Morgunblaðið - 28.07.2006, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNINGAlþjóðlegt
orgelsumar í
Hallgrímskirkju
29. júlí kl. 12.00:
Bine Bryndorf, orgel.
30. júlí kl. 20.00:
Bine Bryndorf, organisti
frá Kaupmannahöfn,
leikur verk m.a. eftir
Buxtehude, Couperin, Mozart og
Holmboe.
Tónleikarnir verða haldnir í Reykholtskirkju.
Miðapantanir í síma 891 7677.
Miðasala við innganginn.
Nánari upplýsingar www.vortex.is/festival
Opnunartónleikar föstudaginn 28. júlí kl. 20.00
Tónlist eftir W. A. Mozart. Meðal flytjenda er hljómsveitin
Virtuosi di Praga. Stjórnandi Oldrich Vlcek.
Miðdegistónleikar laugardaginn 29. júlí kl. 15.00
Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur íslensk og ítölsk lög og óperuaríur.
Steinunn Birna Ragnarsdóttir leikur með á píanó.
Tríó tónleikar laugardaginn 29. júlí kl. 20.00
Trio Polskie flytja verk eftir Beethoven, Brahms, Haydn og Shostakovich.
Lokatónleikar sunnudaginn 30. júlí kl. 16.30
Virtuosi di Praga flytja m.a. verk eftir Respighi, Dvorak og Samuel Barber.
Einnig verður flutt Adagio og Rondo eftir Schubert.
10 ára
ehf
v
Sígild tónlist í sögulegu umhverfi
28.-30. júlí 2006
Stuðbandalagið frá
Borgarnesi
í kvöld
Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill öll kvöld vikunnar.
www.kringlukrain.is Sími 568 0878
!
"
#$ %
& '
(!
)*+ ),- .//
0
12
!
!
3 ), 44
5"6(
2 " 6
2 7
2
!
%!
Teiknisamkeppni
Mr. Skallagrímsson
- leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi
PANTIÐ MIÐA TÍMANLEGA
Í SÍMA 437 1600
Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson
Leikstjóri: Peter Engkvist
LEIKHÚSTILBOÐ!
Tvíréttaður kvöldverður og
leikhúsmiði kr. 4.300 - 4.800
Fös. 28. júlí kl. 20 uppselt
Lau. 29. júlí kl. 20 uppselt
Sun. 30 júlí kl. 15 örfá sæti laus
Sun. 30. júlí kl. 20 örfá sæti laus
Fös. 4. ágúst kl. 20
Lau. 5. ágúst kl. 20
Sun. 6. ágúst kl. 15
Sun. 6. ágúst kl. 20
Lau. 19. ágúst kl. 20
Sun. 20. ágúst kl. 15
Sun. 20 ágúst kl. 20
Fös. 25. ágúst kl. 20
Sun. 27. ágúst kl. 15
Sun. 27. ágúst kl. 20
ÞAÐ ERU ekki landslagsmálverk
sem blasa við í gættinni heldur fjórir
ábúðarmiklir bankastjórar í formi
portrettmálverka. Landslags- og
fantasíukennd málverk og manna-
myndir má svo sjá í bakgrunni og á
hliðarveggjum þegar inn er stigið.
Sýningargestir eru kannski vanari
því að öndvegisverk á borð við
Fjallamjólk taki á móti þeim á Kjar-
valssýningum en hér kveður við nýj-
an tón sem skýrist af því að portrett-
myndirnar eru táknrænar fyrir
upphaf samstarfs Kjarvals og
Landsbankans árið 1923. Kjarvals-
sýningin í vestursal Gerðarsafns á
úrvali úr málverkasafni Landsbank-
ans, sem á ríflega 70 verk eftir Kjar-
val, er liður í 120 ára afmælisfögnuði
bankans.
Athygli vekur að ein portrett-
myndanna fjögurra sker sig úr sem
miklu meira „málverk“ en hinar,
sem eru heldur stirðbusalegar.
Kjarval hafði verið fenginn til að
mála portrett af fjórum fyrstu stjór-
um bankans og varð að styðjast við
ljósmyndir af þeim sem látnir voru.
Sá fjórði, Björn Kristjánsson, var
hins vegar lifandi fyrirmynd og í
myndinni birtist sú innlifun í við-
fangsefnið sem einkennir verk Kjar-
vals og heillað hefur þjóðina – hin
„kjarvalska sýn“.
Sýningin opinberar ýmsar hliðar
þeirrar sýnar en yfirskriftin „Kraft-
ur heillar þjóðar“ skírskotar til
þeirrar köllunar sem listamaðurinn
mun hafa verið gagntekinn af á
námsárum sínum eins og fram kem-
ur í bók Thors Vilhjálmssonar, Kjar-
val, frá 1964. Þá vann hann, með
slíkan kraft í sér, þrotlaust að því að
„vinna upp Íslands tapaða tíma, ald-
irnar myndlausu“ og ber, að sögn
Thors, „ábyrgð á heilli þjóð, að hún
verði til í myndlist“.
