Morgunblaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 2006 21
DAGLEGT LÍF Í JÚLÍ
Best er að strjúka grillsósu/
kryddlög/marineringu af mat sem
er búinn að vera í marineringu og
henda afganginum af sósunni.
Aldrei má nota kryddlög sem kjöt
er marinerað í sem sósu, þar sem
bakteríur af hráu kjötinu kunna
að lifa í leginum.
Ef notaðar eru sætar grillsósur
er hætta á að þær brenni utan á
matnum. Því er ágætt ráð að
krydda kjöt bara með salti og pip-
ar og pensla svo sætu marinering-
unni á rétt áður en maturinn er
fullgrillaður. Rétt er að hafa í
huga að sojasósa, teriyakisósa og
fleiri austurlenskar sósur eru
mjög saltar og því er best að láta
matinn ekki liggja lengi í þeim, og
algjör óþarfi er að salta kjöt sem
legið hefur í svo söltum kryddlegi.
Það er mjög þægilegt að mar-
inera í plastpoka. Marineringin
dreifist vel um matinn, það þarf
minna af henni og lítil hætta er á
að bragð af marineringunni dreifi
sér um ísskápinn.
Best er að taka kjöt úr kæli
nokkru áður en það er grillað þar
sem það grillast þá jafnar. Ef það
er ískalt er ákveðin hætta á að það
brúnist og grillist að utan áður en
hitinn nær almennilega í gegn.
Fulleldið í gegn allan kjúkling og
annað fuglakjöt, svínakjöt og alla
rétti úr hakki til að forðast mat-
areitranir. Þetta er ekki nauðsyn-
legt með rautt kjöt sem ekki hefur
verið hakkað þar sem það kjöt er
afar sjaldan sýkt. Ófrískar konur
og viðkvæmt eða lasið fólk ætti þó
að grilla allan mat alveg í gegn.
Gott er að pensla olíu á grillið áð-
ur en byrjað er að grilla svo mat-
urinn festist ekki við meðan grill-
að er. Ef maturinn festist engu að
síður er best að bíða smá því mat-
urinn losnar yfirleitt þegar hann
byrjar að eldast. Það er betra en
að rífa matinn lausan af grindinni.
Þegar grillaður er fiskur er mik-
ilvægt að byrja að grilla roðið þar
sem það heldur fiskinum saman,
grilla svo örstutta stund á opnu
hliðinni. Gott getur verið að grilla
fisk á bakka eða í sérstakri grind.
Grillið þarf að vera orðið vel heitt
áður en kjötið er sett á það. Best
er að snúa kjötinu oft og færa það
til á grindinni svo að það grillist
jafnt. Setjið ekki of mikið í einu á
grillgrindina. Kjötið er ekkert
endilega steikt í gegn þótt það sé
farið að brenna að utan.
Hrátt kjöt má aldrei að snerta
mat sem búið er að elda eða salat
eða meðlæti sem ekki á að elda.
Best er að hafa hitann jafnan og
ekki of háan, ágæt regla er að
grilla við 180°C. Ef hitinn á grill-
inu fer yfir 210°C eykst hættan á
að maturinn brenni, grillist ójafnt
og að óæskileg efnasambönd
myndist í kjöti.
Ef valið stendur milli gas- eða ko-
lagrills, er betra að velja gasgrill
því á þeim er auðveldara að
stjórna hitanum.
Látið grillteina úr tré alltaf liggja
í vatni í a.m.k. hálftíma fyrir notk-
un, þá er minni hætta á að kvikni í
þeim.
Góð ráð við grillið
Morgunblaðið/Golli
KANADÍSKA fyrirtækið Solestrom hefur hann-
að bikiní fyrir konur sem hafa áhyggjur af því
að þær fái húðkrabbamein ef þær eru of lengi í
sólbaði.
Í bikiníinu er búnaður sem mælir útfjólubláu
geislunina og varar notandann við þegar hún er
orðin of mikil og tímabært er að hætta sól-
baðinu.
Gert er ráð fyrir því að nýja bikiníið verði
sett á markað í ágúst og kosti sem samsvarar
14.000 krónum. Talsmaður fyrirtækisins segir
að búist sé við mikilli eftirspurn í löndum á borð
við Ástralíu og Suður-Afríku þar sem húð-
krabbamein sé algengt.
Talsmaðurinn tók fram að óhætt væri að nota
bikiníið í sjó og klórblönduðu vatni í sundlaug-
um.
HÖNNUN
Bikiní sem varar
við krabba-
meinshættu
ÁArnarstapa á Snæ-fellsnesi er óvenju-legur en fallegurveitingastaður Arn-
arbær, sem byggður er í stíl
gömlu torfbæjanna. Bærinn er
með tvær burstir, reistur árið
1985 og tekur 55 manns í sæti.
