Morgunblaðið - 04.11.2006, Page 72
72 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.HASKOLABIO.ISSTÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS HAGATORGI • S. 530 1919
Varðveit líf mitt fyrir
ógnum óvinarins
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
BESTA MYND MARTINS
SCORSESE TIL ÞESSA
SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR
HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA
LES MAUVAIS JOUEURS
HINIR TAPSÁRU
ÖRFÁAR SÝNINGAR
„THE DEPARTED ER EÐAL
GLÆPAMYND EINS OG ÞÆR
GERAST BESTAR OG ER ENN EIN
RÓSIN Í HNAPPAGAT SCORSESES.“
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
T.V. KVIKMYNDIR.IS
Munið afsláttinn
eee
H.J. MBL
eeee
Davíð Örn Jónsson
– Kvikmyndir.com
eeeee
Hallgrímur Helgason
– Kastljósið
eeee
H.S. – Morgunblaðið
eeee
DV
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
BÖRN
KVIKMYND
EFTIR
RAGNAR
BRAGASON
MÝRIN kl. 3 - 5 - 7 - 9 - 10:30 B.i. 12.ára.
THE LAST KISS kl. 3 - 5:30 - 8 - 11:10 B.i. 12.ára
WORLD TRADE CENTER kl. 10:30 B.i. 12.ára
THE QUEEN kl. 3 - 5:50 B.i. 12.ára.
THE DEPARTED kl. 3 - 6 - 9 B.i. 16.ára.
BÖRN kl. 8 B.i.12.ára.
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI
„MILLION DOLLAR BABY“ OG „CRASH“
Vel gerð og rómantísk
með þeim Zach Braff
(„Scrubs“, „Garden
State“), Rachel Bilson
(„The O.C.“) ofl.
HEIMURINN HEFUR FENGIÐ AÐVÖRUN.
SÝND KL. 8 Á
SUNNUDAG
eeee
EMPIRE MAGAZINE
þess að afla Halldóri
fylgis eftir því sem
Víkverji veit bezt og
tókst það með miklum
ágætum eins og sjá
má.
Enda hefur Geir
komið sér vel meðal
stjórnmálamanna ann-
ars staðar á Norður-
löndum og á auðvelt
með að eiga samskipti
við þá vegna tungu-
málakunnáttu sinnar.
Og á þar að auki sterk-
ar rætur í Noregi eins
og komið hefur fram.
Það er mikilvægara
en nokkru sinni fyrr að
við Íslendingar eigum nú trúnaðar-
mann í lykilstöðu á vettvangi
Norðurlandaráðs.
Eftir að fjarlægðin á milli Íslands
og Bandaríkjanna hefur aukizt hef-
ur hún minnkað á milli Íslands og
annarra Norðurlanda.
Þess vegna hljótum við að leggja
stóraukna áherzlu á að efla þátttöku
okkar í samstarfi Norðurlandanna,
sem eru auðvitað eðlilegustu banda-
menn okkar.
Heimsstyrjöldin síðari og svo
kalda stríðið brengluðu þá mynd.
Halldór Ásgrímsson verður nú
trúnaðarmaður Norðurlandanna
allra en Íslands sérstaklega!
Það er ástæða til aðóska Halldóri Ás-
grímssyni, fyrrum for-
sætisráðherra, til
hamingju með kjör
hans til að verða
framkvæmdastjóri
norrænu ráðherra-
nefndarinnar. Eftir að
standa í eldlínu ís-
lenzkra stjórnmála í
áratugi er það áreið-
anlega mikil breyting
fyrir Halldór og fjöl-
skyldu hans að skipta
um starfsvettvang og
breyta um umhverfi.
Það er hins vegar
ekkert sjálfgefið að ís-
lenzkur stjórnmálamaður nái þess-
ari stöðu á sameiginlegum vettvangi
Norðurlandanna, jafnvel þótt um
fyrrverandi forsætisráðherra sé að
ræða. Þarna nýtur Halldór þess að
eiga að baki langan feril í íslenzkum
stjórnmálum, sem hefur orðið til
þess að hann hefur kynnzt fjölda-
mörgum ráðamönnum á öðrum
Norðurlöndum.
Svo má ekki gleyma því, að Hall-
dór hafði bakhjarl, sem vann sleitu-
laust fyrir hann að tjaldabaki.
