Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HINN 2. febrúar sl, gerðu forysta KÍ og menntamálaráðherra með sér svokallað 10 punkta samkomulag. Samkomulag þetta var – af ein- hverjum óskiljanlegum og óút- skýrðum ástæðum – unnið af slíkri leynd af forystu KÍ að almennir félagsmenn vissu ekki af undirbún- ingi þess eða tilurð, uns það kom sem blaut tuska framan í þá, dag- inn sem það var und- irritað. Þótti stórum hópi framhaldsskóla- kennara einsýnt að með 3. grein sam- komulagsins væri for- ysta KÍ að nota fyr- irhugaða skerðingu náms til stúdentsprófs sem skiptimynt í samningum við ráðuneytið fyrir önnur hagsmunamál sín, en mán- uðina fyrir undirritun sam- komulagsins hafði staðið yfir hat- römm barátta hjá breiðum grasrótarhópi framhaldsskólakenn- ara gegn skerðingu náms til stúd- entsprófs, og í þeirri baráttu hafði forysta KÍ staðið einkennilega þögul og nær algjörlega óvirk. Strax í febrúar sl. var á það bent að með samkomulaginu væri ryki slegið í augu almennings, svo að liti út eins og baráttu kennara gegn skerðing- unni væri lokið og að mennta- málaráðherra hefði meðbyr stétt- arinnar til skerðingaráforma sinna. En það var í raun bara fámenn for- ystuklíka KÍ sem gekk til samstarfs við ráðherra, í óþökk meirihluta grunn- og framhaldsskólakennara, leyfi ég mér að fullyrða, eins og sést á því að margir tugir kennara hafa ritað greinar gegn skerðingu náms til stúdentsprófs, en vart nokkur úr þeirra röðum mælt slíkri skerðingu bót, ef undan eru skildir tveir eða þrír aðstoðarskólameistarar á framabraut, enda hefur uppmiga við yfirvaldið löngum verið vís leið til metorða. Hvað um það, í kjölfar undirrit- unar 10 punkta samkomulagsins var skipuð verkefnisstjórn, sem í sitja 2 fulltrúar forystu KÍ og 2 fulltrúar menntamálaráðuneytis. Þessi verk- efnisstjórn sendi frá sér greinargerð um störf sín 25. apríl sl. Og hverju hefur nú verkefnisstjórnin áorkað? Jú, unnið er að því, í anda skrifræð- is, að skipa starfshópa og nefndir um hin ýmsu málefni, m.a. um breytta námsskipan, um almenna námsbraut og um starfsmannamál framhaldsskólanna, svo að dæmi séu tekin. Í slíka kerfisþjónkun er mestu púðri áð- urnefndrar grein- argerðar eytt. En dokum við. Ef greinargerðin er grannt skoðuð, má lesa úr henni að fulltrúar verkefnisstjórnar hafa komið sér saman um styttingu náms til stúd- entsprófs úr 4 árum í 3 ár. Varla er hægt að skilja á annan veg eft- irfarandi orðalag: „Hlutverk starfshóps- ins [um breytta nám- skipan] verður einnig að fjalla um einingafjölda og inntak stúdents- prófs á öllum stúdentsbrautum sem rúmast innan þriggja ára viðmið- unarramma á framhaldsskólastigi.“ Hér hefur forysta KÍ viðurkennt að viðmiðunarrammi fyrir stúdentspróf skuli vera 3 ár m.ö.o. skerðingin er samþykkt. Á því er svo hnykkt síðar í greinargerðinni: „Jafnframt er unnið að kröftugum stuðnings- aðgerðum við breytta námsskipan til stúdentsprófs frá grunnskóla til loka framhaldsskóla úr 14 árum í 13…“ Þarna er loks kominn rýting- urinn, sem forysta KÍ rak í bak þeim sem berjast gegn skerðingu framhaldsskólamenntunar í landinu: Samstarf við ráðuneytið um skerð- inguna. Sú fyrirætlun forystu KÍ, að fallast á skerðingu náms til stúd- entsprófs, gengur algjörlega í ber- högg við áskorun 3. þings Kenn- arasambands Íslands til ráðherra um að falla frá skerðingaráform- unum. Það er í samræmi við fram- komu forystu KÍ, að