Krafturinn sem titill sýning-
arinnar vísar til tengist því hug-
myndum um almenna framþróun í
þjóðlífinu. Í ávarpi Björgólfs Guð-
mundssonar í skilmerkilegri sýning-
arskrá segir m.a. að Landsbankinn
hafi einnig borið kraft heillar þjóðar
í sjálfum sér, í 120 ár. Túlka má orð
hans sem vísun í framfaraandann
sem ríkt hefur í þjóðlífinu á þessu
tímabili og þátt Landsbankans í
breytingum á atvinnuháttum og
efnahag sem átt hafa sér stað sam-
fara stjórnarfarslegu sjálfstæði.
Ekki má gleyma þætti bankans í
stuðningi við Kjarval en sýningin
minnir á mikilvægt samband lista-
manna og vildarmanna þeirra. Jafn-
framt staðfestir sýningin að bankinn
sækir sér menningargildi í verk
Kjarvals – eða „menningar-
auðmagn“ eins og það er stundum
kallað.
Hugmyndir um Kjarval eru sam-
ofnar sjálfsmynd þjóðarinnar á þess-
um miklu breytingatímum. Einn
stuðningsmanna hans í upphafi síð-
ustu aldar, Guðmundur Magnússon
prentari, skrifaði, eins og fram kem-
ur í bók Thors, að á fyrstu sýningu
Kjarvals 1908 komi „þeir kraftar ís-
lenzku þjóðarinnar í ljós, sem styðja
góðu framtíðarvonirnar hennar, og
sem sýna það og sanna að hún á rétt
til þess að eiga framtíð, engu síður
en aðrar sannar menningarþjóðir“.
Sýningin í Gerðarsafni felur ekki
aðeins í sér tækifæri til að skoða
mörg úrvalsverk eftir þennan sér-
stæða og mikilvæga listamann í ís-
lenskri listasögu – „meistarann“
sjálfan, heldur er þar einnig að finna
áminningu um breytta tíma og um
brautryðjendastarf kynslóðanna
sem á undan hafa gengið og lagt
hafa grunninn að því góða lífi sem
okkur býðst í dag. Eftirmynd í raun-
stærð af hinu þekkta verki Saltfisk-
stökkun frá 1924–45 (sem er á vegg í
Landsbankanum í Austurstræti) er
gott dæmi um það. Teiknuð portrett
af íslensku alþýðufólki og verk á
borð við Bænin má aldrei bresta þig
frá 1934 lýsa sérstöku sambandi
Kjarvals við náttúruöfl og dulvitund
kynslóðanna sem byggt hafa landið
þar sem búa ýmsar óræðar verur.
Verkin minna ennfremur á að taka
ekki hlutunum sem gefnum og að trú
á „framfarir“ eigi sér takmörk þegar
kemur að náttúru landsins. Það var
einkum þangað sem Kjarval sótti
kraftinn.
Menningarauðmagn
MYNDLIST
Listasafn Kópavogs
– Gerðarsafn
Sýningin stendur til 30. júlí. Safnið er op-
ið alla daga nema mánudaga frá kl.
11.00–17.00.
„Kraftur heillar þjóðar“
Afmælissýning Landsbankans
Anna Jóa
„Sýningin í Gerðarsafni felur ekki aðeins í sér tækifæri til að skoða mörg
úrvalsverk eftir þennan sérstæða og mikilvæga listamann í íslenskri lista-
sögu – „meistarann“ sjálfan, heldur er þar einnig að finna áminningu um
breytta tíma og um brautryðjendastarf kynslóðanna sem á undan hafa
gengið og sem lagt hafa grunninn að því góða lífi sem okkur býðst í dag,“
segir í umsögn gagnrýnanda. Myndin er af verkinu Sýn og veruleiki (Af-
mælisblóm til Jóns) frá árinu 1957.
Í KVÖLD kl. 19 mun Anne Törmä,
myndlistarmaður frá Lahti í Fin-
landi, opna sýningun THE DAY í
Galleríi Boxi við Kaupvangstræti 10
á Akureyri. Anne er gestalistamaður
hjá Gilfélaginu á Akureyri í júlí-
mánuði og mun hún sýna textaverk
og teikningar sem hún hefur unnið
að seinustu vikur.
Anne er ekki alls ókunnug á Ak-
ureyri því þetta mun vera í þriðja
skipti sem hún leggur leið sína til
bæjarins. Árið 2003 var hún skipti-
nemi í Myndlistaskólanum á Ak-
ureyri og árið eftir hélt hún sýningu
í Ketilhúsinu undir nafninu Ak-
ureyri – Lahti ásamt fleirum ungum
myndlistarmönnum. Árið 2004 út-
skrifaðist hún síðan úr The Institute
of Fine Arts in Lahti.
Lahti og Akureyri
mætast í Boxi
Anne við eitt verka á sýningunni. Hún er gestalistamaður hjá Gilfélaginu.
SMS FRÉTTIR
mbl.is