Morgunblaðið - 08.11.2006, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
ÞENSLAN í efnahagskerfinu er of
mikil sem leiðir til þess að það eru að
verða til of mörg störf. Ekki er hægt
að manna þessi störf með innlendu
vinnuafli og þess vegna fjölgar hér
erlendu launafólki. Þetta segir Gylfi
Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri
ASÍ, sem gagnrýnir stjórnvöld fyrir
lausatök í efnahagsmálum.
Í júní gáfu SA og ASÍ út sameig-
inlega yfirlýsingu varðandi málefni
vinnumarkaðarins í tengslum við þá
ákvörðun að framlengja ekki fyrir-
vara Íslands við aðild átta nýrra að-
ildarríkja ESB að sameiginlegum
vinnumarkaði. Hvor tveggja samtök-
in studdu að framlengja ekki fyrir-
varann. Gylfi sagði að í samráðsnefnd
aðila vinnumarkaðarins og stjórn-
valda hefði verið rætt um aðild Búlg-
aríu og Rúmeníu að sameiginlegum
evrópskum vinnumarkaði. Ísland
getur gert fyrirvara um aðild þessara
landa, en Gylfi sagði afstöðu ASÍ ekki
liggja fyrir varðandi þetta mál.
„Við höfum lagt áherslu á að
styrkja innviði vinnumarkaðarins
óháð fjölgun aðildarríkja Evrópu-
sambandsins. Það er ljóst að það eru
veikleikar í okkar regluverki sem að
mestu leyti snúast ekki um hvort við
munum beita frestunarákvæðinu
gagnvart þessum tveimur löndum
eða ekki,“ sagði Gylfi og bætti við að
áformað hefði verið að ljúka vinnu við
gerð nýrra reglna í nóvember.
Gylfi sagði að ASÍ hefði áhyggjur
af því hversu lítil áhersla væri lögð á
að aðstoða útlendinga, maka og börn,
við að ná tökum á íslensku. Þetta
skipti meira máli en hvað gerðist 1.
janúar þegar Búlgaría og Rúmenía
ganga í ESB.
Gylfi sagðist ekki telja að það
hefðu verið mistök hjá ASÍ að styðja
það að ekki yrði gerður fyrirvari við
aðild þessara átta nýju aðildarríkja.
ASÍ hefði stutt frjálst flæði vinnuafls
vegna þess að réttarstaða fólks væri
betri við slíkar aðstæður en í því kerfi
sem komið hafði verið á áður. Það
kerfi hefði stuðlað að mikilli notkun á
starfsmannaleigum með tilheyrandi
vandamálum bæði fyrir vinnumark-
aðinn hér heima og ekki síður fyrir
það erlenda launafólk sem starfaði
hjá starfsmannaleigunum.
ASÍ hafnar því að það hafi verið mistök að setja ekki fyrirvara við stækkun ESB
Fjölgun erlends vinnuafls
afleiðing mikillar þenslu
Morgunblaðið/Eggert
Erlent vinnuafl Hópur af pólskum verkamönnum ræðir saman í kaffihléi.
LEIKSKÓLARÁÐ samþykkti á
fundi sínum sl. mánudag, að leggja
til við borgarráð að niðurgreiðsla til
dagforeldra hækki um u.þ.b. 40%,
þannig að meðaltalsgreiðsla til dag-
foreldra verði um 38 þúsund krónur
á mánuði. Áætlaður kostnaðarauki
vegna þessa eru 85,5 milljónir króna
vegna dagforeldra og 11,9 mill.kr.
vegna sjálfstætt rekinna leikskóla
eða samtals 97,4 milljónir kr. Jafn-
framt leggur leikskólaráð til við
borgarráð að niðurgreiðsla til sjálf-
stætt rekinna leikskóla hækki þann-
ig að framlag til þeirra sé ekki minna
en meðaltalskostnaður borgarrek-
inna skóla. Gert er ráð fyrir að
kostnaðarauki borgarsjóðs vegna
þessa verði 55 milljónir króna. Sam-
tals leggur meirihluti borgarinnar
því til 152,4 millj-
ón króna auka-
fjárveitingu til
leikskólaráðs fyr-
ir árið 2007. Gert
er ráð fyrir að til-
lagan verði rædd
á fundi borgar-
ráðs á morgun
þar sem fjárhags-
áætlun borgar-
innar verður til
umræðu. Í framhaldinu verður málið
síðan tekið fyrir í borgarstjórn.
Að sögn Þorbjargar Helgu Vigfús-
dóttur, formanns leikskólaráðs,
þykja þessar ráðstafanir nauðsyn-
legar til þess að bregðast við aukinni
þörf fyrir dagvistun til handa yngstu
borgarbúum, en 9% fleiri börn fædd-
ust árið 2005 en árið áður og því ljóst
að aukin þörf verði fyrir gæslu
þeirra á næstunni. „Okkur þótti
nauðsynlegt að jafna rekstrarfé til
þessara tveggja aðila svo hægt verði
að veita þessa þjónustu á öruggari
hátt en áður,“ segir Þorbjörg Helga
og vonast til þess að hækkun á
greiðslum til dagforeldra verði til
þess að fleiri dagmæður ákveði að
halda áfram rekstri og að nýjar bæt-
ist við. Segir hún breytinguna einnig
miða að því að tryggja betur rekstr-
arumhverfi einkarekinna leikskóla,
sem séu mikilvægur valkostur þegar
komi að dagvistun yngstu barnanna.
