Morgunblaðið - 04.11.2006, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 63
menning
EINS og fram kom á forsíðu Morgunblaðs-
ins í gær hafði verið beðið eftir tónleikum
Víkings Heiðars Ólafssonar með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands á fimmtudagskvöldið
með mikilli eftirvæntingu. Víkingur spilaði
þriðja píanókonsert Beethovens og var upp-
selt á tónleikana.
Óhætt er að fullyrða að áheyrendur hafi
ekki orðið fyrir vonbrigðum.
Frammistaða Víkings var einstaklega
glæsileg. Fyrir það fyrsta lék hann konsert-
inn af fádæma öryggi og hafi hann verið
taugaóstyrkur (hver myndi lá honum það?)
varð þess ekki vart. Það heppnaðist allt hjá
honum; hröðustu hlaup voru fullkomlega
spiluð og hljómurinn úr flyglinum ótrúlega
fallega mótaður.
Ólíkt mörgum gestapíanóleikurum sem
fram koma með Sinfóníunni var greinilegt
að Víkingur þekkti hinn afleita hljómburð
Háskólabíós út í ystu æsar og vissi upp á
hár hvernig átti að bregðast við honum.
Útkoman var styrkleikajafnvægi á milli
píanós og hljómsveitar eins og best verður á
kosið.
Auðvitað er þetta ekki nóg. Það eru til
ótal píanóleikarar í heiminum sem eru síst
verri en Víkingur. Maður hlýtur því að
spyrja sig hvort hann hafi eitthvað fram að
færa með list sinni, hvort hann hafi eitthvað
að segja.
Svarið hlýtur að vera játandi, því það sem
heyrðist á tónleikunum var ekki nein inn-
antóm sýndarmennska.
Þegar Beethoven samdi þriðja píanókons-
ertinn snerist tónsköpun hans að miklu leyti
um innri átök; örlögin, náttúruna, vilja
Guðs, manninn og alheiminn í kringum
hann. Hetjuskapur hvers konar var honum
hugleikinn, og hetjuleg frelsisbarátta gegn
neikvæðum, þrúgandi kringumstæðum varð
honum að yrkisefni.
Þetta skilaði sér að öllu leyti í túlkun Vík-
ings.
Konsertinn var þrunginn spennu og
dramatískum andstæðum; hamslausum
ástríðum, en líka lágstemmdum hugleið-
ingum þar sem stemningin var svo mögnuð
að tónleikagestir þorðu vart að anda. Píanó-
leikari sem er fær um að fremja slíkan gald-
ur er ekki bara hver sem er.
Aukalögin tvö voru líka unaðsleg, sönglag
eftir Schumann í útsetningu Liszts og vals
eftir Chopin. Blæbrigðin í báðum lögunum
voru meistaralega útfærð.
Hljómsveitin spilaði einnig prýðilega und-
ir markvissri stjórn Rumon Gamba. Sinfóní-
an er greinilega í banastuði þessa dagana
því unaður var að hlusta á leik hennar. Bæði
fylgdi hún Víkingi af kostgæfni og svo var
flutningurinn á hinu verki dagskrárinnar,
fjórðu sinfóníu Brahms, afburðagóður. Þetta
stórfenglega skáldverk varð ljóslifandi í
túlkun
Gamba og ljóðræn dýptin sem einkennir
tónlistina auðfundin. Tæknileg atriði voru
eins og þau áttu að vera; tréblásararnir
stóðu sig af aðdáunarverðu öryggi og aðrir
hljóðfærahópar voru sömuleiðis með sitt á
hreinu. Maður getur ekki annað en beðið
um meira svona.
Hetjulegur píanóleikur
með Sinfóníunni
TÓNLIST
Háskólabíó
Tónlist eftir Beethoven og Brahms. Einleikari: Vík-
ingur Heiðar Ólafsson. Sinfóníuhljómsveit Íslands
lék undir stjórn Rumon Gamba. Fimmtudagur 2.
nóvember.
Sinfóníutónleikar
Jónas Sen
KAMMERSVEIT Reykjavíkur heldur þrenna
tónleika í Stykkishólmi, á Ísafirði og Húsavík.
Leikin verða verk eftir Sveinbjörn Sveinbjörns-
son og Franz Schubert. Fyrstu tónleikarnir verða
í dag kl. 17 í Stykkishólmskirkju. Á morgun held-
ur Kammersveitin svo tónleika í Hömrum, sal
Tónlistarskólans á Ísafirði, kl. 15 og að endingu
heldur sveitin tónleika á Húsavík mánudags-
kvöldið 6. nóvember kl. 20 í sal Borgarhólsskóla.
Á efnisskrá tónleikanna eru Strengjakvintett
Schuberts í C-dúr op. 163, sem oft er nefndur
„drottning kammerverkanna“ sökum þess hversu
fallegur hann þykir, og Píanótríó í a-moll eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, annað tveggja píanó-
tríóa sem hann samdi á sínum ferli, en þau eru að
öllum líkindum hin fyrstu sem Íslendingur hefur
samið.
Meðlimir Kammersveitar Reykjavíkur að
þessu sinni eru þau Rut Ingólfsdóttir, fiðla og list-
rænn stjórnandi sveitarinnar, Sigurlaug Eðvalds-
dóttir, fiðla, Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla, Sig-
urður Bjarki Gunnarsson, selló, Hrafnkell Orri
Egilsson, selló, og Anna Guðný Guðmundsdóttir,
píanó.
Morgunblaðið/Eyþór
Kammersveit Reykjavíkur Tónleikarnir eru liður í verkefninu Tónleikar á landsbyggðinni sem
er á vegum FÍT og FÍH og hlaut styrk úr Tónlistarsjóði.
Kammersveit Reykjavíkur á faraldsfæti