Morgunblaðið - 28.07.2006, Page 27

Morgunblaðið - 28.07.2006, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 2006 27 UMRÆÐAN ÞAÐ er afar óþægilegt að þurfa að fara aftur í gegnum vopnaleit þegar maður kemur á áfangastað. Þegar ég beið eftir flugi til Ís- lands á Arlanda- flugvelli föstudaginn 7. júlí síðastliðinn sá ég að leitað var á öllum far- þegum sem gengu frá borði Íslensku flugvél- arinnar. Ég spurði sænsku öryggisverðina hvers vegna væri leitað á þessum farþegum og svarið var „Svíar hafa gert úttekt á íslenskri öryggisgæslu í Leifs- stöð og komust að þeirri niðurstöðu að örygg- isgæslan væri undir lág- markskröfum Svía“. Þetta er ekkert nýtt og er sama svar sem ég fékk seinast þegar Sví- ar voru með sérstaka vopnaleit á Íslensku ko- mufarþegunum. Seinast þegar ég spurði um þessi mál heima á Ís- landi, þegar aðgerðir Svíanna voru í fullum gangi, var svarið að leit- artæki og aðferðir Ís- lendinga við leit á far- þegum frá Ameríku til Leifsstöðvar hefðu ekki uppfyllt lágmarks- kröfur EU og að það væru á leiðinni ný leit- artæki til landsins og þetta kæmist í lag bráð- lega. Þegar ég fór til baka til Stokkhólms mánudaginn 10. júlí spurði ég eftir yf- irmanni öryggisleitarinnar í Leifsstöð, hvers vegna væri leitað á mér við kom- una til Stokkhólms/Arlanda. Fyrst svaraði hann því til að Svíar væru hættir sérstakri vopnaleit á farþegum frá Íslandi. Hann svaraði einnig að það væri vegna þess að EU samþykkti ekki vopnaleit og öryggismál Banda- ríkjamanna, og í raun er þetta bara stjórnmálalegur ágreiningur. Það var leitað á mér við komuna til Arlanda. Hvers vegna þurfti örygg- isvörðurinn að ljúga að mér? Þessi lygi gerir gerir mig ennþá tortryggnari á sannleiksgildi þeirra upplýsinga, sem eru bornar á borð fyrir almenning. Hin óbeinu skilaboð til flugfarþega sem fljúga með íslenskum flugfélögum er þessi: „Það er hættulegt að fljúga með íslenskum flugfélögum“. Það er hættulegra en ef þú tekur þér far með t.d. SAS. Öryggiskennd flugfarþega er að miklu leyti hugarástand „tilfinning, trú og traust“ og það þýðir ekkert að segja að allt sé í lagi ef flugfarþeginn getur ekki treyst og trúað því sem sagt er. Flugfarþeginn getur ekki sann- reynt hvort öryggið sé í lagi eða ekki og neyðist til að trúa þeim upplýs- ingum sem bornar eru fram. Allt leyni- makk er bara til að grafa undan því trausti sem Íslendingar hafa á íslensk- um flugfélögum. Öryggismál eru því aðallega huglæg fyrir flugfarþegann. Hugsanir eins og þessar komu upp þegar ég fór aftur í gegnum vopnaleit- ina: Var sprengja í flugvélinni sem ég kom með, eða kannski hættulegur flugræningi eða hryðjuverkamenn? Var líf mitt kannski í hættu? Þetta hlýtur að vera mjög alvarlegt þar sem nauðsynlegt er að taka þennan „hættulega“ mann úr umferð, svo hann stofni ekki lífi fjölda fólks í hættu? Íslenskar flug- vélar virðast vera nýleg- ar og ég er minna óróleg- ur yfir ástandi þeirra en ástandi íslenskra flug- öryggismála. Aukavopnaleit er skilaboð um að flug- öryggismál á Íslandi séu ekki í lagi og þar með auknar líkur á að alvöru hryðjuverkarmenn noti Ísland sem aðgangsdyr að Evrópu. Ég sé fyrir mér þrjár ástæður fyrir þessari endurteknu vopnaleit á íslenskum farþegum, þ.e. hreinlega lélega örygg- isgæslu, stjórnmálalegar eða viðskipalegar ástæð- ur. Sem flugfarþegi á ég fulla og óskerta heimt- ingu á að fá svar við eft- irfarandi spurningum. Spurningar er varða flugöryggi mega ekki vera eitthvert leynimakk eins og þjóðin fékk á til- finninguna eftir flug- slysið í Skerjarfirði. 