Morgunblaðið - 28.07.2006, Page 30

Morgunblaðið - 28.07.2006, Page 30
30 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN F erðalög um landið eru aldrei yndislegri en á sumrin. Þá skiptir ekki öllu máli þótt sól- in láti ekki sjá sig nema endrum og sinnum. Það er bara svo gaman að halda af stað út í buskann, ráða næturstaðnum og sitja með nestið einhvers staðar úti í móa. Allir, sem leggja í slíkar ferðir, vita að það er ekki með öllu hættu- laust að ferðast um þjóðvegi lands- ins. Vissulega er full ástæða til að fagna bundnu slitlagi á öllum helstu vegum, en þessir sömu vegir eru flestir með eina akrein í hvora átt og öllum liggur svo lifandi býsn á að framúrakstur er regla en ekki und- antekning. Þar sem það er svo augljóst að framúrakstur skapar hættu má furðu sæta hversu lítið er hugað að því að draga þó úr þeirri hættu eins og unnt er. Mér varð hugsað til þessa þegar ég ók einu sinni sem oftar yfir Hellisheiðina. Þar er veg- urinn á köflum tvíbreiður og allir sem vilja geta þeyst vinstra megin fram úr þeim sem fara sér hægar á hægri akrein. En fyrir þá sem ekki þekkja leiðina eins og lófann á sér er ómögulegt að vita fyrirfram hve- nær vegurinn breikkar, hvað þá að gefnar séu upplýsingar um hve langur tvíbreiði kaflinn er, eða að fólk sé varað við í tíma áður en hann verður einbreiður á ný. Í hlíðum Sierra Nevada-fjalla, á leiðinni frá Kaliforníu til Nevada, er vegurinn um margt svipaður veg- inum yfir Hellisheiðina. Hann er að vísu ansi hlykkjóttur á köflum, svo framúrakstur er stórhættulegur og beinlínis bannaður kílómetrum saman. Hins vegar ganga ökumenn ekkert að því gruflandi hver staðan er. Skilti við veginn upplýsa þá um hve langt er að næsta tvíbreiða kafla, þar sem þeir geta auðveld- lega ekið framúr flutningabílnum fyrir framan, eða stóra jeppanum með risavaxna fellihýsið. Svo kemur að tvíbreiða kaflanum og þá þurfa þeir sem ætla framúr ekki að aka eins og fjandinn sé á hælunum á þeim í þeirri von að þeir nái að troðast framúr áður en veg- urinn þrengist skyndilega á ný, því nú taka við skilti sem jafnt og þétt upplýsa hversu langur spotti er eft- ir af tvíbreiða veginum. Allt gengur þetta því átakalaust fyrir sig. Mér datt í hug, á Hellisheiðinni um daginn, að upplýsingar af þess- um toga myndu minnka hættuna þar um allan helming. Ég veit alla vega að ég væri rórri fyrir aftan flutningabílinn og risavaxna jepp- ann með enn stærra fellihýsið, ef skilti við veginn segðu mér að nú væru aðeins 5, 3 eða 2 kílómetrar í næsta tvíbreiða kafla. Og svo sann- arlega yrði ég líka rórri á þeim tví- breiða kafla ef ég vissi fyrirfram hversu langur hann væri, í stað þess að vera skyndilega í þeirri stöðu að nánast aka niður skiltið með pílunni sem bendir mér á að nú sé vegurinn að þrengjast, einmitt þar sem hann þrengist! Væri alla vega ekki ráð að setja upp góðar merkingar og sjá hvernig til tekst? Þurfum við virkilega að tvöfalda all- ar þyngstu umferðarbrautirnar, án þess einu sinni að reyna þetta? Er ekki að renna upp tími aðhalds í ríkisrekstri, þar sem meira vit er í því að kaupa nokkur skilti en mal- bika heilu heiðarnar? En svo að allt öðru: Um daginn sá ég að Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi og formaður Um- hverfisráðs vill gæða Miklatúnið nýju lífi. „Ætlunin er að Miklatúnið gangi í endurnýjun lífdaga og verði að þeim stað sem fjöldi fólks hefur óskað sér í mörg ár. Það er á besta stað í borginni og er hægt að nýta miklu betur. Túnið ætti að vera vin fyrir borgarbúa sem þar