Morgunblaðið - 04.11.2006, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 67
menning
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Raðhús á einni hæð auk bílskúrs óskast. Staðgreiðsla í
boði. Hentug stærð 125-170 fm.
Allar nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
RAÐHÚS Á EINNI HÆÐ
Á VATNSENDASVÆÐINU ÓSKAST
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Vorum beðin að útvega 55-75 fm 2ja herbergja íbúð í grónu hverfi,
t.d. Háaleiti, Vesturbæ, Hlíðum eða austurborginni.
Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
2JA HERBERGJA ÍBÚÐ
Í GRÓNU HVERFI ÓSKAST
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
ATH! SÍÐUSTU SÝNINGAR
Frumsýning 18. nóvember kl. 20 - 2. sýning 25. nóvember kl. 20
3. sýning 2. desember kl. 20
ATH! AÐEINS ÞESSAR ÞRJÁR SÝNINGAR
STRENGJALEIKHÚSIÐ
Strengjaleikhúsið í samvinnu við íslensku óperuna
SKUGGALEIKUR
Ný íslensk ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur,
Sjón og Messíönu Tómasdóttur
ARÍUR UM ÁSTINA - HÁDEGISTÓNLEIKAR ÞRIÐJUD. 14. NÓV. KL.12.15
Jónas Guðmundsson, tenór, og Kurt Kopecky, píanó, flytja rússneskar og ítalskar aríur í hádeginu
!
"""#$
%#
&'
()$ * +,
$ - *
.$ * $ / *
Listaháskóli Íslands hefur ver-ið í umræðunni undanfarnadaga og sýnist sitt hverjum.
Málið snýst um verkefni í leiklist-
ardeild skólans, þar sem nemendur
áttu að draga upp mynd af ljótleika
í samfélaginu. Þrír karlkyns nem-
endur klipptu skapahár nakins
kvennemanda og karlkyns nemandi
pissaði á fætur hennar. Listahá-
skólinn hefur neitað að tjá sig um
málið og segir það innanhússmál,
en það sé stefna skólans að nem-
endur standi skil á sínum verk-
efnum gagnvart kennurum sínum
en ekki fjölmiðlum. Í pistli sínum 2.
nóvember sl. er Bergþóra Jóns-
dóttir á Morgunblaðinu sammála
og segir Listaháskólann hafa breytt
rétt. Að grípa inn í hefði skert list-
rænt tjáningarfrelsi nemenda og á
þann hátt hefði skólinn brugðist
trausti þeirra.
Hér er ég ekki sammála. Þetta
mál lætur mig ekki í friði og að
mínu mati er hér ekki rétt að stað-
ið. Vandinn liggur ekki í að leggja
mat á úrlausn nemendanna enda er
það hlutverk kennara, heldur í því
hvort kennarar LHÍ hafi brugðist
rétt við með því að láta fram-
kvæmdina eiga sér stað og síðan
eftir að málið komst í fjölmiðla,
hvort skólinn geri rétt með því að
bregðast við með þögninni einni.
Að mínu mati hefur Listaháskól-inn brugðist nemendum sínum
með því að láta athæfið viðgangast.
Eins og Bergþóra bendir á í pistli
sínum er það umhugsunarvert að
nemendur bregðist á svo grófan
máta við verkefninu og end-
urspeglar það ef til vill firrta sið-
gæðisvitund samfélagsins. En eru
ekki viðbrögð kennara og skólans
enn firrtari með því að gera enga
athugasemd?
Hefðu reyndir listamenn verið á
ferð með sýningu væri ég ekki að
skrifa þessar línur. Og ekki hef ég
áhuga á að gerast siðgæðisvörður
LHÍ þó að óhjákvæmilega setji ég
mig í slík spor með þessum pistli.
Varla þarf að taka fram að ég er
fylgjandi listrænu tjáningarfrelsi.