1. Er ástæða vopna- leitar við komu farþega til áfangastaða Evrópu léleg öryggisgæsla í Leifsstöð, sem ekki stenst lágmarkskröfur EU? 2. Eru öll löndin innan EU samstiga um sérstaka vopnaleit á farþegum frá Íslandi? 3. Er einhver munur á vopnaleit á farþegum frá Ameríku og frá Íslandi? 4. Er það satt og rétt, eins og örygg- isvörðurinn í Leifsstöð sagði, að Ísland væri leiksoppur í stjórnmálalegum átökum milli EU og Bandaríkjanna? 5. Hver ber ábyrgð á íslenskum flugöryggismálum og hver verður dreginn til ábyrgðar fyrir ófullnægj- andi ástand flugöryggismála? 6. Er aukin vopnaleit á áfangastað liður í viðskipastríði milli Íslands og Skandinavíu, þar sem reynt er að grafa undan trausti almennings á ís- lensku flugöryggi? Skandinavískir fjölmiðlar hamast á Ryanair og fleiri lágfargjaldaflug- félögum um ófullnægjandi öryggismál, sem er liður í að grafa undan trausti al- mennings á útlendum lágflugfar- gjaldafélögum sérstaklega. Öryggi í háloftunum er fólgið í hverjir stjórna flugvélinni og hvaða farþegar eru um borð frekar en tæknilegs ástands flug- vélanna. Sem flugfarþegi verð ég að geta treyst því að fyllsta öryggis sé gætt hvað varðar samfarþega mína. Þessu get ég ekki treyst þegar ég fer aftur í gegnum vopnaleit við komu á áfangastað. Umræða um flugöryggismál óskast og svar við spurningunum frá þeim sem bera ábyrgðina. Flugöryggismál í Leifsstöð Steinþór Ólafsson fjallar um flugöryggismál Steinþór Ólafsson ’Sem flug-farþegi verð ég að geta treyst því að fyllsta ör- yggis sé gætt hvað varðar sam- farþega mína. Þessu get ég ekki treyst þegar ég fer aftur í gegnum vopna- leit við komu á áfangastað.‘ Höfundur er framkvæmdastjóri ferðaskrifstofu í Stokkhólmi. ÉG HEF fylgst úr fjarlægð með umfjöllun um afdrif mannvirkja í varnarstöð varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli, nú þegar dregur að brott- för þess. Þar eru marg- ar hugmyndir á lofti og virðist nánast að allt eigi að flytja þangað til að skapa störf. Það er rétt að þar eru mörg mann- virki en ekki er allt sem sýnist. Í fyrsta lagi eiga öll mannvirkin það sam- eiginlegt að hafa 110 volta og 60 riða raf- magn. Þessu þyrfti að breyta áður en starf- semi gæti hafist í þeim. Þá hafa heitavatns- lagnir í mörgum húsum verið til vandræða vegna tæringar. Stóri vatnstankurinn, 875, er ekki hannaður með tilliti til jarðskjálfta og þarf hann fljótlega á verulegu viðhaldi að halda vegna tær- ingar. En lítum nú á þau mannvirki á svæðinu sem hýstu ýmiss konar starf- semi. Um miðjan mars síðastliðinn var verkefni um niðurrif og hreinsun á svokölluðu Patterson-svæði, ásamt niðurrifi nokkuð margra bygginga innan aðalgirðingar, tilbúið til útboðs. Fjárveiting upp á 2 milljónir dala var til verksins. Þetta verk var dregið til baka eftir tilkynningu um brottför. Í nokkrum þessara húsa er asbest, eins og fram kemur í útboðsgögnum. Öll eiga þessi hús ekkert annað skilið en að verða rifin og svo á við um fleiri hús í þessum flokki. Það