriksdóttir skrapp þangað með sautján nemendum úr
Háskólanum í Reykjavík í nóvember síðastliðnum.
FARSÍMINN er alltaf við höndina
og þegar laus stund gefst er gott að
nýta tímann til að læra eins og eitt
nýtt tungumál í gegnum símann. Á
vef Aftenposten er greint frá því að
fyrirtækið A.R.M. Lingua hafi nú
TÆKNI sett á markað tungumála-
námskeið í gegnum farsíma
en það sem til þarf er Java-
forrit, svipað því sem notað er
fyrir leiki í símann. Tungu-
málanámskeiðið er með hefð-
bundnu sniði, þ.e. nemendurnir
hlusta og herma og læra orð og mál-
fræði. Hægt er að velja um mörg
tungumál og svo þarf að hlaða niður
köflunum einum og einum. Kostnaðurinn
er settur á símareikninginn og samsvarar
um 300 íslenskum krónum fyrir hvern kafla.
Farsíminn þarf að vera búinn upptökutæki
því stór hluti námsins er að herma eftir fram-
burði og hlusta á sjálfan sig.
Tungumálanámskeið í farsímanum
Fréttasíminn
904 1100
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
Afgreiðslugjöld á flugvöllum.
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og
minibus, 9 manna, og rútur með/án
bílstjóra.
Höfum bíla með dráttarkrók og smárútur,
allt að 14 manna. Smárútur fyrir
hjólastóla.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum
stærðum - frá 2ja manna og upp í 30
manna hallir. Valið beint af heimasíðu
minni. - Þið takið húsið frá í 3 daga án
greiðslu og við staðfestum síðan og
sendum samning og greiðsluseðla. Einnig
má greiða með greiðslukorti.
LALANDIA
Útvegum sumarhús í Lalandia, einhverju
skemmtilegasta orlofshverfi Danmerkur.
Lágmarksleiga 2 dagar.
Húsbílar, hjólhýsi fyrir VM 2006
Höfum nokkra húsbíla fyrir VM 2006 í
Þýskalandi til afgreiðslu frá Kaupmanna-
höfn og Flensborg. Getum útvegað
hjólhýsi og bíla með dráttarkrók.
Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu;
www.fylkir.is
Fylkir.is ferðaskrifstofa
sími 456 3745
Eina ferðaskrifstofan á Vestfjörðum sem
ekki nýtur styrkja frá opinberum aðilum
Bílaleigubílar
Sumarhús í
Danmörku
Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
ÍT ferðir - Sími 588 9900 - www.itferdir.is
Færð þú Mastercard
ferðaávísun?
SKELLTU ÞÉR Í SÓLINA 1.-8. apríl
Beint flug til Alicante á Spáni.
Brottför kl. 09:00, lent 15:25.
Heimflug kl. 11:00, lent kl. 13:40
Gisting: Benidorm, Alfaz del Pi og La Manga
* Flugsæti: 29.900,- m. flugv.sk.
Takmarkaður sætafjöldi - Bókaðu strax!