Morgunblaðið - 08.06.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 154. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Á ferðalagi
hugans
Fiðlukonsert eftir Áskel Másson
frumfluttur | Menning
Viðskipti | Frumskógur regluverks grisjaður Beðið eftir
sláturtíð Fjármálaráðherra og dýravinur Íþróttir | Logi
Geirsson úr leik Rooney með á HM Lokaúrslit NBA
Viðskipti og Íþróttir í dag
ÞAÐ var mikið um dýrðir í Perlunni í gærkvöldi
þegar gestir á leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins hitt-
ust og snæddu saman kvöldverð. Alls voru um 150
manns í kvöldverðinum og á myndinni má sjá þá
Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, Hall-
dór Ásgrímsson og Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, sitja saman.
Hinn eiginlegi leiðtogafundur ráðsins hefst
klukkan níu í dag á Hótel Nordica og lýkur á há-
degi.
Alls eiga ellefu ríki aðild að Eystrasaltsráðinu
auk þess sem Evrópusambandið tekur þátt í fund-
inum. Forsætisráðherrar átta aðildarríkja eru hér á
landi vegna fundarins og utanríkisráðherrar
tveggja ríkja, Þýskalands og Litháen. Ráðherrunum
fylgja sendinefndir frá hverju ríki.
Flestir ráðherranna fara heim að loknum leið-
togafundinum í dag en Mikhail Y. Fradkov, for-
sætisráðherra Rússlands, og Halldór Ásgrímsson
munu ræða saman í Ráðherrabústaðnum í dag.
Fradkov mun að loknum viðræðum við Halldór
heimsækja forseta Íslands á Bessastöðum. | 10
Morgunblaðið/Jim Smart
Ráðherrar snæða í Perlunni
DR. HÁKON Hákonarson,
sérfræðingur í lungnalækn-
ingum, stýrir á næstu þrem-
ur til fimm árum mikilli
erfðafræðirannsókn við
Barnaháskólasjúkrahúsið í
Fíladelfíu í Bandaríkjunum.
Rannsóknin nær til 150–200
þúsund barna og hefur það
markmið að hægt verði að
greina sjúkdóma í börnum
fyrr en nú er unnt, að því er
fram kemur í viðtali við Há-
kon í Morgunblaðinu í dag.
Hann segir gríðarleg
tækifæri felast í rannsókn-
inni og að beitt verði afar
fullkominni tækni við að
greina erfðamengi þeirra
barna sem taka þátt í henni.
Hákon gegnir stöðu fram-
kvæmdastjóra erfðafræði-
miðstöðvar við Barnahá-
skólasjúkrahúsið. Hann
áætlar að verkefnið muni
kosta eina 5–7 milljarða ís-
lenskra króna og að alls
komi um 250 vísindamenn að
því á einhvern hátt.
Á þriðja tug starfsmanna
mun vinna við að taka blóð-
sýni og arfgerðargreina þau
og segir Hákon að sá mikli
fjöldi blóðsýna sem tekinn
verður í verkefninu sé nauð-
synlegur til að ná til flestra
algengra sjúkdóma.
Til skoðunar verða sér-
staklega sjúkdómar á borð
við astma, ofnæmi, krabba-
mein og erfðafræðilegar or-
sakir offitu. | 6
Stýrir rann-
sókn sem
nær til 150–
200 þúsund
barna
SERGEI Lavrov, utanríkisráð-
herra Rússlands, segir að ef Úkr-
aína og Georgía gangi í Atlants-
hafsbandalagið, NATO, verði það
til marks um
„gríðarleg póli-
tísk umskipti“ í
austurhluta
Evrópu og
Rússar yrðu að
bregðast við
með ákveðnum
ráðstöfunum til
að tryggja ör-
yggi sitt.
Úkraína og
Georgía voru sovétlýðveldi fram til
1991 þegar Sovétríkin leystust upp,
fyrrnefnda landið hafði þá verið í
ríkjasambandi við Rússland sam-
fleytt í nokkrar aldir ef undanskilið
er stutt tímabil um 1920.
„Við metum allar afleiðingarnar
fyrst og fremst með þjóðarhags-
muni Rússa í huga,“ sagði í yfirlýs-
ingu Lavrovs á þingi landsins í gær.
Rússneska þingið samþykkti sama
dag yfirlýsingu þar sem áhyggjum
er lýst af umsókn Úkraínumanna
um aðild að NATO og sagt að aðild
brjóti gegn samstarfssamningi sem
ríkin tvö gerðu 1997. Ef Úkraína
gengi í NATO myndi það hafa „nei-
kvæð áhrif“ á öll samskipti þjóð-
anna, sagði í yfirlýsingunni, en
samt var tekið fram að um tvær
„bræðraþjóðir“ væri að ræða, að
sögn AFP-fréttastofunnar.
