Morgunblaðið - 08.06.2006, Síða 33

Morgunblaðið - 08.06.2006, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 33 UMRÆÐAN MEÐ Morgunblaðinu fengum við í hendur aukablað í bláleitum lit sem fjallaði um þorskastríðin. Lesendur sem ekki muna sjálfir þessa tíma og fletta þessu blaði, skoða uppsetningu, fyrirsagnir, myndir af ráðamönnum o.s.frv. hljóta að álykta sem svo að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi unnið aðalsigurinn í landhelgisdeilunum. Til að fá raunsanna mynd af málinu verða lesendur að lesa grein Guðna Th. Jóhann- essonar sem ég vona að sem flestir hafi gert. Þar lýsir Guðni af fullri hlutlægni bar- áttu sem þjóðin háði af einurð undir for- ystu stjórnmálamanna sem þorðu að taka djarfar ákvarðanir. Bak við þá forystu sem á hverj- um tíma stóð í eldlínunni stóð þjóðin. Samstaðan var nánast órofa. Öll fjögur skrefin voru mik- ilvæg. Fjögurra mílna lögsaga með lokun flóa og fjarða var gríðarlega mikilvægt upphaf þar sem sjálf- stæði þjóðarinnar til slíkra athafna hlaut eldskírnina. Þá var Hermann Jónasson forsætisráðherra en Ólaf- ur Thors lék lykilhlutverk. Út- færslan í tólf mílur var ekki síður afar mikilvægur áfangi en þá bar hæst nöfn þeirra Hermanns Jón- assonar og Lúðvíks Jósepssonar. En baráttan fyrir þessum tveimur fyrstu áföngum var þó að sumu leyti auðveldari en það sem á eftir kom vegna góðrar samstöðu sem myndaðist á milli margra strand- þjóða um tólf mílna landhelgi. Og enn í dag tala Íslendingar um sigr- ana í landhelgismálinu. Það stríð vannst með viðurkenningu tólf mílna landhelginnar. Efnahagslögsagan En baráttan hélt áfram og nú fyrir efnahagslögsögu strandþjóða. Sú barátta snerist um að strand- ríki ætluðu í raun að helga sér úthöfin að mati margra öflugra fiskveiðiþjóða. Í þeirri baráttu heltust úr lest stuðningsmanna ýmsir sem ekki áttu sömu hagsmuni og Íslend- ingar af stærri fisk- veiðilögsögu. Útfærslan í fimmtíu mílur var þess vegna afar djörf ákvörðun, eftirleikurinn erfiður og átökin hörð. Aftur var Lúðvík Jósepsson í forystu en nú var það Ólafur Jó- hannesson sem stýrði ríkisstjórn. Sigurinn í þeim áfanga var í raun aðalsigurinn. Þegar það varð ljóst að þjóðir gætu helgað sér fiskveiði- lögsögu utan tólf mílna fór málið að snúast um hver ytri mörk slíkr- ar lögsögu ættu að vera á heims- vísu og fljótlega fóru strandríki að safnast saman um stuðning við tvö hundruð mílna lögsögu. Og enn tóku Íslendingar djarfa ákvörðun. En nú báru ábyrgðina Geir Hall- grímsson og Matthías Bjarnason. Með lokum þeirra hörðu átaka sem þarna fylgdu á eftir má segja að mál hafi verið í aðalatriðum í höfn. Hver af þessum áföngum var mik- ilvægastur? Um það má hafa skiptar skoð- anir en mín er sú að fimmtíu míl- urnar hafi opnað leiðina að loka- markinu. Allir stjórnmálaflokkarnir sem voru á dögum í þessum fjórum stríðum áttu hlut að lokasigrinum. Sjálf- stæðisflokkurinn fylgdi lokasókn- inni fast eftir. Líklega vegna þess að hann átti hvorki þátt í tólf mílna útfærslunni né fimmtíu míl- unum. Þannig tryggði atburðarásin hámarksárangur að mínu mati. Þetta var sigur sameinaðrar þjóðar og djarfra forystumanna en ekki sigur Sjálfstæðisflokksins eins og Morgunblaðið lætur í veðri vaka með bláa blaðinu sínu á dögunum. Svona blaðamennska á aldrei við en þó síst af öllu í landhelgismál- inu. Það var stórvirki sem vannst vegna hetjudáða starfsmanna Landhelgisgæslunnar og vegna þess að forystumenn stjórnmála höfðu einurð og dirfsku til að taka stórar ákvarðanir. En það sem öllu skipti var að þjóðin stóð einhuga að baki þeim. Átökin um auðlindina Jóhann Ársælsson fjallar um þorskastríðin og gerir at- hugasemd við umfjöllun í auka- blaði Morgunblaðsins ’Þetta var sigur samein-aðrar þjóðar og djarfra forystumanna en ekki sigur Sjálfstæðisflokks- ins eins og Morgunblaðið lætur í veðri vaka með bláa blaðinu sínu á dög- unum. ‘ Jóhann Ársælsson Höfundur er alþingismaður. FYRIR svo sem tveimur ára- tugum birtust daglega í Morg- unblaðinu smáklausur undir fyr- irsögninni Gætum tungunnar. Með stuttorðum leiðréttingum var reynt að sporna við málvillum sem skotið höfðu upp kollinum á ýmsum vettvangi. Sumt af ábend- ingun þessum var endurtekið í einhverri mynd, þegar um mjög áleitnar villur var að ræða. Að til- raun þessari stóð félagsskapur sem nefndi sig Áhugasamtök um íslenskt mál. Allar ábendingar höfðu verið bornar undir sérfróða menn um íslenskt mál áður en þær birtust í blaðinu. Til álita kom á sínum tíma, að einhverjar skýringar fylgdu þessum leið- beiningum. Hins vegar þótti miklu varða, að hver klausa yrði fljótlesin og því sem orðfæst og umbúðaminnst. Var talið, að helst þyrfti að fara sem næst þeim bendingum sem íslenskar mæður hafa löngum gefið börnum sínum; enda var tilgangurinn einkum sá að vera til aðstoðar foreldrum og öðrum þeim sem annast uppeldi nýrrar kynslóðar á tímum sem af ýmsum sökum reynast móð- urmálinu viðsjálir. Þáttum þessum var á sínum tíma einstaklega vel tekið. Og nú er ráðgert að verða við óskum fjölmargra og endurtaka þennan leik með líkum hætti og fyrr, og er fyrsti þáttur látinn fylgja þess- um línum. Áhugasamtök um íslenskt mál, Helgi Hálfdanarson ritari. Gætum tungunnar Tveir menn tala hvor um annan. Þrír menn (eða fleiri) tala hver um annan. Allir karlarnir tala hver um annan. Allar konurnar tala hver um aðra. Öll börnin tala hvert um annað. Allt fólkið talar hvað um annað. (Meira á morgun) Dæmi um hefðbundna notkun orða Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.