Arnarstapi er með mestu
náttúruperlum Íslands, og fer
þeim sífjölgandi ferðamönn-
unum sem þangað koma. Fjöl-
breyttir gistimöguleikar eru
líka á Arnarstapa, enda boðið
upp á uppábúinn rúm, svefn-
pokapláss, skálagistingu og
tjaldstæði.
Ferðaþjónustan Snjófell sér
síðan um að koma ferðamönn-
um á Snæfellsjökul og hefur
til þess snjósleða og snjótroð-
ara og tekur ferðin að sögn
Tryggva Konráðssonar um
einn klukkutíma.
Í þjóðlegu og vinalegu um-
hverfi Arnarbæjar, sem rek-
inn er af sömu aðilum og Arn-
arstapi, er lögð áhersla á
léttan matseðil, m.a. fiskrétti
sem njóta mikilla vinsælda
meðal gesta. Einu sinni á
sumri er síðan boðið upp á
fiskihlaðborð og var það gert
nú síðast um miðjan júl-
ímánuð. Að sögn Guðrúnar
Tryggvadóttir, eins eigenda
staðarins, var fullt hús er
gestakokkurinn, Bjartmar
Pálmason frá Hótel Holti,
töfraði fram dýrindisrétti úr
fiskmeti.
Bjartmar gaf lesendum
Morgunblaðsins upp eftirfar-
andi uppskrift að fiskrétti.
Skötuselsrúlla
með humri
(fyrir 3)
1 skötuselshali
3–5 humrar
1 msk. smjör
3–4 hvítlauksgeirar
3 timjangreinar
lauksulta:
5 rauðlaukar
20 g af smjöri
½ dl rauðvín
½ dl balsamedik
1 msk. púðursykur
3 timjangreinar
Skötuselurinn er skorinn
langsum og flattur út.
Humrunum komið fyrir á
flakinu og rúllað upp, það
vafið í plastfilmu og látið
sjóða í 5–10 mínútur áður en
það er tekið úr plastinu og
steikt í stutta stund á pönnu
með hvítlauk, timjan og
smjöri. Saltað og piprað eftir
smekk.
Við gerð lauksultunnar er
laukurinn skorinn í smáar
ræmur og léttsteikur upp úr
smjöri, þá er balsamediki og
rauðvíni bætt á pönnuna og
látið sjóða niður þar til vökv-
inn er orðinn að léttum
gljáa. Púðursykrinum því
næst bætt saman við ásamt
timjan. Saltað og piprað eftir
smekk og látið malla á lág-
um hita þar til laukurinn er
tilbúinn.
Borið fram með kart-
öflumús, snöggsteiktu græn-
meti „juillian“ og djúp-
steiktum blaðlauk.
SOÐNINGIN | Snæfellsnes
Skötuselur og humar
Morgunblaðið/Alfons
Á Arnarstapa er veitingastaðurinn Arnarbær sem
byggður er í stíl gömlu torfbæjana.
Bjartmar Pálmason kokkur á Hótel
Holti töfraði fram dýrindis fiskrétti.
Morgunblaðið/Alfons
Skötuselsrúlla með humri.
Aukahlutapakki fylgir með í júlí á meðan birgðir
endast. Upphækkun, heilsársdekk og 16” álfelgur.
Júlípakki: 180.000 kr.
STAÐALBÚNAÐUR: 2.0 lítra - 158 hestöfl,
fjórhjóladrif, hiti í speglum, hraðastillir (PLUS), hiti
í sætum (PLUS), hiti í framrúðu (PLUS), sjálfvirk
loftkæling (PLUS), kastarar í stuðara (PLUS), sóllúga
(LUX), aðgerðastýri (LUX) og leðurinnrétting (LUX).
Jepplingur á verði fólksbíls.
2.590.000 kr.
www.subaru.is
Forester2.590.000,- Forester PLUS2.790.000,- Forester LUX 3.090.000,-
Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00.Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is
Akureyri
461-2960
Njarðvík
421-8808
Höfn í Hornafirði
478-1990
Reyðarfirði
474-1453
Subaru Forester er mun öflugri en margir stærri jeppar
en samt lipur og léttur í akstri líkt og fólksbíll. Forester var
valinn dráttarbíll ársins í Hollandi og hentar því vel fyrir fellihýsi
og tjaldvagna. Í Rússlandi var hann valinn jepplingur ársins
og bíllinn með minnstu bilanatíðnina í Þýskalandi. Á Íslandi er
hann ódýrasti sjálfskipti jepplingurinn á markaðnum í dag.
Umboðsmenn
um land allt