hafa vilja um- bjóðenda sinna að engu. Einhverra hluta vegna ætlar verkefnisstjórnin að standa fyrir stofnun nefndar um starfsmanna- mál framhaldsskólanna. Bíðum nú við. Til hvers í ósköpunum? Er ekki allt í lagi með þau mál í framhalds- skólunum? Þarf sérstaka nefnd um þau? Skipun slíkrar nefndar virðist skorta tilgang. Nema ef málin eru skoðuð í samhengi við skerðing- aráform menntamálaráðherra, en samkvæmt þeim er gert ráð fyrir að yfir 150 framhaldsskólakennarar missi vinnuna. Svo að þar liggur hundurinn grafinn. Þetta eina litla atriði afhjúpar hvernig forysta KÍ hefur fallist á skerðinguna. Eitt atriði tengt 10 punkta sam- komulaginu er ónefnt, en skv. 8. lið þess skal stefnt að eflingu Náms- gagnastofnunar. Nú hefur kvisast út að á teikniborðinu séu frumvarps- drög, sem beinlínis miði að því að draga stórlega úr starfsemi þeirrar stofnunar, ef ekki bara að leggja hana niður. En ekki ætlar forysta KÍ að láta þetta ótvíræða sam- komulagsbrot slá sig út af laginu í samstarfi við ráðuneytið. Lengi má kyssa vöndinn sem flengir. Hvað stendur þá eftir af starfi þessarar svokölluðu verkefn- isstjórnar vegna 10 punkta sam- komulagsins, nú þegar 4 mánuðir eru liðnir frá undirritun þess? Skip- aðar skulu nokkrar mismikilvægar nefndir að hætti kerfiskarla, forysta KÍ hefur, eins og spáð var, fallist á styttingu náms til stúdentsprófs og Námsgagnastofnun skal aflögð. Þetta eru semsagt þau stórskref til eflingar menntunar í landinu, sem forysta KÍ stefndi að með gerð sam- komulagsins. Með 10 punkta samkomulaginu gerði forysta KÍ ráðherra kleift að halda áfram með skerðingaráform sín. Ég skammast mín fyrir að til- heyra nauðugur samtökum, þar sem forystan virðir vilja félagsmanna að vettugi og virðist beinlínis vinna gegn góðri menntun í landinu. Stúdentsprófið selt Helgi Ingólfsson fjallar um samkomulag KÍ og mennta- málaráðuneytis um breytta námsskipan til stúdentsprófs ’Ég skammast mín fyrir að tilheyra nauð- ugur samtökum, þar sem forystan virðir vilja félagsmanna að vettugi og virðist beinlínis vinna gegn góðri menntun í landinu.‘ Helgi Ingólfsson Höfundur er framhaldsskólakennari. MÁLEFNI eldri borgara voru mjög í brennidepli í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Allir stjórnmálaflokkar lofuðu úrbótum í málefnum aldraðra. Nú er eftir að sjá hvernig staðið verður við loforðin. Gefum stjórn- málaflokkunum eitt tækifæri enn Það er aðeins eitt ár til þingkosninga. Marg- ir eldri borgarar og þar á meðal formaður Landssambands eldri borgara hafa sagt, að eldri borgarar ættu að bjóða fram við næstu kosningar ef ekki yrðu gerðar myndarlegar úrbætur í málefnum þeirra. Þetta er mjög athyglisverð hugmynd. Ég tel að gefa eigi stjórnmálaflokkunum eitt tækifæri enn til þess að leysa mál aldraðra. En geri þeir það ekki eigi eldri borgarar að bjóða fram. Tillaga mín er þessi: Samtök aldraðra leggi fyrir stjórnmálaflokkana ákveðnar tillögur um lágmarksaðgerðir í mál- efnum þeirra, þ.e. eftirfarandi: Aðgerðir strax 1. Hvað lífeyrir aldraðra frá al- mannatryggingum þurfi að hækka mikið strax. 2. Hvað mikið þurfi að draga úr tekjutengingum trygg- ingabóta strax (vegna tekna úr lífeyr- issjóði, makatekna og atvinnutekna). 3. Hvaða aðgerðir þurfi að gera strax varðandi ný hjúkrunarrými og nýjar þjónustuíbúðir fyrir aldraða og hvaða aðgerðir þurfi að gera strax til þess að stuðla að því, að aldraðir geti verið sem lengst í heimahúsum (breyt- ingar á íbúðum, lækkun fasteignagjalda aldr- aðra og aukning og samþætting heimaþjón- ustu og heimahjúkr- unar). 