Morgunblaðið - 04.11.2006, Side 6
6 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MÖRGU ungu fólki finnst það jafnvel normið að
prófa örvandi vímuefni. Þórarinn Tyrfingsson, yf-
irlæknir á Vogi, segir lífseiga þá goðsögn að örv-
andi efni séu skaðlaus og ranghugmyndir ungs
fólks um efnin miklar. „Ég held að það séu mjög
margir sem telja það jafnvel normið að prófa [örv-
andi vímuefni], sem er gríðarlega hættulegt,“ seg-
ir Þórarinn. Í Morgunblaðinu í gær benti Þórarinn
á að neysla örvandi efna væri helst bundin við fólk
á aldrinum 25–30 ára. Það sem einkenndi amfeta-
mínneyslu hér á landi væri háskammta túra-
neysla, þegar mikils magns efnis er neytt í 3–5
daga.
Guðmundur Týr Þórarinsson, Mummi í Götu-
smiðjunni, segist hafa orðið var við gríðarlega
aukningu í notkun örvandi efna hjá aldurshópnum
15–20 ára undanfarinn áratug. Hraðinn í neysl-
unni sé einnig orðinn meiri. Ungmenni sem hafa
aðeins verið í ár í neyslu eru oft orðin mjög djúpt
sokkin. „Það er bara hoppað í djúpu laugina,“ segir
Mummi. „Þessir krakkar reykja hass í miðri viku,
svo drífa þau sig ekki upp úr sófanum á föstudags-
kvöldi og þá koma örvandi efnin til sögunnar.“
Mummi segir unglinga langflesta mjög meðvit-
aða um skaðsemi vímuefna. „Sjálfsmyndin og
sjálfsálitið liggur bara þannig að þeim er alveg
skítsama.“
Hann hefur þá kenningu að unglingar velji sér
vímuefni út frá eigin persónuleika. „Ef ungling-
urinn er ör og reiður þá leitar hann í örvandi efni,
ef hann er rólegur og inni í sér þá leitar hann í
hass. Það er mikil reiði og pirringur í ákveðnum
hópi unglinga. Það segir sig sjálft að sá hópur
kemur til með að fara út í notkun örvandi efna.“
Mummi segir það sína reynslu að mikil vímu-
efnaneysla sé alltaf birtingarform á öðrum vanda.
Telja jafnvel normið að
prófa örvandi vímuefni
Gríðarleg fjölgun ungra neytenda örvandi efna og neyslan hraðari en áður
ÓSKAR Dýrmundur Ólafsson,
framkvæmdastjóri þjónustu-
miðstöðvar Vesturbæjar, seg-
ir mikla fræðslu liggja fyrir til
barna og unglinga varðandi
skaðsemi vímuefna. „Ég held
að fræðslan og þekkingin sé
fyrir hendi og er töluvert
meiri en fyrir nokkrum ár-
um,“ segir Óskar. „En hins
vegar þarf að horfa á þau gildi og þau norm sem
eru í samfélaginu. Hvað telst eðlilegt og ekki
eðlilegt, hjá börnum jafnt sem fullorðnum. Ef
notkun örvandi efna hefur aukist þá myndi ég
leita svara í okkar menningu.“
Mikil fræðsla í gangi
RUNÓLFUR
Ágústsson, rekt-
or Háskólans á
Bifröst, sagði í
ræðu á málþingi
háskólans og fé-
lagsmálaráðu-
neytisins um
launajafnrétti á
vinnumarkaði á
Bifröst í gær að
með sömu þróun
og verið hefði undanfarin ár myndi
það taka 581 ár að ná fram jöfnum
rétti kynja til launa á Íslandi. Sam-
kvæmt rannsókn Capacent er óút-
skýrður launamunur nú 15,7 % en
var 16% árið 1994.