gætu notið lífsins með fjölskyldunni,“ sagði Gísli Marteinn hér í Morg- unblaðinu. Og hann bætir um betur með vangaveltum um hvort setja megi Miklubrautina í stokk og bendir réttilega á að túnið yrði enn betur í sveit sett með bættu að- gengi, auk þess sem fólk væri þá laust við ónæðið af umferðinni um brautina. Ég er alveg sammála borg- arfulltrúanum um ágæti túnsins og „endurnýjun lífdaga“ hljómar af- skaplega vel. En eitt vil ég biðja hann um að gera líka og það er að taka upp hið gamla og stórgóða heiti Klambratún að nýju. Sjálf nota ég það alltaf og held raunar að fjölmörgum Reykvíkingum sé það tamt. Og það vísar til sögu borg- arinnar. Í þeirri ágætu bók Páls Líndals, Reykjavík, Sögustaður við Sund, segir að mest af því landi sem til garðsins var lagt hafi verið erfðafestulandið Norðurmýr- arblettur 4. Þar voru gerðar tölu- verðar mógrafir, einkum í eldsneyt- isskortinum á árum heims- styrjaldarinnar fyrri. Árið 1925 varð erfðafestuhafi Maggi Júl. Magnús læknir og bæjarfulltrúi og hann rak þarna býlið Klömbrur. Maggi var yfirlæknir við holds- veikraspítalann í Laugarnesi frá 1934 og var mikill áhugamaður um búskap. Hann var formaður Fjár- eigendafélags Reykjavíkur og starfaði fyrir Skógræktarfélag Ís- lands. Hann var sonarsonur Hall- dórs Kr. Friðrikssonar yfirkennara við Lærða skólann og alþing- ismanns Og svo má bæta því við, að Skóla- garðar Reykjavíkur hófu starfsemi sína á Klambratúni árið 1948. Fjölskyldurnar, sem njóta lífsins saman á túninu í framtíðinni, gangi áætlanir Gísla Marteins eftir, fá kannski tilfinningu fyrir liðinni tíð ef Klambratúnsheitið fær að lifa. Heitið Miklatún er eitthvað svo uppfullt af undarlegum komplexum og líkist því einna helst að það hafi verið fengið að láni frá komm- únistum austar í álfunni, þótt sann- leikurinn sé víst einfaldari, því það ku draga nafn af Miklubrautinni. Mér er slétt sama þótt Miklabraut- in haldi sínu heiti, en Klambratúnið vil ég fá aftur. Kappakstur og Klömbrur Þurfum við virkilega að tvöfalda allar þyngstu umferðarbrautirnar, án þess einu sinni að reyna þetta? Er ekki að renna upp tími aðhalds í ríkisrekstri, þar sem meira vit er í því að kaupa nokkur skilti en malbika heilu heiðarnar? rsv@mbl.is VIÐHORF Ragnhildur Sverrisdóttir BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Í MORGUNBLAÐINU 12. júlí, er sagt frá því að aldrei hafi jafnmargir ferðamenn komið til landsins eins og á mánudag, þegar þrjú skemmti- ferðaskip voru í Reykjavík, og að þessi mikli fjöldi hafi skapað þörf fyrir um 80 rútur, sem erfitt var að uppfylla. Í fréttum RÚV þennan sama morgun var viðtal við ferða- málastjóra þar sem hann talaði m.a. um að í náinni framtíð myndi vanta rútubílstjóra. Í hvorugu tilfellinu var minnst einu orði á leiðsögumenn! Endurspeglar þetta viðhorfið til leiðsögumanna yfirleitt? Vonandi ekki. Og vonandi gera landsmenn sér grein fyrir því hversu mik- ilvægt það er að vel sé tekið á móti ferðamönnum sem koma til landsins og að þeim sé sagt satt og rétt frá landi og þjóð. Til þessa höfum við sérmenntaða leiðsögumenn. Nær allt milli himins og jarðar Faglærðir leiðsögumenn, sem komið hafa til starfa und- anfarna áratugi, hafa hlotið menntun sína í Leiðsögu- skólanum. Þar fer fram vandað nám þar sem farið er yfir flest allt sem viðkemur landinu og sögu þess frá upphafi til dagsins í dag. Jarðfræði er t.d. stór hluti námsins enda þarf leiðsögumaður að geta ,,lesið landið“ og sagt ferðamönnunum frá því sem fyrir augu ber á auðskilj- anlegan hátt, á