Það var Geir H. Haarde, eftir-
maður Halldórs í forsætisráðherra-
stól, sem talaði við alla forsætisráð-
herra á öðrum Norðurlöndum til
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins : Hann stendur mér við hlið til þess
að veita mér lið og vernd. (Daníel 11, 1.)
Í dag er laugardagur
4. nóvember, 308. dagur
ársins 2006
Velvakandi
Svarað í síma 569 1100 frá kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hvar er jólamyndin?
ÉG VIL auglýsa eftir gömlu jóla-
myndinni minni sem ég hafði átt
næstum alla mína ævi. Eins og sjá má
á meðfylgjandi mynd var hún orðin
alllasleg, svo ég tók mig til eitt árið og
lét ramma hana inn í rauðan ramma,
með grænum blindramma. Eftir það
var hún ekki framar geymd í kassa
með öðru jóladóti, heldur annars
staðar; aðeins hengd upp á jólum.
Hún varð svo einhverra hluta vegna
viðskila við aðrar eigur mínar, ein-
hvers staðar, í flutningum fyrir
nokkrum árum, en ég geri mér alls
ekki grein fyrir því hvar eða hvernig!
Ég saknaði hennar fyrst þegar leið að
jólum, og hef spurst fyrir þar sem
mér hefur dottið í hug að hún gæti
verið, en án árangurs. Nú líður enn
að jólum og ég sakna myndarinnar
minnar. Það kæmi mér svo sann-
arlega í jólaskap ef einhver gæti sagt
mér hvar hún er niður komin!
Með von um góðar undirtektir,
Greta Björg Úlfsdóttir,
s. 695 9636,
gretabjorg@myway.com.
Síminn minn var hleraður
AÐ GEFNU tilefni langar mig að
upplýsa að árið 1967 eða 1968 var ég
að tala við móður mína í síma. Allt í
einu heyrði ég fliss og skræki í síman-
um og ekki var annað að heyra en að
síminn væri hleraður. Síðar fréttist
að um var að ræða strákaprakkara
sem bjuggu í sömu blokk og voru að
leika sér að hlera síma nágrannanna.
Kannski hafa þeir hlerað fleiri síma?
Og kannski voru þeir ekki unglingar í
prakkaraleik? En hver veit það?
Inga.
Ullarkápa tekin í misgripum í
Seltjarnarneskirkju í vor
SÍÐASTLIÐIÐ vor var messa í Sel-
tjarnarneskirkju á vegum Kvenna-
kirkjunnar á sunnudagskvöldi. Í
messunni spilaði ungt tónlistarfólk og
voru stoltir aðstandendur þess meðal
kirkjugesta.
Í fatahengi kirkjunnar hengdi ég
brúna vetrarkápu, einhneppta með
bundnu belti. Einhver tók hana í mis-
gripum og skildi eftir áþekka kápu,
heldur stærri og beltislausa. Líkleg-
ast er að mín hafi ekki komið fram í
Seltjarnarneskirkju eða hjá Kvenna-
kirkjunni vegna þess að hún hafi
fljótlega eftir kirkjuferðina lent inni í
skáp og beðið þar kaldra haustdaga.
Mig langar mikið að fá kápuna
mína aftur og því meira er kólnar. Því
spyr eg þig lesandi góður, óx belti á
brúnu vetrarkápuna þína og þrengd-
ist hún heldur í skápnum í sumar? Ef
svo er viltu þá hafa samband í síma
861 1291 eða við Kvennakirkjuna í
Kvennagarði við Laugarveg en þar
bíður fína brúna ullarkápan þín þess
að komast í réttar hendur.
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
80 ára af-mæli. 6.
nóvember nk.
verður áttræður
Einar Guðna-
son, skipstjóri,
Aðalgötu 3,
Suðureyri. Í til-
efni af því ætlar
hann og eigin-
kona hans,
Guðný Kristín Guðnadóttir, að taka á
móti ættingjum og vinum á veitinga-
staðnum Talisman á Suðureyri, laugar-
daginn 4. nóvember á milli klukkan 18
og 21.
Brúðkaup | Brynja Olgeirsdóttir og
Jan Frode Stø giftu sig í Skåbu kirkju
22. júlí 2006 í Noregi.
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar
um afmæli, brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar þurfa að berast
með tveggja daga fyrirvara virka daga
og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100 eða sent á net-
fangið ritstjorn@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.