Ekki mikil huggun
Í ávarpi sínu sagði Runólfur m.a.:
„Kynbundinn launamunur á vinnu-
markaði er staðreynd og nú blasir
það við okkur að samkvæmt þeirri
könnun sem við erum hér að fjalla
um dregur afar hægt úr þessum
smánarbletti á okkar atvinnulífi og
samfélagi. Þegar búið er að fram-
kvæma svokallaða leiðréttingu á
kynbundnum launamun var svokall-
aður óútskýrður launamunur 16%
árið 1994 en hann er 15,7% í dag.
Þetta er ekki mikil huggun nýbök-
uðum foreldrum stúlkubarna því
þegar þær fá aldur til getum við
skýrt út fyrir þeim að jöfnum rétti
þeirra til launa verði með sama
áframhaldi náð árið 2588, eða eftir
581 ár. Það er langur tími að bíða,
bæði fyrir foreldra og börn.“
Launajafn-
rétti náð
eftir 581 ár
Runólfur
Ágústsson
JAFNINGJAFRÆÐSLAN stend-
ur fyrir miðnæturgöngu niður
Laugaveginn í kvöld og er hún liður
í átakinu nóvember gegn nauðg-
unum. Þar munu m.a. Sniglarnir
verða með í för samkvæmt upplýs-
ingum aðstandenda göngunnar.
Segja þeir baráttumálin vera þau
að færa umræðuna frá fórnarlamb-
inu yfir á gerandann, hertar refs-
ingar, aukna löggæslu og að svo-
nefnt misneytingarfrumvarp verði
samþykkt. Gangan hefst kl 24 á
Hlemmi og endar á Ingólfstorgi eða
í kjallara Hins hússins ef veður
verður slæmt.
Ganga gegn
nauðgunum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt síbrotamann á sextugs-
aldri í 7 mánaða fangelsi fyrir þjófn-
aði í vor. Játaði hann að hafa stolið
ýmsum hlutum sem honum var gefið
að sök, s.s. seðlaveskjum, úrum, far-
tölvu og fleira. Dómurinn tók tillit til
hreinskilnislegrar játningar ákærða
og þess að verðmætin komust nær öll
óskemmd til skila. Þá var tekið tillit
til þess að ásetningur hans hafi verið
þokukenndur. Til refsiþyngingar
horfði þó mikilvægi þeirra hagsmuna
sem ákærði braut gegn, nefnilega
friðhelgi heimilis og eignaréttar.
Maðurinn hefur 42 sinnum hlotið
dóm á brotaferli sínum frá árinu
1969 og samanlagt verið í dæmdur í
yfir 20 ára fangelsi.
Málið dæmdi Jónas Jóhannsson
héraðsdómari. Verjandi var Páll
Arnór Pálsson hrl. og sækjandi Dag-
mar Arnardóttir frá Lögreglustjór-
anum í Reykjavík.
Sjö mánaða
fangelsi
fyrir
þjófnaði
Hefur hlotið 42 dóma
á brotaferli sínum
ORKUSETUR hefur veitt EGO-sjálfsafgreiðslustöðv-
unum viðurkenningu fyrir frumkvæði að því að draga
úr eldsneytisnotkun. Sigurður Ingi Friðleifsson, fram-
kvæmdastjóri Orkuseturs, afhenti Jóhanni P. Jónssyni,
framkvæmdastjóra EGO, viðurkenninguna í gær.
Framlag EGO felst í því að bjóða ökumönnum tölvu-
stýrða mælingu og loftjöfnun á hjólbörðum bifreiða á
öllum EGO-stöðvunum. Það stuðlar að minni eldsneyt-
isnotkun og er í takt við aðgerðaáætlun Evrópusam-
bandsins sem skila á 20% orkusparnaði á næstu 15 ár-
um. Samkvæmt frétt frá Orkusetri er talið að með
bættri jöfnun lofts í hjólbörðum megi spara þjóð-
arbúinu um 500 milljónir á ári og minnka útblástur
gróðurhúsalofttegunda um 12 þúsund tonn.