tungumáli gestanna. Þeir þurfa líka að kunna að segja frá fuglum landsins, plöntum og jarð- vegseyðingu, landbúnaði og búfénaði, við upphaf byggð- ar og stöðuna í dag, frá helstu hetjum Íslendingasagn- anna og hvað var að gerast í hverri sögu eftir því sem ekið er um landshlutana. Einnig frá þjóðsögum, nútíma- bókmenntum og höfundum, öðrum listgreinum og lista- mönnum, þjóðháttum og hátíðum, söfnum og kirkjum, stjórnmálum, fiskveiðum, hvalveiðum – og þá að svara viðkvæmum spurningum þar um á hlutlausan hátt, heita vatninu í jörðinni og notkun þess, raforkuframleiðslu, virkjunum, vetnisbílum. Þeir þurfa líka að vera vel að sér um ástandið í heimsmálunum, þekkja löndin sem ferða- mennirnir koma frá og mismunandi siði þjóða, t.d. til að vita hvernig þarf að koma fram við fólk frá mismunandi löndum, sem getur komið í mjög góðar þarfir þegar halda þarf góðum móral í rútu með 30 farþegum frá ólík- um löndum! Ekki má svo gleyma því að leiðsögumenn þurfa að geta veitt fyrstu hjálp, jafnt í byggð sem óbyggðum, og jafnvel takast á við dauðsfall. Vandað nám og yfirgripsmikil þekking Leiðsögunámið er krefjandi, mjög erfitt segja sumir, en afar skemmtilegt og inntökupróf þarf til að komast í skólann. Nemendur skólans koma úr öllum starfs- greinum, margir með langan starfsferil og reynslu að baki – og doktorar eru ekki sjaldséðir. Þegar út á vinnu- markaðinn er komið byrja allir nýir leiðsögumenn á lág- marksvinnutaxta, sama hver bakgrunnurinn er, og vinna sig svo hægt og bítandi upp í efri taxa – sem eru afar langt í frá að vera háir. Mjög fáir leiðsögumenn fá starf við fagið árið um kring, sem gerir það að verkum að þeir þurfa að stunda aðra vinnu og starfa svo kannski sem leiðsögumenn í sumarfríinu frá þeirri vinnu. En þrátt fyrir allt þykir flestum starfið það skemmtilegt og gef- andi að þeir halda áfram, sumar eftir sumar. Leið- sögumönnum þykir þó sárt að starfið fæst ekki lögvernd- að. Á meðan getur nær hver sem er – meira að segja útlendingar sem hafa kannski komið einu sinni áður til landsins – gefið sig út fyrir að vera leiðsögumaður. Sár- ast er þó að sjá, í umræðu um framtíð Íslands sem ferða- mannalands, að þessa mikilvæga starfs sé í engu getið. BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR, leiðsögumaður. Leiðsögumenn og ferðamannalandið Ísland Frá Bryndísi Kristjánsdóttur: Bryndís Kristjánsdóttir ÞAÐ þarf enginn að velkjast í vafa um hvað við Íslendingar eigum marga bíla sem hafa þörf fyrir mis- læg gatnamót og rammbyggða vegi. Ekki heldur hvað þeir eru mikið þarfaþing ef maður þarf að komast leiðar sinnar sem er lengra en spönn frá rassi. Bora þarf göng fyrir hann í gegn um holt og hæðir því að nú til dags þarf stöðugt að stytta sér leið þótt ekki sé farið lengra en út í búð að kaupa eitt- hvað með afslætti. Ást okkar á bílum er eðlileg, að mati viti borinna manna, og eiga þeir allt gott skilið vegna þess að þeir eru ómissandi. Við getum ekki án bílsins verið af því að við þurf- um að komast leiðar okkar hratt og örugglega. Undir þetta get ég tekið heilshugar og legg glaður mitt af mörkum til að bílunum okkar geti liðið vel í umferðinni í bæ og sveit. En það er fleira en bílar sem við elskum. Fróðir menn hafa sagt mér að við elskum börnin okkar. Sumir elska þau víst álíka mikið og tor- færutröllið sitt. En við hugsum ekki eins vel um þau og bílaflotann, segja þessir ágætu menn, og benda á það máli sínu til stuðnings að ný- leg lög um fjárstuðning til handa foreldrum langveikra og fatlaðra barna séu