4. Hækkun skatt- leysismarka í 130 þúsund krónur á mánuði. Þegar samtök aldraðra hafa ákveð- ið tillögur sínar um lágmarksaðgerðir skulu þær lagðar fyrir stjórn- málaflokkana. Þess verði óskað við stjórnarflokkana að þeir framkvæmi tillögurnar strax eða í síðasta lagi um næstu áramót. Stjórnarandstaðan verði beðin að flytja strax tillögur á Alþingi og í sveitarstjórnum um að- gerðir í málefnum aldraðra í sam- ræmi við framangreindar tillögur. Nauðsyn brýtur lög Ef til vill finnst einhverjum að hér mundi vera gengið fram af of mikilli hörku við stjórnmálaflokkana. En nauðsyn brýtur lög. Það er búið að níðast svo mjög á öldruðum und- anfarin ár að það dugar ekkert minna til leiðréttingar en það sem hér hefur verið tilgreint. Ef ekki verður orðið við kröfum aldraðra þá eiga þeir að bjóða fram. Eiga eldri borgarar að bjóða fram? Björgvin Guðmundsson fjallar um málefni aldraðra ’Margir eldri borgarar og þar á meðal formaður Landssambands eldri borgara hafa sagt, að eldri borgarar ættu að bjóða fram við næstu kosningar ef ekki yrðu gerðar myndarlegar úrbætur í málefnum þeirra. ‘ Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur. Þ að rifjast upp fyrir manni á þessum um- rótstímum í íslensk- um stjórnmálum um- mæli sem Norman Lamont lét falla í breska þinginu daginn sem hann sagði af sér ráð- herradómi í ríkisstjórn Íhalds- flokksins í júní 1993. Lamont, sem hafði orðið fjár- málaráðherra í nóvember 1990 eftir sigur Johns Majors í leið- togakjöri íhaldsmanna, snerist þá gegn vini sínum, forsætisráð- herranum, svo eftir var tekið. Varði hann störf sín sem fjár- málaráðherra – en Lamont hafði sannarlega haft vindinn í fangið – og lét svo þau orð falla að rík- isstjórn Majors hefði þá ímynd að hún „sæti en stjórnaði ekki“ [e. the government gave every im- pression of „being in office, but not in power“]. Nú kann að vera að sjálfstæð- ismönnum finnist þetta ósann- gjarn dómur hvað þá varðar, enda hafa þeir sumpartinn verið áhorfendur að undarlegri at- burðarás liðinna daga eins og við hin. Málið er hins vegar að lýsingin virðist eiga ágætlega við um for- ystumann ríkisstjórnarinnar, Halldór Ásgrímsson. Og eftir höfðinu dansa limirnir. Þau tíðkast nú hin breiðu spjót- in í Framsóknarflokkinum, líkt og Atli bróðir Grettis sagði er hann var veginn forðum. Það blasir við að þriðji for- sætisráðherrann mun senn taka við í þessari ríkisstjórn, og þó hefur hún aðeins verið við völd í þrjú ár. Þessu hefur stjórnarand- staðan auðvitað haldið til haga og notað sem rök fyrir því að rík- isstjórnin sé óstarfhæf og að boða verði til kosninga sem fyrst. Hitt hafa menn ekki rætt sér- staklega, svo mér sé kunnugt um, að um leið og Geir H. Haarde færir sig yfir í forsætisráðuneytið myndast tómarúm í utanrík- isráðuneytinu, sem þarf að fylla. Þetta þýðir að senn tekur við fjórði utanríkisráðherrann á þremur árum! Maður hlýtur að spyrja sig hvaða áhrif þessi tíðu ráðherra- skipti hafi á störf embættismann- anna við Rauðarárstíg. Ég bar það undir Gunnar Helga Kristinsson stjórn- málaprófessor, en hann hefur manna best kynnt sér íslenska stjórnsýslu, hvaða áhrif sífelldar hrókeringar kunni að hafa á störf ráðuneytis. „Stjórnsýslan getur við venjulegar aðstæður auðvitað rekið sig töluvert sjálf. Hún vinn- ur vel þó að ráðherrann sé ekki til staðar,“ svaraði hann. „En hún vinnur auðvitað ekki vissa tegund af verkefnum, sem eru svona póli- tískari verkefni, langtíma- stefnumótun og forgangsröðun og þess háttar hluti. Það er þar sem ráðherrann skiptir töluverðu máli. Það tekur ráðherra tals- verðan tíma að komast inn í mála- flokk og auðvitað er það því slæmt fyrir ráðuneytin að hafa ekki stabíla stjórn. Það blasir al- veg við.