Morgunblaðið - 04.11.2006, Qupperneq 68
68 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Hverjir bjuggu
í skálanum?
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
GRETTIR, LÍF MITT
ER EINMANNALEGT
ÉG ER EINSAMALL MAÐUR Á
GÖTUM EINSEMDARINNAR...
LALALAAA!! ÉG HÉLT
AÐ ÞETTA
MUNDI
KOMA
LANGAR ÞIG
AÐ HEYRA
SVOLÍTIÐ SÆTT
SEM SOLLA
GERÐI Í GÆR?
VISSIRÐU AÐ SOLLA ER
LITLA SYSTIR MÍN?
ÉG HEITI
KALLI!
ÉG HELD AÐ ÉG HAFI
ÞÖRF FYRIR AÐ
BREYTA UM ÍMYND
ÉG HELD AÐ ÉG MUNI
VINNA VEGNA ÞESS AÐ ÉG
LÆT VERKIN TALA OG ER
STAÐFASTUR Á MÍNUM
SKOÐUNUM
FYRST SVO
ER ÞÁ ÁTTU
EFTIR AÐ
VERA FLJÓTUR
AÐ MISSA
STARFIÐ
KALVIN,
ÞAÐ ER
KOMINN
HÁTTA-
TÍMI
ÉG SÉ FYRIR-
SAGNIRNAR NÚNA!
„PABBI NÆR EKKI
ENDURKJÖRI!“
„PABBI HLÝTUR
AFHROÐ Í NÝLEGUM
KOSNINGUM!“
GÓÐA
NÓTT
VONANDI ER
HELGA BÚIN AÐ
GLEYMA RIFRILDINU
FRÁ ÞVÍ ÁÐAN
LÍTUR
EKKI ÚT
FYRIR
ÞAÐ
GRÍMUR, VILTU EKKI
FÁ ÞÉR ÁVÖXT? OJ
BARA!
ÞÚ ÆTTIR Í
ALVÖRUNNI
AÐ FÁ
ÞÉR EINN!
MUNDU, EINN
ÁVÖXTUR Á
DAG KEMUR
SKAPINU Í LAG
HANN
GERIR
ÞAÐ EF ÉG
KASTA
HONUM
Í ÞIG
VIÐ ERUM EKKI MEÐ NEINA
PÖSSUN FYRIR MORGUNDAGINN,
ÞANNIG AÐ ÞÚ VERÐUR AÐ TAKA
KRAKKANA MEÐ Í VINNUNA
NÚ?
ÞAÐ ER ALLT VITLAUST
AÐ GERA HJÁ MÉR
Á MORGUN
ÉG GET EKKI HAFT
ÞAU MEÐ MÉR INNI Á
STOFUNNI HJÁ MÉR
ÉG HLAKKA SVO TIL ÞEGAR
SUMARBÚÐIRNAR BYRJA
TAKK FYRIR AÐ
KOMA Í ÞÁTTINN
HJÁ MÉR!
TAKK, VIÐ...
ÆÆ! RIFIÐ Á MÉR
PETER ER MEÐ MARIÐ
RIF ALVEG EINS OG
KÓNGULÓARMAÐURINN...
ÉG GET LAGT TVO OG
TVO SAMA... OG FENGIÐ
ÚT JARÐARFÖR
KÓNGULÓARINNAR
Knattspyrnufélag Reykja-víkur heldur svokallaðKR-þing í dag, laugar-dag.
Fundurinn, sem haldinn er undir
yfirskriftinni Hverjir verða bestir?
er haldinn í KR-heimilinu við Frosta-
skjól í DHL-höllinni.
Guðjón Guðmundsson er formaður
Knattspyrnufélagsins: „Um nokkurt
skeið hefur umfangsmikil stefnumót-
unarvinna verið í undirbúningi hjá
KR. Þingið á laugardag er fyrsta
áfangaskrefið í þeirri vinnu og er
ætlunin að fá KR-inga, Vesturbæ-
inga og alla aðra sem telja sig hafa
hagsmuna að gæta í starfsemi KR, til
að mæta og hafa áhrif á framtíðar-
stefnu félagsins,“ útskýrir Guðjón.
