Morgunblaðið - 04.11.2006, Qupperneq 50
50 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Tónlistardagskrá í
Fossvogskirkju
Í FOSSVOGSKIRKJU er að vanda
boðið til tónlistardagskrár á Allra
heilagra messu, 5. nóv. Stendur
dagskráin yfir frá kl. 14–16.45.
Flytjendur eru söngvararnir Kirst-
ín Erna Blöndal og Örn Arnarson,
Davíð Ólafsson, óperusöngvari, og
Ester Ólafsdóttir undirleikari,
Voces Masculorum, Kirkjukór Ás-
kirkju og Kári Þormar organisti.
Hugvekjur flytja sr. Hreinn Há-
konarson og sr. María Ágústsdóttir.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimilt að koma og fara að vild. Þá
verða starfsmenn Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma fólki
innan handar við að finna leiði í
Fossvogskirkjugarði og Gufunes-
kirkjugarði og einnig verður
Hjálparstarf kirkjunnar með
friðarkerti til sölu við garðana í
Fossvogi og Grafarvogi.
Söfnun fermingar-
barna í Norðfirði
NÚ ER framundan árleg söfnun
fermingarbarna til verkefna á veg-
um Hjálparstarfs kirkjunnar. Söfn-
unin verður mánudaginn 6. nóvem-
ber og stendur yfir frá kl. 18–21 en
þá ganga fermingarbörnin í húsin í
bænum og leita eftir aðstoð við
söfnunina.
Kvenfélagið og
Norðfjarðarkirkja
KIRKJAN hefur undanfarin ár boð-
ið kvenfélagskonum að halda einn
dag hátíðlegan til eflingar starfi fé-
lagsins og til að minna á samvinnu
að góðum málefnum. Kirkjudagur
Kvenfélagsins Nönnu er nú 5. nóv-
ember og verður messa í því tilefni
og síðan seldar kaffiveitingar í
safnaðarsalnum eftir messuna.
Ræðumaður dagsins að þessu sinni
er frú Álfheiður Hjaltadóttir frá
Reyðarfirði, formaður Krabba-
meinsfélags Austfjarða.
Kvenfélagskonur ásamt ferming-
arbörnum munu aðstoða í guðs-
þjónustunni sem og kór kirkjunnar,
sem flytur nýja sálma, s.k. Eide-
söngva, úr söngvasafni norska
söngprestsins Sindra Eide. Kaffi-
sala í Safnaðarheimilinu eftir
messu. Allir velkomnir.
Sigurður Rúnar Ragnarsson
sóknarprestur.
Allra heilagra messa
í Grafarvogskirkju
Á ALLRA heilagra messu nk.
sunnudag verður haldin hátíðar-
guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl.
14.
Eins og undanfarin ár býður
Grafarvogssöfnuður sérstaklega
þeim sem misst hafa ástvini sína á
árinu, til guðsþjónustu, sem og
eldri borgurum safnaðarins. Þann
dag er „þeirra sem á undan oss eru
farnir“ sérstaklega minnst.
Séra Guðmundur Þorsteinsson,
fyrrverandi dómprófastur, prédik-
ar. Prestar safnaðarins séra Vigfús
Þór Árnason, séra Anna Sigríður
Pálsdóttir, séra Bjarni Þór Bjarna-
son og séra Lena Rós Matthías-
dóttir þjóna. Kór Grafarvogskirkju
syngur. Einsöngur: Sigurður Skag-
fjörð og Arnþrúður Ösp Karls-
dóttir. Organisti: Hörður Bragason.
Eftir guðsþjónustuna verður svo
nefnt „líknarkaffi“ en framlög
renna í Líknarsjóð Grafarvogs-
kirkju. Allir velkomnir.
Með blessunaróskum,
sóknarnefnd, Safnaðarfélag og
prestar Grafarvogskirkju.
Léttmessa í
Árbæjarkirkju
SUNNUDAGINN 5. nóvember ber
upp á allra heilagra messu. Við
höldum okkar striki, eins og alltaf
fyrsta sunnudag mánaðarins erum
við með léttmessu kl. 20.
Á sunnudag er það listafólkið
Páll Óskar og Monika Abendroth
sem sjá um stundina. Erna Harðar-
dóttir og sr. Þór Hauksson leiða
stundina. Þennan sunnudag ber
upp á allra heilagra messu, þá
tendrum við bænaljós í minningu
látinna ástvina. Veitingar á eftir.
Komdu og eigðu góða stund í kirkj-
unni þinni.
