Morgunblaðið - 04.11.2006, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 61
FRÉTTIR
KÓPAVOGSDEILD Rauða kross Ís-
lands og Mæðrastyrksnefnd Kópa-
vogs munu starfa saman að neyð-
araðstoð við bágstadda
einstaklinga og fjölskyldur fyrir jól-
in.
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs
annast úthlutun á matarstyrkjum til
fjölskyldna í neyð með stuðningi frá
Kópavogsdeild Rauða krossins sem
hefur afhent Mæðrastyrksnefnd
styrk að upphæð 500 þúsund krón-
ur. Kópavogsdeild getur einnig haft
milligöngu um að koma umsóknum
um aðstoð til Mæðrastyrksnefndar.
Kópavogsdeild Rauða krossins
hvetur fyrirtæki, stofnanir, fé-
lagasamtök og einstaklinga til að
leggja Mæðrastyrksnefnd Kópa-
vogs lið í aðstoðinni við Kópavogs-
búa fyrir jólin.
Í desember munu sjálfboðaliðar
Kópavogsdeildar aðstoða Mæðra-
styrksnefnd við úthlutanir á mat-
arstyrkjum og fatnaði til Kópavogs-
búa. Allan ársins hring sér
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs um að
úthluta fatnaði til þeirra sem þurfa
á þriðjudögum kl. 16–18 í Fannborg
5. Rauði kross Íslands úthlutar fatn-
aði á miðvikudögum kl. 9–14 í fata-
flokkunarstöðinni að Gjótuhrauni 7
í Hafnarfirði.
Fulltrúar Kópavogsdeildar Rauða krossins og Mæðrastyrksnefndar Kópavogs við afhendingu styrksins.
Samstarf um aðstoð við
fjölskyldur í Kópavogi
HVALASKOÐUNARSAMTÖK Ís-
lands fordæma þá ákvörðun Einars
K. Guðfinnssonar að heimila hval-
veiðar. Sú vanhugsaða ákvörðun
verður ekki studd með skynsamleg-
um rökum heldur einungis út frá
þröngum hagsmunum hvalveiðifyr-
irtækja, segir í ályktun frá stjórn
samtakanna.
Þar segir ennfremur: Sjávarút-
vegsráðherra hafði ekkert samráð
við hagsmunaaðila í ferðaþjónustu,
líkt og eðlilegt hefði verið áður en
svo afdrifarík ákvörðun er tekin. Það
er einnig áhyggjuefni að samgöngu-
ráðherra hafi ekkert aðhafst til að
verja hagsmuni ferðaþjónustunnar
annað en að leggja til enn meiri fjár-
útlát til að kynna og réttlæta hval-
veiðistefnu sjávarútvegsráðherra.
Eftir 12 ára reglubundnar hvala-
skoðunarferðir draga fyrirtækin í
efa þá tölu að 44.000 hrefnur sé að
finna hér við land. Til að slík fullyrð-
ing fái staðist ætti að vera hægt að
finna u.þ.b. 0,6 hrefnur á ferkíló-
metra innan landhelgi Íslands miðað
við jafna dreifingu, því fer fjarri.
Á undanförnum 3 árum hafa æ
færri hrefnur sést á sumum hvala-
skoðunarsvæðum og gæfum dýrum
hefur fækkað og dregið úr upplifun
ferðamanna.
Nú hefur sjávarútvegsráðherra
ákveðið að gefa hrefnuveiðimönnum
frjálsar hendur til að drepa 30 dýr til
viðbótar þeim 40 sem drepin verða
næsta sumar í vísindaskyni. Engar
reglur hafa verið gefnar út um hvar
þær verða drepnar og því ástæða til
að óttast að hvalaskoðunarferðir á
Faxaflóa sem enn eru í gangi leggist
af, verði fleiri hrefnur sem enn halda
til á Faxaflóa drepnar.