En hér er um nemendur en ekki
listamenn að ræða og þar liggur
kjarni málsins. Að vísu fullorðið
fólk, um eða yfir tvítugu eða eldra,
en engu að síður nemendur undir
handleiðslu kennara sinna sem þau
þurfa að treysta. Það hlýtur að vera
hlutverk skólans að vernda nem-
endur sína fyrir uppákomum af
þessu tagi, einnig þegar allir taka
fúsir þátt eins og ég efast ekki um
að hér hafi verið raunin. Mig langar
að varpa fram þeirri spurningu
hvort það sé ekki á ábyrgð kennara
að nemendur fremji ekki athæfi
sem þeir hafa hugsanlega hvorki
listrænan né siðferðislegan þroska
til að meta og komi ef til vill til með
að sjá eftir síðar? Hefði ekki verið
hægt að sýna nemendum fram á að
ef til vill væri hægt að draga upp
mynd af athæfi á borð við þetta
með dramatískari aðferðum en
bókstaflegri framkvæmd?
Listaháskólinn ætlar ekki að tjá
sig um þetta mál í fjölmiðlum. Skilj-
anlega er það ekki stefna skólans
að fjalla um einstaka nemendur eða
kennara í fjölmiðlum. En er ekki
líka sjálfsagt að Listaháskólinn taki
afstöðu til siðferðislegra málefna ef
þörf krefur?
Það sem er erfitt í þessu máli erað annars vegar eiga nem-
endur skólans vissulega að vera
stikkfrí ef svo má segja, í þeirri list-
sköpun sem fram fer innan veggja
skólans og er ekki á opinberum
vettvangi. En hins vegar hlýtur
Listaháskólinn að bera ábyrgð
gagnvart nemendum sínum og enn-
fremur samfélaginu. Almenn skyn-
semi hlýtur að geta dregið mörkin
einhvers staðar, án þess að vera
með óþarfa eða teprulega rit-
skoðun. Ef athæfi af þessum toga er
látið viðgangast án athugasemda
vekur það spurningar sem erfitt er
að svara og um leið glatast tæki-
færi til einkar þarfrar og spenn-
andi umræðu.
Hvenær á að segja stopp?
AF LISTUM
Ragna Sigurðardóttir
» Almenn skynsemihlýtur að geta dregið
mörkin einhvers staðar,
án þess að vera með
óþarfa eða teprulega rit-
skoðun.
LHÍ Skólinn hefur aðsetur á nokkrum stöðum í Reykjavík.
ragnahoh@simnet.is
Útvarpsstöðin X-ið 97,7 munstanda fyrir fyrsta Íslands-
mótinu í skyrglímu og fer það fram á
skemmtistaðnum Pravda við Aust-
urstræti í dag. Af þessu tilefni mun
hljómsveitin Brain Police troða upp.
Hægt er að skrá sig til þátttöku á
netfanginu skyrglima@xid977.is.
Vinningarnir eru ekki af verri
endanum. Íslandsmeistarinn í
kvennaflokki fær tvær nætur með
morgunverði fyrir tvo á Hótel Ven-
us, 10 tíma ljósakort frá Ibiza, út að
borða fyrir tvo á Galileo, 10.000 kr.
inneign hjá skór.is og klippingu hjá
Hárkompaníinu. Íslandsmeistarinn í
karlaflokki fær nýja geisladiskinn
frá Hildi Völu, La la la.
„Ástæðan fyrir þessum gífurlega
mun er sú að við viljum jafna ára-
langan ójöfnuð kynjanna er snýr að
launum og verðlaunafé,“ segir meðal
annars í tilkynningu frá X-inu.
Fólk folk@mbl.is
Klukkan 16 í dag verður sænskamyndin Sven Klangs Kvintett
(1976) í leikstjórn Stellan Olson
sýnd í Kvikmyndasafninu. Sögusvið-
ið er sænskur smábær árið 1958.
Sven Klang stýrir þorpsbandinu þar
til sveitinni bætist liðsauki með
saxófónleikaranum Lasse sem gerir
athugasemdir bæði við stjórnunina
og skiptingu ágóðans. Auk þess vill
hann að sveitin spili meiri djass.
Þetta er gott dæmi um leikmanna-
hljómsveit sem skyndilega verður að
alvöru djasssveit þegar atvinnumað-
ur bætist í hópinn.
Sýningar Kvikmyndasafnsins eru
í Bæjarbíói, Strandgötu 6 í Hafn-
arfirði, alla þriðjudaga kl. 20 og á
laugardögum kl. 16. Miðasala opnar
hálftíma fyrir sýningar og miðaverð
er 500 krónur. Frekari upplýsingar
er að finna á heimasíðunni
www.kvikmyndasafn.is.
Fréttir á SMS
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn