Morgunblaðið - 04.11.2006, Síða 37
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 37
EF ÞÉR FINNST ÞÚ EKKI HAFA
EFNI Á SÉRHÖNNUÐUM
HÚSGÖGNUM
EKKI KENNA OKKUR UM
Fáðu frían vörulista í verslun okkar
BoConcept®Íslandi
Faxafeni 8, 108 Reykjavík.
Sími 577 1170 - Faxnúmer 577 1172
www.boconcept.is
Hvar fást húsgögn sem sameina notagildi og frábæra hönnun? Jú, hjá BoConcept® þar sem
við leggjum metnað okkar í að ná fram því besta í öllum framleiðsluvörum okkar - allt frá
heildarhönnun til minnstu smáatriða. Þú munt einnig sjá að verðið er jafn úthugsað og
húsgögnin og aukahlutirnir.
Verð frá 154.811 kr.
Þegar skammdegið færist yfir og
kuldinn byrjar að bíta í kinnar er til-
hneiging manna oftar en ekki að
krunka sig saman rétt eins og háttur
farfuglanna er á haustin áður en þeir
taka flugið langa. Þá stinga menn
gjarnan saman nefjum og taka upp
öðruvísi venjur og siði en þegar sum-
ar og sól sleikir vanga. Í skammdeg-
inu vakna m.a. ýmis félagasamtök
með ólík hlutverk af dvala og menn-
ingin fær notið sín í meiri mæli en á
öðrum tímum ársins.
Nú þegar hinir sér austfirsku „Dag-
ar myrkurs“ nálgast á Djúpavogi
eru menn að undirbúa ýmsar uppá-
komur í því sambandi og hefur
reyndar ein slík verið haldin nefnd
Sviðamessa. Sviðamessa hefur verið
haldin á Hótel Framtíð á Djúpavogi í
mörg herrans ár um þetta leyti árs
við góðar undirtektir íbúa sem ut-
anaðkomandi.
Af þessu tilefni kemur saman fólk
á öllum aldri, etur sviðna hausa og
fætur með rófustöppu. Þá voru að
þessu sinni einnig á boðstólum sér-
stakar sviðapitsur.
Undir sviðaátinu og göróttum
drykkjarveigum var nú sem áður
flutt dagskrá þar sem heimamenn
gáfu listagyðjunni lausan tauminn
með ýmiskonar uppátækjum. Meg-
inþemað á dagskránni var rokk-
tónlist og almennt uppistand sem
var vel sótt og þótti heppnast afar
vel.
Efnt hefur verið til sérstakrar ljós-
myndasamkeppni um bestu ljós-
myndina af fjallinu Búlandstindi og
hefur sérstök dómnefnd verið skip-
uð vegna þessa. Hugmyndina á
sveitarstjórinn Björn Hafþór Guð-
mundsson.
Búlandstindur er sem kunnugt er
ein af helstu orkustöðvum landsins
og er fjallið það hæsta úr sjó á Ís-
landi 1.069 m. Hægt er fá nánari um
keppnina á www.djupivogur.is.
Atvinnuástand er með besta móti á
Djúpavogi um þessar mundir og er
að venju mikið líf við höfnina eins og
gjarnan um þetta leyti árs. Töluverð
fiskigengd hefur verið og hafa
smærri línubátar m.a. fengið góðan
afla í Berufirðinum innan um hrefn-
ur og háhyrninga sem hafa verið
damlandi í ætisleit um fjörðinn upp á
síðkastið.
Um þessar mundir er verið að bora
tilraunaholur í nágrenni þéttbýlisins
á Djúpavogi vegna hugsanlegra
hitaveituframkvæmda. Fyrstu nið-
urstöður gefa jákvæðar vísbend-
ingar um jarðhita á svæðinu. Miklar
væntingar eru bundnar við verk-
efnið enda gæti hitaveita haft já-
kvæð áhrif á svæðið með tilliti til bú-
setu og ekki síður vegna ýmissa
þátta er snúa að atvinnurekstri. Búlandstindur.
DJÚPIVOGUR
Eftir Andrés Skúlason
Friðrik Steingrímsson frétti afnýrri ljóðabók Jóa í Stapa og
orti að bragði:
Nú mér engin halda höft
hinir mega gapa,
eignast vil ég Axarsköft
eftir Jóa í Stapa.
Góða bókin gefur mér
gæfu að njóta mestrar,
Jói í Stapa alltaf er
ágætur til lestrar.
Jón Ingvar Jónsson orti á fundi
Kvæðamannafélagsins Iðunnar:
Vísnagerð er streð og strögl,
stanzlaust bunar úr mér rugl,
skarpleik guð minn skar við nögl,
skóp mig undarlegan fugl.
Sagt er að tófa hafi fallið fyrir
þessari vísu Hallgríms Péturssonar:
Þú, sem bítur bóndans fé,
bölvuð í þér augun sé,
stattu eins og stofn á tré,
stirð og dauð á jörðunni.
Hallgrímur yrkir um sjálfan sig
eins og hagyrðingum er tamt og
vísar til Króka-Refsrímna er hann
orti forðum:
Sá er orti rímur af Ref,
reiknast ætíð maður
með svartar brýr og sívalt nef.
Svo er hann uppmálaður.
VÍSNAHORNIÐ
Enn af
Axarsköftum
pebl@mbl.is
Fréttir
í tölvupósti