Að sögn Þorbjargar Helgu þarf
leikskólaráð í framhaldinu að skil-
greina betur greiðslur til leikskóla
fyrir börn yngri en 18 mánaða.
Til að bregðast við
9% stærri árgangi
Meirihlutinn leggur til rúmlega 150 milljón króna auka-
fjárveitingu til leikskólaráðs borgarinnar fyrir árið 2007
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
KEPPNIN um sterkasta mann
heims verður haldin í Reykjavík
20.–25. nóvember nk. til heiðurs
minningunni um Jón Pál Sigmars-
son, en hann hlaut titilinn Sterkasti
maður heims fjórum sinnum. Stytta
af Jóni Páli er verðlaunagripur
keppninnar. Á blaðamannafundi í
gær sýndi borgarstjóri að fleiri
geta hnyklað vöðvana.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sá sterkasti í heimi
VALGERÐUR Sverrisdóttir utan-
ríkisráðherra átti í gær fund með
Viktor Janúkóvitsj forsætisráð-
herra Úkraínu. Ræddu ráðherrarn-
ir m.a. um tví-
hliða samskipti
Íslands og Úkra-
ínu, áform Úkra-
ínu um aðild
landsins að Al-
þjóðavið-
skiptastofn-
uninni (WTO) og
möguleika á frí-
verslunarsamn-
ingi milli EFTA-
ríkjanna og
Úkraínu. Þá voru söguleg tengsl
Úkraínu og Íslands í gegnum tíðina
rædd.
Einnig átti utanríkisráðherra
fund með Valery Pyatnisky, aðstoð-
arefnahagsráðherra Úkraínu. Á
fundinum ræddu ráðherrarnir auk-
in viðskipti landanna og fjárfest-
ingar Íslendinga í Úkraínu. Þá
ítrekaði aðstoðarefnahagsráðherr-
ann áhuga Úkraínu á fríversl-
unarsamningi við EFTA-ríkin.
Ennfremur heimsótti utanrík-
isráðherra starfsstöð Actavis í
Kænugarði og kynnti sér jafnframt
starfsemi Creditinfo Group sem hóf
nýlega samstarf við samtök banka í
Úkraínu.
Möguleikar á frí-
verslunarsamn-
ingum ræddir
Valgerður
Sverrisdóttir
Eva Kristinsdóttir
sjúkraliði lést á líknar-
deildinni á Landakoti
sl. mánudag, 75 ára að
aldri.
Eva fæddist í
Reykjavík 19. maí árið
1931, dóttir hjónanna
Kristins Magnússonar,
stýrimanns og verk-
stjóra, og Ágústu
Kristófersdóttur, sem
starfaði við heimilis-
hjálp. Eva útskrifaðist
úr Kvennaskólanum í
Reykjavík árið 1949.
Hún nam við öldunga-
deild MH á árunum 1980–82 og út-
skrifaðist sem sjúkraliði úr Sjúkra-
liðaskóla Íslands 1983. Þá lauk hún
framhaldsnámi í umönnun aldraðra.
Eva starfaði um árabil í prent-
smiðju Morgunblaðsins en hóf síðar
störf sem sjúkraliði á lýtalækninga-
deild Landspítalans. Lengst af starf-
aði hún við heimahjúkrun á höfuð-
borgarsvæðinu, og fram á þetta ár á
elliheimilinu Grund.
Hinn 10. mars árið
1951 gengu Eva og
Ólafur K. Magnússon,
ljósmyndari Morgun-
blaðsins, í hjónaband.
Ólafur fæddist árið
1926. Hann nam ljós-
myndun í Bandaríkjun-
um og var fyrstur Ís-
lendinga til að helga
ævistarf sitt fréttaljós-
myndun. Ólafur starf-
aði á Morgunblaðinu í
49 ár en hann lést árið
1997, 71 árs að aldri.
Eftir andlát Ólafs af-
henti Eva Morgunblaðinu umfangs-
mikið myndasafn hans og aðstoðaði
við að gera það aðgengilegt fyrir al-
mennning.
Börn Evu og Ólafs K. eru fimm;
Kristinn, Berglind, Anna Lóa, Mar-
grét Lind og Magnús Sverrir.
Morgunblaðið þakkar Evu langa
samferð og samstarf og vottar ætt-
ingjum hennar samúð.
Eva Kristinsdóttir
Andlát
BORGARSTJÓRN samþykkti sam-
hljóða á fundi sínum í gær að vísa
tillögu borgarfulltrúa Vinstri
grænna um aðgerðir til að jafna
hlut kynjanna við íþróttaiðkun til
borgarráðs. Sóley Tómasdóttir,
varaborgarfulltrúi Vinstri grænna,
flutti tillöguna en fram kom í máli
hennar að fjölmiðlaumfjöllun und-
anfarinna vikna bæri með sér að
kynin sætu ekki við sama borð hvað
afreksíþróttir varðar. „Engin
ástæða er til að ætla að annað eigi
við um almenna íþróttaiðkun
drengja og stúlkna á yngri árum.
Heilmikil vakning hefur þó átt sér
stað hjá íþróttahreyfingunni en bet-
ur má ef duga skal,“ sagði Sóley.
Borgarfulltrúar annarra flokka
tóku undir orð hennar og sammælt-
ust um að breytt hugarfar þyrfti í
þessum efnum.
Aðgerðir til
að jafna hlut
kynjanna við
íþróttaiðkun