Morgunblaðið - 20.05.2006, Page 6
6 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Afmælisblað - 2006 Ókeypis eintak
Sjáið myndirnar!
Samúel Örn og
Ásta B.:
ÓLÉTT OG
ÁNÆGÐ!
Hildur Vala
og Jón Ólafs:
GIFTU SIG ÓVÆNT!
Annþór Karlsson,
handrukkari:
Einar Bárðar o
g Áslaug:
ÁSTFANGINN
Á HRAUNINU!
BARNIÐ KOMIÐ
Í HEIMINN!
Kolfinna
Baldvins:
KÁT Í KOSOVO
SKILIN!
NASA-hjónin:
Bara í
NÝTT
PAR!
EINTAKIÐ
ÞITT!
ÁRA Á ÞESSU ÁRI10
Sérstök afmælisútgáfa
SÉÐ OG HEYRT fylgir
Morgunblaðinu á
sunnudaginn.
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit
Moussaieff forsetafrú tóku í gær við umfangsmiklu lista-
verki, sem grunnskólanemendur úr Álftanesskóla og frá
Norður-Írlandi hafa sett upp norðan við heimreiðina að
Bessastöðum. Verkið er afhent á árlegum Margæsadegi
og verður til sýnis næstu tvær vikur.
Verkið vann írski listamaðurinn Jim Russel í sam-
vinnu við Álftanesskóla, norður-írska skóla og Wildfowl
and Wetlands Trust á Norður-Írlandi en verkið er byggt
á fjölmörgum myndum af margæs og er 15 x 23 metrar
að umfangi.
Allir nemendur í Álftanesskóla helguðu margæsinni
krafta sína í gær og nemendur í 7. bekk vinna að upp-
setningu verksins í samvinnu við nemendur úr Nerdrum
College frá Norður-Írlandi sem hér eru í heimsókn
ásamt kennurum sínum.
Morgunblaðið/Ásdís
Ólafur Ragnar og Dorrit voru ánægð með verk sem nemendur í Álftanesskóla og frá Norður-Írlandi unnu.
Listaverk helgað margæsinni
MARGÆSIN kemur hingað til
lands snemma á vorin og dvelur
hér í um það bil sex vikur áður en
hún heldur norður á bóginn til
Kanada til að verpa, að sögn
Kristins Hauks Skarphéðinssonar,
fuglafræðings hjá Náttúrufræði-
stofnun Íslands.
„Hún kemur hingað fyrst og
fremst til að fita sig, safna orku
fyrir 3.000 km flug yfir Græn-
landsjökul, sem er gríðarlega erf-
itt og orkufrekt.“ Hann segir að
mikið sé af gæsunum á höfuðborg-
arsvæðinu og þar í kring og hefur
þeim fjölgað þar ár frá ári. Þær
hafist fyrst og fremst við á sjáv-
arfitjum og á túnum þar sem þær
éti gras. Golfvellir séu sérstaklega
vinsælir því þar sé fínasta grasið.
Hjá Náttúrufræðistofnun Ís-
lands hefur síðustu ár verið unnið
að því að merkja gæsirnar með
senditækjum til að hægt sé að
fylgjast með ferðum þeirra í gegn-
um gervihnött.
Þá sér stofnunin einnig um að
taka sýni vegna fuglaflensu að
beiðni Kanadastjórnar.
Kemur
hingað til
lands til
að fita sig
ÁNÆGJA höfuðborgarbúa með
heilsugæslustöðvarnar í sínu hverfi
hefur minnkað talsvert frá því á
síðasta ári. Um 70% aðspurðra
segjast ánægð með heilsugæslu-
stöðina, samanborðið við 85% í
fyrra. Um 6% segjast beinlínis
óánægð með heilsugæsluna í sínu
hverfi.
Þetta kemur fram í könnun sem
Global Consulting Group (GCG)
gerði fyrir Heilsugæsluna í Reykja-
vík í byrjun árs, en niðurstöður
hennar voru gerðar opinberar ný-
lega. Þar kemur fram að ánægjan
með heilsugæslustöðvarnar hefur
einkum minnkað á fjórum stöðum, í
Efra Breiðholti, Grafarvogi, Lág-
múla og Mosfellsbæ. Stöðin í Árbæ
hefur hins vegar bætt sig mest á
milli ára.
Þegar þeir sem tóku þátt í könn-
uninni voru beðnir um að gefa þjón-
ustu á heilsugæslustöðinni í sínu
hverfi einkunn gaf mikill meirihluti,
um 80%, einkunnina 4–5 af 5 mögu-
legum. Um 15% gáfu þjónustunni
einkunnina 3. Áberandi lægsta ein-
kunn fékk heilsugæslustöðin í Graf-
arvogi, 38% gáfu henni einkunnina
4–5, og lækkar hlutfallið um 47 pró-
sentustig frá því í fyrra þegar 85%
gáfu einkunnina 4–5. Einnig reynd-
ist hlutfall ánægðra lágt í Miðbæ,
þar sem hlutfallið lækkar úr 81% í
67% milli ára, og Fannborg þar
sem það lækkar úr 83% í 68% milli
ára.
Gömul blöð umkvörtunarefni
Þegar fólk var spurt hvað helst
þyrfti að bæta var mest talað um
þörfina á kurteisara og liðlegra fólk
í móttökuna, að bæta þurfi aðgengi
að læknunum og stytta biðtímann.