eru aðeins fá hús sem væri athugandi að halda, s.s. vöruhús 868 og 869 sem eru ný- uppgerð og e.t.v. frystigeymsla 872. Hús á svokölluðu Seaweed-svæði ætti öll að rífa. Skrifstofubyggingar 740, 752, og 790, hótel 786, gamla flugstöð 782 og 810, gamla símstöð 839, bygg- ingar 732–734 og 736 eru allt gamlar vandræðabyggingar. Lítum nú á fjölskylduhúsnæði. Fyrst má telja svokölluð SP-hús 602– 607, 614–618 og 627–630 ásamt úti- geymslum. Þessi hús er nýbúið að taka í gegn, en eins og svo oft á vell- inum var ráðist í að gera við húsnæði sem hefði átt að rífa og byggja nýtt í staðinn. Það var af þeim sökum að oft var mun auðveldara að fá fjármagn til viðgerða en til nýbygginga. Þessi hús standa alltof nálægt flugbraut og of hljóð- bært er milli íbúða þrátt fyrir endurbætur. Næst má telja bygg- ingar 914–925 og 1.101– 1.114. Hér þurfa bygg- ingar 914–925 gagngera endurnýjun að innan og nýjar svalir. Byggingar 1.101–1.114 þurfa ný þök innan fárra ára og einangrun að utan. Þessar byggingar standa alltof þétt og mikill skortur er á bíla- stæðum, sem erfitt er að bæta úr. Byggingar 926–931, 950–953, 960–963 og 669–672 hafa allar verið endurnýjaðar að innan á síðustu 10 ár- um en munu þurfa nýtt einangr- unarkerfi að utan. Loks má telja bygg- ingar 673–675 og 1.215–1.234. Þetta eru nýjustu íbúðarhúsin, byggð 1990– 1993, en líklega þarf að skipta um flesta glugga á þeim á næstu árum. Þá er þörf á einangrun þessara húsa og 1.100 húsanna vegna mistaka við ein- angrun þeirra í upphafi. Nokkuð er um einstaklingshúsnæði á svæðinu, mest byggt á árunum 1953–1960, sem hefur verið endurnýjað. En sem áður reyndist auðsóttara að fá fé til breyt- inga en nýbygginga og bera þær margar þess merki. Flugskýli 831 er nýlega endurbyggt og í góðu standi. Skýli 780 og 781 eru sérhæfð hús og matsatriði hvort þau nýtist en stóra flugskýlið 885 er alltof dýrt í rekstri. Önnur hús á svoköll- uðum Apron eru léleg. Úti í svoköll- uðum West End eru 13 flugskýli, fyrir eina orustuþotu hvert. Í hvert skýli fóru um 2.500 rúmmetrar af steypu. Þau ætti að fjarlægja, því án viðhalds verða þau að rústum, sem munu standa í fjölda ára. Ótaldir á svæðinu eru tveir skólar, sundlaug og íþrótta- hús, kirkja, leikskóli og annað sérhæft húsnæði. Auk þess er fjöldi húsa um allt svæðið, sem eru til einskis nýt. Þegar litið yfir upptalninguna að of- an má hugsa sér að margt af húsnæði varnarliðsins megi nýta. Satt er það en hér verður að taka mið af kostn- aðinum sem því fylgir. Einnig verður að huga að því hver eigi að gæta mannvirkjanna eftir að varnarliðið fer. Ekki er langt síðan Rockville-svæðið á Miðnesheiði var lagt í rúst, í tvígang, fyrst þegar varnarliðið flutti út og síð- an Byrgið. Sveitarfélögin fóru þá fram á að rústirnar yrðu fjarlægðar. Það gæti orðið erfitt að fara fram á slíkt þegar eigandinn er farinn úr landi. En segjum sem svo að það tækist að verja byggingar fyrir þjófnaði og skemmdarvörgum, hver og hvernig ætti þá að nýta þær? Einnig hefur varnarliðið sagt upp samningi um raf- orkukaup og reynt að segja upp samn- ingi um heitavatnskaup og er því auð- séð að ekki er áhugi á að varðveita mannvirkin af þeirra hálfu. Án upphit- unar skemmast mannvirki fljótt. Allar byggingar á svæðinu, nema