“ Kvaðst Gunnar Helgi telja að það hlyti óhjákvæmilega að skapa lausung í stjórnsýslu ef sífellt væri verið að skipta um yf- irstjórnendur. „Almennt séð er þetta mjög óheppilegt. En það er auðvitað ekkert hægt að segja við þessu. Pólitíkin ræðst auðvitað af öðrum hlutum.“ Það var og. Pólitíkin getur sannarlega þvælst fyrir mönnum. Hafa ber í huga í þessu sam- bandi að nú standa yfir erfiðar viðræður við Bandaríkjamenn um framtíð varnarsamstarfs land- anna. Hefur þessum tíðu ráð- herraskiptum verið lýst þannig í mín eyru að gagnvart viðsemj- endum okkar – sem hafa verið allt annað en auðveldir viðfangs, vilja helst bara pakka saman og fara – hafi þau sömu áhrif og ef menn væru sífellt að skjóta sjálfa sig í fótinn. Bandaríkjamönnum finn- ist varla óþægilegt að það sé allt- af einhver nýr í brúnni. Það þýði minni stefnufestu hérna megin; nýr maður þarf auðvitað að taka sér tíma í að lesa sig inn í mál. Sömuleiðis séu ráðherraskiptin óþægileg inn á við; tiltekinn emb- ættismaður hafi kannski verið bú- inn að eyða tíma í að kynna mál fyrir ráðherra, fá það tekið á dag- skrá, t.d. einhvern tæknilegan þátt sem varðar brottför Banda- ríkjahers af landinu. Þegar ráð- herrann sé skyndilega horfinn á braut standi menn eftir í lausu lofti, þurfi að byrja aftur frá grunni (þó skiptir auðvitað máli í þessu samhengi hver kemur næst í ráðuneytið; sumir kandídatar eru kannski betur undir starfið búnir en aðrir). Svona hlutir skipta máli sökum þess sterka ráðherravalds, sem hefur tíðkast í íslenskri stjórn- sýslu. Menn fara sjaldnast af stað með stærri mál nema hafa fengið grænt ljós frá ráðherra. Staðreyndin er síðan sú að mun stærri mál hafa verið til umfjöll- unar í utanríkisráðuneytinu að undanförnu en oftast áður. Af þeim sökum getur skipt máli að ákveðin samfella sé í starfinu, kontinúítet í forystusveitinni. Hitt er svo spurning, hvort framsóknarmenn muni reyna að leysa sín innanbúðarvandamál með því að koma einhverjum óánægðum forystumönnum í sendiherrastörf erlendis, en líkt og fram kemur í nýlegri rannsókn Gunnars Helga (sjá http:// www.stjornmalogstjornsysla.is/ images/stories/fg2006v/ghk.pdf) þá hafa menn verið gjarnir á að skipa pólitískt í þau störf. Eðlilegt er að embættismenn í utanríkisráðuneytinu óttist þenn- an þátt, því hann getur haft áhrif á þeirra eigin möguleika á frama. Augljóst er þess vegna að svipt- ingarnar í utanríkisráðuneytinu geta haft áhrif á starfsandann þar. Eða eins og það var orðað við mig: „Ef menn vilja verða sendi- herra þá er líklega orðið betra fyrir þá að fara á þing.“ Svo mörg voru þau orð. Situr en stjórnar ekki […] um leið og Geir H. Haarde færir sig yfir í forsætisráðuneytið myndast tómarúm í utanríkisráðuneytinu […]. Þetta þýðir að senn tekur við fjórði ut- anríkisráðherrann á þremur árum! BLOGG: davidlogi.blog.is VIÐHORF Davíð Logi Sigurðsson david@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.