Morgunblaðið/Sverrir
EGO fékk viðurkenningu
♦♦♦
SIGFÚS Jörundur
Árnason Johnsen,
fyrrverandi kennari
og félagsmálastjóri,
lést á Landspítalanum
sl. fimmtudag, 76 ára
að aldri.
Sigfús fæddist í
Vestmannaeyjum 25.
nóvember 1930. Eftir
brautskráningu frá
Verslunarskóla Ís-
lands og kennarapróf
gerðist Sigfús kennari
og síðar yfirkennari
við Gagnfræðaskólann
í Vestmannaeyjum.
Eftir flutning til Reykjavíkur 1969
starfaði hann lengst af sem kenn-
ari við Vogaskóla og síðar félags-
málastjóri í Garðabæ.
Hann var virkur í starfi Sjálf-
stæðisflokksins frá unga aldri og
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á
þeim vettvangi, s.s. formennsku
Eyverja, félags ungra sjálfstæðis-
manna í Vestmannaeyjum, varafor-
mennsku í Sambandi ungra sjálf-
stæðismanna, varaþingmennsku
fyrir Suðurlandskjör-
dæmi og formennsku í
félagi sjálfstæðis-
manna í Hóla- og
Fellahverfi í Reykja-
vík.
Sigfús var frum-
kvöðull í ferða- og
samgöngumálum á
yngri árum, stofnaði
Eyjaflug til að bæta
samgöngur milli lands
og Eyja og stofnaði og
rak ferðaskrifstofu
frá Vestmannaeyjum
sem þúsundir lands-
manna nýttu. Sigfús
var fram eftir aldri virkur bjarg-
veiðimaður í Eyjum og var kjörinn
heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi
Bjarnareyinga 2004. Sigfús var
virkur í starfi Freeport-klúbbsins
og formaður hans um tíma. Þá
starfaði Sigfús um árabil í Gideon-
hreyfingunni.
Eftirlifandi eiginkona Sigfúsar
er Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir.
Börn þeirra eru Þorsteinn Ingi,
Árni, Gylfi, Margrét, Þór og Sif.
Andlát
Sigfús J. Johnsen
RÁÐGJAFARNEFND umhverfis-
ráðuneytisins um stofnun Vatnajök-
ulsþjóðgarðs afhenti Jónínu Bjart-
marz umhverfisráðherra skýrslu
sína í gær. Nefndin leggur til við ráð-
herra að sett verði lög um Vatnajök-
ulsþjóðgarð og haldið áfram undir-
búningi að stofnun þjóðgarðsins með
það að markmiði að hann verði að
veruleika eigi síðar en á fyrri hluta
árs 2008.
Í skýrslunni er fjallað um möguleg
mörk þjóðgarðsins, verndarstig ein-
stakra svæða, uppbyggingu þjón-
ustunets þjóðgarðsins og stjórnfyr-
irkomulag. Í skýrslunni kemur fram
að gerð sé tillaga um að Vatnajök-
ulsþjóðgarður nái í fyrstu til alls jök-
ulsins og helstu áhrifasvæða hans,
þ.m.t. Jökulsár á Fjöllum. Nákvæm
mörk þjóðgarðsins í upphafi muni þó
ráðast endanlega af samningum við
landeigendur og handhafa nytjarétt-
ar.
Sett verði
lög um
þjóðgarð
Angist og gleði
bernskunnar
„Fæðing mín er annað
reiðarslag fyrir fjölskylduna.
Að vísu er ég ekki þroskaheftur.
Það er léttir. En eftir fæðinguna
blasir önnur hryllileg staðreynd
við: Ég er rauðhærður. Það hefði
ekki getað verið meira áfall þótt
ég hefði verið svartur.“
Indjáninn er áhrifamikil
uppvaxtarsaga sem sveiflast
á milli strákslegrar gleði og
nístandi einmanaleika þess
sem ekki er alltaf í takt við
umhverfið.
edda.is
Jón Gnarr: Indjáninn
- skálduð ævisaga