ekki mannsæmandi og ef peningarnir, sem færu í þennan málaflokk, yrðu notaðir til að byggja brú næði hún varla lengra en út í miðja á og þá yrði fjör í ánni þegar umferð yrði hleypt á hana með ráðherra í broddi fylk- ingar með skærin í annarri hend- inni og íslenska fánann í hinni og opinbera starfsmenn í halarófu á eftir sér. Hálfkák er engum til sæmdar. Lögin um fjárstuðning til handa langveikum börnum eru meingölluð og hugsunin, sem að baki þeim liggur, er í meginatriðum röng. Það verður að breyta lögunum á þann veg að allir geti vel við unað. Til þess kjósum við fulltrúa okk- ar á þing að gera vel. Margnefnd lög bera þess merki að menn hafi ætlað sér að gera betur en vel og þá fer oft verr en illa. BENEDIKT AXELSSON Torfufell 1, Reykjavík. Að gera betur en vel Frá Benedikt Axelssyni: ÞEGAR þessi grein er skrifuð eru yfir 200 óbreyttir borgarar búnir að deyja fyrir hendi Ísraelshers í árásum síðastliðinna daga, þeirra á meðal sægur af börnum, sennilega því sem nemur tveimur til þremur bekkjum í grunnskóla. Mörg þeirra ekki einu sinni á grunnskólaaldri. Ég get gert mér í hugarlund að meirihluti íslensku þjóðarinnar finni til vanmáttar og reiði þegar fréttirnar sýna myndir af hörmungunum og segja frá því að sú handfylli af mönnum sem hefur tekið sér það bessaleyfi að lýsa yfir stríði gegn hver öðrum, gerist bara forhertari og forheimskari í brjál- æðislegum yfirlýsingum sínum. Ennþá verra er að vita að það mesta sem maður gæti gert í málinu fast- ur hér úti á ballarhafi væri að skrifa í blöðin og varpa hugleiðingum sínum fram á opinberum vett- vangi, til þess eins að sefa samviskuna og vona kannski að einhver taki við boðskapnum og sé hjart- anlega sammála; einhver sem hefur valdi að beita og hlustað er á úti í heimi. En þeir eru ekki margir hér á landi sem passa við þá lýsingu og greinilega enginn sem sver sig ekki í ætt við tinkarlinn, ljónið eða fuglahræðuna og hefur nægilega stórt hjarta til að finna til samúðar með þjáðum börnum, nægilegt hugrekki til að þora að benda á óréttlætið og gera það sem þarf til að því linni, eða, og þið afsakið mig, nógu stóran heila til þess að skilja samhengið milli þess að vera í valda- stöðu og axla ábyrgð. Það lítur hreinlega út fyrir það að innan hinna lýðræðislegu skipuðu ráðuneyta hins íslenska lýðveldis sveimi allt það fólk sem á grunn- skóladögum sínum hélt kjafti þegar einhver minni máttar var lagður í einelti og af einskærri hræðslu þóttist ekkert vita þegar það var spurt. Fullorðnu fólki ætti hins vegar að vera ljóst að slík hegðun er ekki til fyrirmyndar og að þegar fólk gefur kost á sér sem fulltrúi þjóðar sinnar í augum al- heimsins dugar ekki að skýla sér bak við hugleysi og hræðslu. Nú er fautinn í bekknum ekki bara stelandi nestispeningum heldur bókstaflega myrðandi fjölda fólks og þá ber kjörnum leiðtogum að kveðja sér hljóðs og tala meiningu sína svo allir taki eftir. Ef ís- lenskt stjórnmálafólk fer ekki að taka sig saman í andlitinu og vinna að því að stöðva berserksgang Ísr- aelshers og hvers þess sem dirfist að myrða lítil börn, dreg ég þá ályktun að það tilheyri þeim minni- hluta þjóðarinnar sem kýs frekar að líta undan en verja lítilmagnann. Og ef það þorir ekki að standa á sínu, ætti það allavega að sjá sóma sinn í því að leyfa öðrum að koma í sinn stað. Einhverjum sem hefur hjarta, kjark og heila. FINNUR GUÐMUNDARSON OLGUSON, Skeiðarvogi 135, Reykjavík. Að búa í Oz Frá Finni Guðmundarsyni Olgusyni:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.