Látinna minnst í
Hafnarfjarðarkirkju
ALLRA heilagra messa er sunnu-
daginn 5. nóvember en þá verður
látinna minnst í messunni kl. 11 í
Hafnafjarðarkirkju. Sálmar og öll
tónlist tekur mið af því. Kirkjugest-
ir geta kveikt á kertum að lokinni
altarisgöngu til minningar um ást-
vini sína. Kristín Lárusdóttir leikur
á selló Antonía Hevesi á orgel kirkj-
unnar og kirkjukórinn leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Prestur
verður sr. Kjartan Jónsson. Á eftir
messu verður heitt á könnunni fyrir
kirkjugesti.
Nýr messuskrúði og
altarisklæði helguð í
Langholtskirkju
SR. Sigurður Pálsson predikar við
messu á allra heilagra messu í
Langholtskirkju og Kammerkór
Langholtskirkju syngur. Tekið
verður við framlögum í minning-
arsjóð Guðlaugar Bjargar Páls-
dóttur, en sjóðurinn kostar tón-
listarflutning við messuna. Herder
Andersson gefur kirkjunni altaris-
klæði, hökul og stólu sem hann hef-
ur saumað og verða þau helguð í
messunni.
Gleði og sorg í
Garðaprestakalli
FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA
verður á sunnudag kl. 11 í Vídal-
ínskirkju. Sr. Hans Guðberg
Alfreðsson skólaprestur leiðir
stundina ásamt Jóhönnu Guðrúnu
Ólafsdóttur skóladjákna og Hjör-
dísi Rós Jónsdóttur. Skólakór Hofs-
staðaskóla syngur við guðsþjón-
ustuna undir stjórn Hildar
Jóhannesdóttur og Unnar Þor-
geirsdóttur. Brúðan Engilráð veitir
börnunum góða leiðsögn í stund-
inni.
Minning látinna verður í Garða-
kirkju kl.14 þennan dag. Þetta er
sameiginleg guðsþjónusta fyrir
báðar sóknir. Sr. Friðrik J. Hjartar
þjónar fyrir altari og predikar.
Álftaneskórinn og kór Vídalíns-
kirkju leiða lofgjörðina undir stjórn
Bjarts Loga Guðnasonar organista.
Þennan sama dag er sunnudaga-
skóli kl. 11 í hátíðarsal Álftanes-
skóla undir stjórn Kristjönu Thor-
arensen. Allir velkomnir. Sjá
www.gardasokn.is.
Víkurkirkja í Mýrdal –
allra heilagra messa
GUÐSÞJÓNUSTA verður í Víkur-
kirkju í Mýrdal á allra heilagra
messu, sunnudaginn 5. nóvember
nk. kl. 14 í framhaldi af raddþjálf-
unarnámskeiði fyrir kóra og söng-
fólk í Vestur-Skaftafellssýslu.
Kórar Víkur- og Skeiðflatar-
kirkna í Mýrdal, Kvennakór Mýr-
dalshrepps, ásamt félögum úr
kirkjukórum sóknanna fyrir austan
Mýrdalssand syngja. Organistar og
kórstjórar eru Anna Björnsdóttir,
Brian R. Haroldsson, Kristín
Björnsdóttir og Kristín Waage.
Einsöngvari og raddþjálfari er
Signý Sæmundsdóttir söngkona.
Sr. Haraldur M. Kristjánsson
predikar og þjónar fyrir altari.
Fjölmennum til kirkju og tökum
þátt í lofgjörð og tilbeiðslu á Allra
heilagra messu þegar við minnumst
látinna.
Væntanleg fermingarbörn næsta
vors sérstaklega hvött til að mæta
ásamt fjölskyldum sínum.
Sóknarprestur.
12 spora námskeið
í Fríkirkjunni
í Reykjavík
ÞRIÐJUDAGINN 7. nóvember, kl.
18–19.30, verður fyrsta samvera 12
spora námskeiðs sem haldið verður
í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar á
Laufásvegi 13. Á námskeiðinu verð-
ur stuðst við bókina „Tólf sporin –
Andlegt ferðalag,“ sem byggist á
kenningum Biblíunnar. Hér ferð-
umst við um eigin reynsluheim og
deilum reynslu, styrk og vonum
hvert með öðru í smáum, kyn-
skiptum hópum. Fundirnir verða
alltaf á þriðjudögum kl 18–19.30 og
eru allir hjartanlega velkomnir.
„Að starfa í stríði“
Á ALLRA heilagra messu, sunnu-
dagskvöldið 5. nóvember nk. kl.
19.30 verður kvöldmessa í þýsku
kirkjunni á Montpellier Place
(næsta jarðlestarstöð er Knights-
bridge).
Áhersla verður lögð á fyrirbænir
en á allra heilagra messu er þeirra
minnst sem á undan okkur eru far-
in og beðið verður fyrir fólki með
nafni hvort sem það eru þau sem
hafa kvatt þetta líf eða þau sem eru
í einum eða öðrum vanda stödd í
lífsins ólgusjó. Hægt verður að
tendra af altarisljósi á sérstökum
kertum til fyrirbæna og fyrirbæna-
efnum má koma á netfangið:
chaplain@mfa.is Tónlistarflutning-
inn annast þau Friðrik Karlsson
tónlistarmaður, Þóra Hallgríms-
dóttir einsöngvari og Íslenski kór-
inn í London syngur undir stjórn
Gísla Magnasonar og verður tón-
listarflutningur með óhefðbundnu
sniði.
Í stað prédikunar mun Ingibjörg
Þórðardóttir, fréttamaður hjá BBC,
ræða um efnið „Að starfa í stríði“
en Ingibjörg starfaði meðal annars
á vegum BBC í Líbanon nýverið
þegar stríð brast þar á síðastliðið
sumar. Eftir stundina verður boðið
upp á kaffisopa í safnaðarsal kirkj-
unnar og að því loknu mun sr. Sig-
urður Arnarson fjalla um „Sorgina
og sárin“ og Björg Árnadóttir mun
lesa úr nokkrum samtímabók-
menntum hugleiðingar um „Sorg-
ina“. Kynntar verða tvær nýjar
gerðir af jólakortum sem gefin eru
út til styrktar safnaðarstarfinu.
Eins verður boðið upp á bækur á ís-
lensku til sölu um sorgina. Allir eru
velkomnir.
Trú og áföll
ÞRIÐJUDAGINN 7. nóvember kl.
19 hefst í Leikmannaskóla þjóð-
kirkjunnar námskeið þar sem
fjallað verður trú og áföll. Kennari
á námskeiðinu er sr. Vigfús Bjarni
Albertsson sjúkrahúsprestur.
Fjallað verður um hvernig við
bregðumst við áföllum eins og and-
láti nákominna, lífshættu og öðru
því sem telst til aðstæðna í lífi okk-
ar og hvernig trúin snertir líf okkar
í þessum aðstæðum. Einnig verður
fjallað um þroskakreppur og lífs-
skeið s.s. breytingar sem eru tengd-
ar aldri, foreldrahlutverki. Unnin
eru verkefni í tengslum við nám-
skeiðsefnið.
Kennt er í Grensáskirkju, þrjá
þriðjudaga 7.–21. nóvember, 2 tíma
í senn. Skráning fer fram í síma
535 1500 eða á vef Leikmannaskól-
ans, www.kirkjan.is/leikmanna-
skoli.
Hjónanámskeið
að hefjast í
Hafnarfjarðarkirkju
UM ÞESSAR mundir er á ný tekið
til við að skrá pör á hjóna og sam-
búðarnámskeið Hafnarfjarðar-
kirkju. Um 7.500 manns tekið þátt í
námskeiðunum undanfarin 10 ár.
Þau eru ætluð öllum sem eru í
hjónabandi eða sambúð, ekki aðeins
þeim sem eiga við vandamál að
stríða, heldur hinum líka og ekki
síður, sem vita sig búa í góðu hjóna-
bandi en vilja samt styrkja sam-
band sitt.
Á námskeiðunum er farið í gegn-
um helstu gildrur sambúðarinnar,
hvernig fjölskyldumynstrum hægt
er að festast í, fjallað um vænting-
ar, vonir og vonbrigði þeirra sem
tilheyra fjölskyldunni. En fyrst og
fremst er talað um þær leiðir sem
hægt er að fara til að sleppa út úr
vítahring deilna og átaka í sambúð
og hvernig styrkja má innviði fjöl-
skyldunnar. Rætt er um hláturinn,
kynlífið, gleðina, hamingjuna og
margt, margt fleira.
Námskeiðið fer fram í formi sam-
tals milli þátttakenda og leiðbein-
anda, þar sem pörin eru m.a. látin
vinna ýmis verkefni saman og hvert
fyrir sig. Að lokum fá allir heima-
verkefni upp á framtíðina. Enginn
þarf að tjá sig á námskeiðinu frekar
en hann vill. Kennsluefni á nám-
skeiðunum er bókin Hjónaband og
sambúð sem kom út nú í haust.
Skráning fer fram í síma 891 7562.
Monika Abendroth og
Páll Óskar Hjálmtýs-
son í Léttmessu
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 5. nóvem-
ber kl. 20 koma þau Monika Abend-
roth hörpuleikari og Páll Óskar
Hjálmtýsson í Árbæjarkirkju og sjá
um tónlistina. Messuna ber upp á
allra heilagra messu og mun dag-
skráin taka mið af því. En fyrsta
sunnudag í nóvember hvert ár er
allra heilagra messa samkvæmt
fornri kirkjuhefð og er sá siður í
okkar kirkju að minnast látinna
þann dag.
Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir
altari og flytur hugvekju. Þá geta
þau sem vilja kveikt á bænakertum
í minningu ástvina og tekin verður
frá sérstök stund til íhugunar. Eftir
messuna er að sjálfsögðu boðið upp
á kaffisopa og gott samfélag í safn-
aðarheimilinu.
Ekki vanrækja andlegu hliðina,
mættu í léttmessu í Árbæjarkirkju.
Mannræktarkvöld í
Laugarneskirkju
NÚ HALDA mannræktarkvöld
Laugarneskirkju sínu striki alla
þriðjudaga kl. 20. Alla jafna hefjast
þau á kvöldsöng þar sem tónlistar-
maðurinn Þorvaldur Halldórsson
leiðir gospelsönginn ásamt Gunnari
Gunnarssyni organista, en sóknar-
prestur flytur Guðsorð og bæn. Í
beinu framhaldi kl. 20.30 eru ýmis
tilboð í safnaðarheimilinu þar sem
stærstan hluta vetrar er boðið upp
á 12 spora hópa og trúfræðslu á
sama tíma.
Næstu þrjú þriðjudagskvöld
verða nokkuð ólík en mjög athyglis-
verð.
Þriðjudaginn 7. nóv. mun kvöld-
söngurinn vera á sínum stað, þar
mun Sigurbjörn Þorkelsson fram-
kvæmdastjóri safnaðarins, tala en
kl. 20.30 mun prestur innflytjenda
sr. Thosiki Toma annast trú-
fræðsluna þar sem hann svarar
spurningunni: „Eiga innflytjendur
erindi í kirkju?“
Þriðjudaginn 14. nóv. kl. 20 mun
Náttúrulækningafélag Íslands
halda málþing í samvinnu við
Laugarneskirkju þar sem hraði ís-
lensks samfélags verður til um-
ræðu. Verður það nánar auglýst.
Þriðjudaginn 21. nóv. kl. 20
verða tónleikarnir „Sorgin og lífið“
þar sem Erna Blöndal flytur, ásamt
hljómsveit, sálmalög sem orðið hafa
henni til styrktar í sorg. Boðið
verður upp á kaffispjall í safnaðar-
heimilinu á eftir, og verða næstu
tvö þriðjudagskvöld svo helguð
fræðslu um sorg og sorgarviðbrögð
að loknum hefðbundnum kvöld-
söng.
Er ástæða til að hvetja allt fólk til
þátttöku í fjölbreyttu og fræðandi
samfélagi á þriðjudagskvöldum í
Laugarneskirkju.
Kópavogskirkja –
húnvetnsk messa
TIL margra ára hefur það verið
fastur liður í starfsemi Húnvetn-
ingafélagsins í Reykjavík að standa
fyrir guðsþjónustu í Kópavogs-
kirkju fyrsta sunnudag í nóvember
og að njóta veitinga og samveru að
henni lokinni í Húnabúð í Skeif-
unni.
Að þessu sinni verður guðsþjón-
ustan hinn 5. nóvember kl. 14.
Húnakórinn syngur og leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn Eiríks
Grímssonar og flytur kórinn m.a.
tvo kafla úr messu eftir Gounod. Þá
frumflytur kórinn nýtt sálmalag
eftir Pavel Smid við sálminn: Nú
stendur yfir mín náðartíð, eftir
Hallgrím Pétursson. Árni Arin-
bjarnar annast orgelleik og sr.
Ægir Fr. Sigurgeirsson prestsþjón-
ustu. Ritningarlestra lesa félagar
úr Húnakórnum, þau Grétar Jóns-
son og María Björnsdóttir.
Minningarmessur í
Dómkirkjunni
MESSAÐ verður kl. 11 og kl. 20 í
Dómkirkjunni. Þennan dag eru sér-
staklega boðnir í messuna þeir sem
hafa einhvern nákominn á undan-
förnum misserum.
Nánast allir sem deyja eru
kvaddir við kirkjulega athöfn.
Kirkjan vill minnast þeirra ásamt
eftirlifandi ástvinum og taka þann-
ig þátt í að heiðra minningu þeirra
auk þess að eiga stund fyrir lífið -
með lifendum. Í báðum messunum
verður unnt að tendra ljós til minn-
ingar um látna vini og ástvini. Allir
velkomnir.
Dómkirkjan.
Morgunblaðið/ÓmarFossvogskirkja