í kringum flugið eru á kolvitlausum stað fyrir mannabústaði. Það er bæj- arfélag stutt frá en þetta yrði aldrei sérstakt bæjarfélag, heldur hverfi sem lægi afskekkt og utan garðs. Því á að gera þá kröfu að varnarliðið fjarlægi allar byggingar á svæðinu og gangi frá landinu snyrtilega. Þá fengjum við vinnu og tekjur af því í stað þess að sitja uppi með kostnað af því að gera upp og halda við óhentugu húsnæði og kostnað af að fjarlægja strax það sem er handónýtt. Síðan þegar okkur vant- ar húsnæði á að byggja húsnæði sem hentar og þar sem það hentar. Hugleiðingar við brottför varnarliðsins Vilhjálmur Guðmundsson fjallar um mannvirki í varn- arstöðinni á Keflavíkurflugvelli ’Þá fengjum við vinnu ogtekjur af því í stað þess að sitja uppi með kostnað af því að gera upp og halda við óhentugu hús- næði.‘ Vilhjálmur Guðmundsson Höfundur er verkfræðingur. Herjólfsstígur 16 Grímsnesi Verð: 19.700.000 Stærð: 91,5 Fjöldi herbergja: 4 Byggingarár: 2006 Nýtt glæsilegt heilsárshús við Herjólfsstíg 16 í landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Húsið stendur ofarlega, þannig að útsýnið er mjög gott. Grunnflötur hússins er 91,5 fm. Það er á steyptum grunni með steyptri botnplötu. Húsið skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, gang, anddyri og geymslu. Húsið er tilbúið til innréttinga án gólfefnis. Nánari upplýsingar veitir Anton í síma 699-4431. Einnig eru til sölu hjá sama aðila 9 lóðir á svæðinu. Anton Sölufulltrúi 699 4431 anton@remax.is Rúnar S. Gíslason hdl. lögg. fasteignasali STJARNAN Opið hús 30. júlí frá kl.14-18 Í samræmi við 1. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er hér með auglýst að álagningu opinberra gjalda, þ.m.t. tryggingagjalds og ákvörðun vaxtabóta og barnabóta, á árinu 2006 er lokið á menn, sem skattskyldir eru samkvæmt framangreindum lögum, sbr. I. kafla laga nr. 90/2003. Álagning gjalda á lögaðila mun liggja fyrir síðar og verður auglýst sérstaklega. Álagningarskrár með gjöldum manna verða lagðar fram í öllum skattumdæmum föstudaginn 28. júlí 2006. Skrárnar liggja frammi til sýnis á skattstofu hvers skattumdæmis og hjá umboðs- manni skattstjóra eða öðrum þeim stöðum í hverju sveitarfélagi sem sérstaklega hafa verið auglýstir dagana 28. júlí til 11. ágúst 2006 að báðum dögum meðtöldum. Álagningarseðlar er sýna álögð opinber gjöld 2006 þ.m.t. tryggingagjald, vaxtabætur og barnabætur hafa verið póstlagðir og/eða birtir á þjónustusíðu viðkomandi á vef ríkisskattstjóra. Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda á menn, sem tilkynnt hefur verið um með álagning- arseðli 2006, þurfa að hafa borist skattstjóra eigi síðar en mánudaginn 28. ágúst 2006. 28. JÚLÍ 2006 Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson. Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson. Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Guðrún Björg Bragadóttir. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson. Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson. Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi Tómas Björnsson. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson. Auglýsing um álagningu opinberra gjalda á menn árið 2006

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.