Lavrov notaði einnig tækifærið
til að ráðast harkalega á stefnu
Bandaríkjamanna og sagði þá
draga lappirnar í afvopnunarmál-
um. Sagði hann áætlanir þeirra um
að setja hefðbundnar sprengjur í
langdrægar eldflaugar í stað kjarn-
orkuvopnanna og hugmyndir um að
smíða litlar kjarnorkusprengjur
grafa undan hnattrænum tilraun-
um til að hamla gegn útbreiðslu
hættulegra vopna.
Saka Bandaríkjamenn
um tvöfalt siðgæði
Þriðja atlagan gegn Vesturveld-
unum kom frá Nikolaj Patrúsjev,
yfirmanni öryggislögreglunnar
FSB sem er arftaki KGB. Sakaði
hann Bandaríkjamenn um tvöfalt
siðgæði í baráttu þeirra gegn
hermdarverkamönnum og minnti á
gagnrýnina sem þeir hefðu sætt
vegna Guantanamo-fangabúðanna
og ýmissa atburða í Írak. Auk þess
sagði hann þá skjóta skjólshúsi yfir
hryðjuverkamenn frá Tétsníu.
Pavel Felgenhauer, sjálfstætt
starfandi sérfræðingur í varnar-
málum í Rússlandi, sagði yfirlýs-
ingarnar sýna að ráðamenn í
Moskvu ætluðu að leggja sig fram
um að hindra frekari útþenslu
NATO til austurs.
Meirihluti vill Pútín áfram
Flestir Rússar myndu styðja
breytingar á stjórnarskrá landsins
þannig að Vladímír Pútín forseti
gæti boðið sig fram þriðja kjörtíma-
bilið í röð í kosningunum 2008, en
samkvæmt núverandi stjórnarskrá
getur forseti landsins aðeins setið í
tvö kjörtímabil. Þetta kom fram í
könnun Levada-stofnunarinnar
sem birt var í gær en þar sögðust
59% aðspurðra styðja hugmyndina.
Er það aukning um 18% frá því í
ágúst á liðnu ári.
Rússar vara eindregið
við útþenslu NATO
Sergei Lavrov
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Washington. AFP. | Alþjóðagjaldeyrissjóður-
inn (IMF) hvatti í gær bandarísk stjórnvöld
til að draga úr halla á ríkissjóði og afla meiri
tekna með því að leggja nýja skatta á neyslu
almennings.
Stjórnvöld í Washington hafa það á stefnu-
skrá sinni að helminga hallann á ríkissjóði
fyrir árið 2009, en talsmenn IMF telja að þau
hafi ekki gripið til nógu róttækra aðgerða til
að draga úr hallanum. Þá sögðu talsmenn
sjóðsins að Bandaríkjamenn þyrftu að auka
sparnað sinn, m.a. til að stuðla að auknu jafn-
vægi í heimsbúskapnum.
Leggur til
nýja skatta
♦♦♦
Washington. AP, AFP. | Öldungadeild Banda-
ríkjaþings felldi í gær tillögu um stjórnar-
skrárbreytingu sem fól í sér bann við hjóna-
böndum samkynhneigðra. Atkvæði fóru á
þann veg að 49 þingmenn voru fylgjandi
banninu og 48 andvígir, en tvo þriðju hluta
atkvæða, eða 60, þurfti til að tillagan fengist
samþykkt.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
studdi frumvarpið ákaft sem og íhaldssamir
kristilegir hópar. Forsetinn var vonsvikinn
þegar niðurstaðan lá fyrir, en sagði hana
„upphafið að nýjum kafla í þessari deilu
þjóðarinnar“. Gagnrýnendur Bush segja
hann hins vegar vera að reyna að draga at-
hygli frá vandamálunum í Írak og treysta
sig í sessi hjá kjósendum Repúblikana-
flokksins fyrir þingkosningar í nóvember.
Bush var vonsvikinn með niðurstöðuna.
Hjónabönd samkynhneigðra
Tillaga um
bann felld
SAMSKIP hafa opnað tvær söluskrifstofur
í Suður-Ameríku þar sem megináherslan er
lögð á flutningsþjónustu við ávaxta- og
grænmetisframleiðendur. Beita á nýrri
geymslutækni í gámaflutningum sem ætlað
er að tryggja gæði og ferskleika vörunnar.
Stefnt er að því að opna fleiri skrifstofur í
álfunni á næstunni en alls eru Samskip nú
með 59 skrifstofur í fjórum heimsálfum.
Nýju skrifstofurnar eru báðar staðsettar
í Brasilíu, í borgunum Salvador og Petrol-
ina. Skrifstofan í Salvador mun sinna
stækkandi ávaxta- og grænmetismarkaði
innan álfunnar, þar sem boðið er upp á kæli-
og frystiflutningaþjónustu. Skrifstofan í
Petrolina mun einbeita sér að hitastýrðum
gámaflutningum milli heimsálfa.
Einar Þór Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri frysti- og kæliflutningasviðs Sam-
skipa, segir Brasilíu vera einn stærsta
markað heims fyrir hitastýrða flutninga.
Opnun skrifstofanna sé enn eitt skref Sam-
skipa í þá átt að bjóða fyrsta flokks þjón-
ustu um allan heim. | B10
Samskip til
S-Ameríku