Hvalaskoðunarsamtökin hafna því
alfarið að hvalveiðarnar muni hafa
jákvæð áhrif á afrakstursgetu fiski-
stofnanna hér við land. Samkvæmt
upplýsingum frá vísindanefnd
NAMMCO munu veiðar á 250 hrefn-
um ekki hafa merkjanleg áhrif á
stofnstærð hrefnu hér við land og því
má, með sömu rökum, fullyrða að
hrefnuveiðar koma ekki til með að
hafa áhrif á fiskistofnana hér við
land. Þá skal hafa í huga að lang-
reyðar eru ekki fiskætur.
Hvalaskoðunarsamtök Íslands
skora á Sturlu Böðvarsson, ráðherra
ferðamála, að hlutast til um að hval-
veiðar verði stöðvaðar nú þegar og
að málið verði tekið upp að nýju inn-
an ríkisstjórnarinnar og skoðað út
frá heildarhagsmunum þjóðarinnar
en ekki út frá ímynduðum hagsmun-
um útgerðarfyrirtækja.
Skora á ráðherra ferða-
mála að hlutast til um að
hvalveiðar verði stöðvaðar
Hrefnuveiðar hafa þegar haft skaðleg áhrif á hvala-
skoðun, segir í ályktun Hvalaskoðunarsamtakanna
Hljómeyki
Í SÉRBLAÐI um jólahlaðborð, sem
kom út í gær með Morgunblaðinu,
var rangt farið með nafn kórstjóra
sönghópsins Hljómeykis. Þar var
sagt að hann héti Ragnar Sigurðs-
son en rétt nafn er Magnús Ragn-
arsson. Biðjumst við velvirðingar á
þessum mistökum.
Rangt föðurnafn
RANGT var farið með föðurnafn
Kristínar Gunnarsdótturr fótaað-
gerðafræðings, sem skrifaði grein
um nám í fótaaðgerðafræðum í
Morgunblaðið í gær.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
Syndaflóðið
Í MORGUNBLAÐINU í gær birtist
grein eftir mig um Hálslón og öræf-
in. Í fyrirsögninni var meinleg villa.
Fyrirsögnin átti að vera „Syndaflóð-
ið“ en ekki „Syndafljóðið“ eins og
hún hljóðaði í blaðinu.
Björn Þ. Guðmundsson
LEIÐRÉTT
Á MORGUN, sunnudag, heldur
fjáröflunarnefnd Bandalags
kvenna í Reykjavík bingó á Hall-
veigarstöðum, Túngötu 14, kl. 16.
Glæsilegir vinningar, mat-
arkörfur, ferðavinningur, leik-
húsmiðar og gjafavörur.
Bingóið er haldið til styrktar
Starfsmenntunarsjóði Bandalagins.
Sjóðurinn var stofnaður 1995 og
hefur árlega styrkt ungar stúlkur
til að leita sér aukinnar mennt-
unar.
Fjáröflunarnefndin væntir góðr-
ar þátttöku til styrktar þessu þarfa
málefni, segir í fréttatilkynningu.
Bingó á Hall-
veigarstöðum
HJÁLPARSTARF kirkjunnar og
SPRON kort hafa gert með sér
samstarfssamning. Í honum felst
tilboð til e-korthafa og e2 Vild-
arkorthafa um að styrkja verkefni
Hjálparstarfs kirkjunnar með
hluta eða allri þeirri endurgreiðslu
sem korthafar fá nú í desember af
notkun sinni með kortinu. Verk-
efnið sem varð fyrir valinu er
meðal munaðarlausra barna í
Úganda.
Væntanlegt styrktarverkefni
kortshafa snýst um hjálp til barna
í Úganda sem hafa misst báða for-
eldra úr alnæmi. Hjálparstarf
kirkjunnar hefur stutt fjölda
þeirra í Rakaí- og í Ssembabule-
héraði.
Fyrir 2.500 kr. er hægt að þjálfa
ráðgjafa sem svo starfar sem sjálf-
boðaliði og heimsækir reglulega
um 5 heimili. Nýtt hús kostar
36.000 kr. Vatnstankur við hús
munaðarlausra systkina kostar að-
eins 45.000 kr. og geymir vatn til
3–4 mánaða. Hæna kostar einungis
325 kr., segir í fréttatilkynningu.