„Við viljum endilega að sem flestir
mæti og láti rödd sína heyrast.“
Sögu Knattspyrnufélags Reykja-
víkur má rekja til ársins 1899 en
starfsemi félagsins hefur tekið stöð-
ugum breytingum í samræmi við
breyttar þarfir samfélagsins: „Um-
hverfi íþróttafélaga hefur verið að
breytast mikið að undanförnu: gerð-
ar eru aðrar kröfur til félaganna,
bæði frá foreldrum, meðlimum fé-
lagsins, og samfélaginu. Sveitarfélög
eru mörg farin að styðja betur við
íþróttastarf og um leið gera auknar
kröfur til starfsins. KR stendur
frammi fyrir mörgum spurningum
um framtíð starfsins, m.a. hvernig
samstarf íþróttafélagsins og skóla á
að vera, og hvaða sjónarmiðum á að
fylgja þegar ákveðið er hvaða
íþróttagreinum félagið á að sinna,
s.s. hvort KR eigi aðeins að sinna af-
reksíþróttastarfi. Einnig þarf að
huga að hvernig hátta á skipulagi,
stjórn og fjármögnun starfsem-
innar,“ segir Guðjón.
Umræður og skemmtiatriði
Þingið er haldið með aðstoð ráð-
gjafarfyrirtækisins ALTA sem sér
hefur sérhæft sig í þinghaldi af þessu
tagi. Felix Bergsson verður kynnir
og verða haldin skemmtiatriði í byrj-
un þingsins og í hádegishléi en
fundað verður með n.k. samræðu-
fyrirkomulagi þar sem þátttakendur
ræða 4–5 saman við borð í 20 mín-
útna umferðum: „Umræður hefjast á
opinni spurningu: „Hvaða spurninga
eigum við að spyrja okkur varðandi
starfsemi KR á 21. öldinni“. Eftir
þrjár umferðir af umræðum mun
hvert borð leggja fram eina spurn-
ingu. Sérstakur hópur fer yfir til-
lögur borðanna og velja spurningar
til umræðu í næstu umferðum,“ út-
skýrir Guðjón. „Þær áherslur sem
koma út úr fundinum verða síðan
viðfangsefni vinnuhópa sem starfa
innan félagsins sem síðan gera end-
anlegar tillögur að stefnu Knatt-
spyrnufélags Reykjavíkur.“
KR þingið hefst kl. 10 og er áætlað
að það standi til 15.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill og ekki þarf að skrá þátttöku
fyrirfram eða taka þátt í allri dag-
skrá þingsins.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu Knattspyrnufélags
Reykjavíkur á slóðinni http://
www.kr.is.
Íþróttir | Opinn stefnumótunarfundur
Knattspyrnufélags Reykjavíkur í dag kl. 10
Drögin lögð að
framtíð KR
Guðjón Guð-
mundsson fædd-
ist á Ísafirði
1951. Hann lauk
stúdentsprófi frá
Verslunarskóla
Íslands 1973,
cand. oecon
gráðu frá Há-
skóla Íslands
1977 og cand. merc. frá Verslunar-
háskólanum í Kaupmannahöfn
1984. Guðjón starfaði sem kennari
frá 1984–1994 og sem rekstrarráð-
gjafi frá 19834–2005. Hann hefur
verið framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra sparisjóða frá 2004. Guð-
jón var formaður knattspyrnudeild-
ar KR 1998–2003 og formaður KR
frá 2003. Guðjón er kvæntur Heiðu
Jóhannsdóttur innanhúsarkitekt og
eiga þau tvö börn.
Julia Roberts er tilbúin til þess aðbyrja að leika aftur eftir hún
eignaðist tvíbura í nóvember árið
2004. Hún mun meðal annars leika í
kvikmyndinni Charlie Wilson’s War
ásamt þeim Tom Hanks og Philip
Seymour Hoffman, en um er að
ræða pólitískan spennutrylli.
Þá mun hún
leika í myndinni
The Friday Night
Knitting Club
sem byggð er á
samnefndri sögu
Kate Jacobs sem
fjallar um ein-
stæða móður sem
rekur prjóna-
verslun í New York þar sem við-
skiptavinir koma saman reglulega
og ræða um lífið og tilveruna.
Fólk folk@mbl.is