Einnig var minnst á að móttakan
mætti vera persónulegri, húsnæðið
væri þröngt og gömul blöð á bið-
stofunni.
Könnunin var unnin í janúar og
febrúar sl. fyrir Heilsugæsluna í
Reykjavík. Ekki var um hefð-
bundna spurningakönnun að ræða,
heldur var um að ræða fremur lítið
úrtak, spurt ítarlega og svörum
fylgt eftir. Valdir voru með handa-
hófsaðferð 50 þátttakendur úr hópi
þeirra sem komið höfðu á hverja
einstaka heilsugæslustöð ákveðna
viku, en að auki var hringt í 30 ein-
staklinga á þjónustusvæði hverrar
stöðvar, valda af handahófi.
Ánægja með heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu minnkar
Íbúar vilja kurteisara og
liðlegra fólk í móttökuna
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Til hátíðabrigða býður Þjóðminja-
safn Íslands ókeypis aðgang að
safninu til 31. maí, í tilefni þess að
Þjóðminjasafnið hlaut viðurkenn-
ingu sem eitt besta safn í Evrópu
2006.
Þjóðminjasafn Íslands var eitt
þriggja safna sem fékk sérstaka
viðurkenningu í samkeppni Evr-
ópuráðs safna um safn Evrópu árið
2006. Tilnefninguna hlaut Þjóð-
minjasafnið vegna vel heppnaðar
endurskipulagningar og endur-
sköpunar á sýningum og allri starf-
semi.
Myndin var tekin þegar Margrét
Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður
tók við viðurkenningunni, en við-
stödd voru m.a. konungur og
drottning Spánar.
Ókeypis í Þjóðminja-
safnið 20.–31. maí
MEIRIHLUTI Reykjavíkur-
listans klofnaði í borgarráði við
afgreiðslu á styrk til knatt-
spyrnufélagsins Fram og varð
til nýr meirihluti fulltrúa Sjálf-
stæðisflokks og Alfreðs Þor-
steinssonar, sem samþykkti 25
milljón króna framlag til fé-
lagsins á árinu 2009, til viðbótar
50 milljóna króna framlagi á ár-
unum 2007 og 2008.
Á fundi borgarráðs á
fimmtudag var tillögu Stefáns
Jóns Hafsteins um að vísa er-
indinu til meðferðar við gerð
fjárhagsáætlunar felld með 4
atkvæðum gegn 3. Tillaga Al-
freðs um framlagið var síðan
samþykkt með atkvæði hans og
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Ekki eðlileg hækkun
Fulltrúar Reykjavíkurlistans
bókuðu í framhaldinu að for-
gangsröðun verkefna af hálfu
íþrótta- og tómstundaráðs liggi
fyrir í samþykkt borgarstjórn-
ar á þriggja ára áætlun. „Þar er
gert ráð fyrir 25 mkr. bygging-
arstyrk til Fram árin 2007 og
2008, alls 50 mkr. Engin tillaga
hefur komið frá íþrótta- og
tómstundaráði um aukið fram-
lag. Því er ekki eðlilegt að borg-
arráð, að tillögu einstaks borg-
arráðsfulltrúa, samþykki 50%
hækkun byggingarstyrksins.“
Alfreð Þorsteinsson bókaði í
framhaldinu að borgaryfirvöld
hefðu staðið myndarlega að
stuðningi við framkvæmdir
íþróttafélaganna í Reykjavík
og samþykkt nýlega styrkveit-
ingar til þeirra, sem nemi hátt á
annan milljarð króna. „Við af-
greiðslu málsins í borgarráði
24. apríl sl.var frestað að af-
greiða málefni Knattspyrnu-
félagsins Fram, sem með rök-
studdri greinargerð hafði sýnt
fram á, að tillögur ÍTR nægðu
ekki til að fjármagna fram-
kvæmdir félagsins. Það er því
eðlilegt, að borgarráð sam-
þykki viðbótarframlag til fé-
lagsins.“
Borgarráðsfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins bókuðu síðan
að þeir tækju undir bókun Al-
freðs.
R-listinn
klofnaði við
afgreiðslu
styrks til
Fram
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
fengi átta borgarfulltrúa, Samfylk-
ingin fimm, Vinstri grænir einn og
Frjálslyndir og óháðir einn sam-
kvæmt skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins á fylgi framboðslistanna í Reykja-
vík. Framsóknarflokkurinn næði
ekki inn manni samkvæmt skoðana-
könnuninni.
Frjálslyndir með mann
Könnunin var gerð fimmtudaginn
18. maí. Úrtakið var 600 Reykvíking-
ar, að því er fram kom í Frétta-
blaðinu í gær. Spurt var: „Hvaða lista
myndir þú kjósa ef boðað yrði til
borgarstjórnarkosninga nú? Alls 67,7
prósent tóku afstöðu til spurningar-
innar.
Samkvæmt könnuninni fengi Sjálf-
stæðisflokkurinn 49,3% atkvæða,
Samfylkingin 29,8% atkvæða, Vinstri
grænir 9,1% atkvæða, Frjálslyndir
og óháðir 7,9% atkvæða og Fram-
sóknarflokkurinn 3,9% atkvæða.
Fylgi flokkanna
í Reykjavík
B-listinn
einn næði ekki
inn manni