Korthöfum e-kortsins og e2
Vildarkortsins verður svo kynnt á
næsta ári hvernig framlagið hefur
verið nýtt og sagt verður frá þeim
árangri sem náðst hefur.
Samstarf
Spron og
Hjálparstarfs
kirkjunnar
Í DAG verður Sólvangsdagurinn
haldinn hátíðlegur. Að undanförnu
hefur verið unnið að endurbótum
á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í
Hafnarfirði. Þessar breytingar
verða kynntar fyrir almenningi í
dag.
„Sólvangsdagurinn hefur í mörg
ár verið hátíðisdagur heim-
ilisfólksins og starfsfólksins þar og
hefur öllum bæjarbúum og lands-
mönnum öllum, sem á því hafa
hug, gefist kostur á að kynnast
betur því sem þar fer fram á
þessu heimili eldri borgara,“ segir
í fréttatilkynningu.
Sólvangsdag-
urinn er í dag
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Fjögurra kvölda tvímennings-
keppni hjá Bridsdeild Breiðfirðinga-
félagsins lauk sunnudaginn 29/10.
með öruggum sigri þeirra Ingibjarg-
ar Halldórsdóttur og Sigríðar Páls-
dóttur.
Lokastaðan varð þessi.
Ingibj. Halldórsd. – Sigríður Pálsdóttir 1022
Unnar Guðmss. – Jóhannes Guðmarss. 1009
Gunnar Guðmss. – Sveinn Sveinsson 930
Hæsta skor kvöldsins í N/S:
Friðrík Jónsson – Gísli Gunnlaugsson 237
Ingibj. Halldórsd. – Sigríður Pálsd. 235
Lilja Kristjánsd. – Sigríður Gunnarsd. 228
Austur-Vestur
Unnar Guðmss. – Jóhannes Guðmarsson
256
Haukur Guðbjartss. – Sveinn . Kristinss.
250
Gunnar Guðmss. – Sveinn Sveinsson 231
Spilað er í Breiðfirðingabúð Faxa-
feni 14 á sunnudögum kl. 19.
Bridsfélag Siglufjarðar
Mánudaginn 10. október hófst
Siglufjarðarmót í tvímenningi. Til
leiks mættu 16 pör. Spilaðar eru
fjórar umferðir á kvöldi „Barome-
ter“sex spil milli para.
Eftir fyrstu lotu 24 spil af 90 er
staða efstu para þessi:
Guðlaug Márusd. – Ólafur Jónsson 71
Sigurður .Gunnars. – Þorsteinn Jóhanns. 51
Reynir Karlsson – Júlía Óladóttir 46
Sigurður Hafliðason – Björn Ólafss. 38
Karólína Sigurjd. – Þorsteinn Jóhanness. 13
Nú er bronsstigabaráttan hafin af
fullum krafti en sá sem fær flest
bronsstig á starfsárinu hlýtur
sæmdarheitið besti spilari félagsins
og er sérstaklega heiðraður á loka-
hófi félagsins í vertíðarlok. Flest
bronsstig eftir spilamennskuna í
október hafa hlotið:
Guðlaug Márusdóttir 60
Ólafur Jónsson 60
Anton Sigurbjörnsson 46
Bogi Sigurbjörnsson 46
Jón Kort Ólafsson 39
Kristófer Ólafsson 39
Hreinn Magnússon 33
Friðfinnur Hauksson 33
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 31. okt. var spilað á
15 borðum. Meðalskor var 312. Úr-
slit urðu þessi í N/S:
Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 379
Jóhann Benediktss. – Björn Björnss. 365
Sverrir Jónss. – Skarphéðinn Lýðss. 355
Oddur Halldórss. – Oddur Jónsson 355
A/V
Jón Hallgrímss. – Bjarni Þórarinss. 394
Bragi Björnsson – Auðunn Guðmss 371
Ólafur Ingvarss. – Sigurberg Elentínuss.
365
Anton Jónsson – Ingimundur Jónss. 330
Jón Árnason – Matthías Helgason 330
Sveit Þorsteins Laufdal efst
í Gullsmáranum
Sveitakeppni Bridsdeildar FEBK
hófst fimmtudaginn 2. nóvember.
Átta sveitir vóru skráðar til leiks.
Eftir tvær umferður eru þessar
sveitir efstar:
Sveit Þorsteins Laufdal 42
Sveit Eysteins Einarssonar 41.
Sveit Ara Þórðarsonar 38
Sveit Kristinns Guðmundss 37
Sveitakeppninni verður fram
haldið mánudaginn 7. nóvember og
fimmtudaginn 9. nóvember nk.
Jöfn keppni í Kópavogi
Það var gríðarleg spenna um
fyrsta sætið í Bergplasttvímenn-
ingnum sem lauk sl fimmtudag. Að
lokum stóðu þeir Bergplastmenn
uppi sem sigurvegarar, enda algerir
toppmenn. „165 ára parið“ var samt
ekki langt á eftir.
Lokastðan:
Jens Jensson - Þorsteinn Berg 724
Árni M. Björnss. - Heimir Tryggvas. 720
Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörundss. 698
Alda Guðnad.r - Esther Jakobsd. 693
Hæsta skor í NS:
Freyja Sveinsd - Sigríður Möller 245
Sigurlaug Bergvinsd. - Sveinn Símonars.
237
Alda Guðnad. - Esther Jakobsd. 231
AV:
Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörundss. 256
Jens Jensson - Þorsteinn Berg 237
Bernódus Kristins. - Hróðmar Sigurbjs. 230
Næsta fimmtudag hefst Aðal-
sveitakeppni félagsins og er tekið
við skráningu hjá Lofti í síma 897
0881
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni var spiluð í
Ásgarði, Stangarhyl, fimmtud.
02.11.
Spilað var á 13 borðum. Meðal-
skor 312 stig og árangur N-S:
Friðrik Jónss. - Jóhannes Guðmannss. 394
Júlíus Guðmss. - Rafn Kristjánss. 392
Haukur Guðbjartss. - Jón Jóhannss. 358
Ægir Ferdinandss. - Jóhann Lútherss. 320
Árangur A-V
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 413
Hannes Ingibergss. - Ragnar Björnss. 371
Steinmóður Einars.- Sigurður Herlufsen
362
Gunnar Jónss. - Guðbjörn Axelsson 323
Bridsfélag Borgarfjarðar
Mánudaginn 30. október spiluðu
Borgfirðingar síðasta „upphitun-
artvímenninginn“ fyrir aðalkeppn-
ina sem hefst 6. nóvember. Aldrei
slíku vant höfðu „utansveitarmenn“
hægt um sig og flestir feitustu bit-
arnir féllu í skaut heimamanna.
Bæði Hvanneyringarnir Sveinbjörn
og Lárus og ekki síður Magnús í
Birkihlíð og Sveinn á Vatnshömrum
virðast vera að toppa á réttum tíma
og þess albúnir að sýna mátt sinn og
meginn í aðaltvímenningnum. Sól-
fells Anna og Kristján í Bakkakoti
eru þó sínu heitasta parið og af fimm
kvöldum vetrarins hafa þau tekið
efsta sætið í fjögur skipti. Ekkert
sást til Guðjóns Karlssonar og því
verðum við að bíða enn um sinn með
að berja á honum – eða öfugt.
Úrslit urðu sem hér segir í N-S:
Sveinbjörn Eyjólfss. – Lárus Péturss. 265
Sveinn Hallgrímss. – Magnús Magnúss. 252
Guðm. Kristinsson – Ásgeir Ásgeirsson 244
A-V
Anna Einarsd. – Kristján Axelsson 248
Jón Eyjólfsson – Baldur Á. Björnsson 242
Þorsteinn Péturss. – Guðm. Péturss. 238
Aðaltvímenningurinn hefst næsta
mánudag og er útlit fyrir þátttöku
22 para. Spiluð verða tölvugefin spil
með barómeter-formi.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson | norir@mbl.is