Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
„OFT er sagt að gott sé að stimpla
sig strax inn og ég þekki ekki
marga öflugri ræðumenn á þinginu
en Steingrím J. Sigfússon, þess
vegna þótti mér gaman að fara
gegn honum í umræðunni,“ sagði
Björn Ingi Hrafnsson, formaður
borgarráðs og varaþingmaður Jón-
ínu Bjartmarz umhverfisráðherra,
en hann tók sæti ráðherra á mánu-
dag. Björn Ingi er síðasti 1. vara-
þingmaður á Alþingi til að taka
sæti á yfirstandandi kjörtímabili.
Jónína er á leið á loftslags-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í
Kenía og mun Björn Ingi taka sæti
hennar í tvær vikur. Hann lét
snemma til sín taka á mánudag og
tók til máls í umræðum um frum-
varp um breytingar á tekjuskatti.
„Ég hef ágætis reynslu í að takast
á við þessa kappa í sjónvarpsþátt-
um en það er svolítið öðruvísi að
segja alltaf virðulegi forseti eða
háttvirti þingmaður. Ég held að ég
hafi gert þetta nokkuð skammlaust
og hafði gaman af.“
Með annan fótinn í húsinu
Björn Ingi er öllum hnútum
kunnugur í Alþingishúsinu enda
hefur hann sinnt
ýmsum störfum í
kringum þingið.
„Ég hóf fyrst
svona dagleg
störf í húsinu
sem þing-
fréttamaður
Morgunblaðsins,
fannst það mjög
skemmtilegt og-
kynntist þing-
mönnum úr öllum flokkum,“ segir
Björn Ingi sem síðar varð fram-
kvæmdastjóri þingflokks Fram-
sóknarflokksins og aðstoðarmaður
Halldórs Ásgrímssonar er hann
gegndi stöðu utanríkisráðherra og
forsætisráðherra.
Situr ekki auðum höndum
Björn Ingi tók þrisvar þátt í tvö-
földum andsvörum á mánudag en
hélt sig til hlés í gær. Hann segist
þó ekki hafa sagt sitt síðasta á
þinginu. „Ég er búinn að senda frá
mér nokkrar fyrirspurnir sem
tengjast áhugamálum mínum og
samskiptum ríkis og sveitarfélaga.
Þar að auki er ég með frumvarp í
smíðum.“
Held ég hafi gert þetta
nokkuð skammlaust
Björn Ingi Hrafnsson er síðasti 1. vara-
þingmaður á Alþingi til að taka sæti
Björn Ingi
Hrafnsson
JÓN Sigurðsson viðskipta- og iðn-
aðarráðherra sagði á Alþingi í gær
að ríkisstjórnin hefði að undanförnu
rætt hugmyndir um að breyta neðra
stigi virðisaukaskatts í núgildandi
kerfi. Sagði ráðherra þetta í kjölfarið
á fyrirspurn Össurar Skarphéðins-
sonar, þingmanns Samfylkingarinn-
ar, um hvort lækka ætti virðisauka-
skatt af íslenskri tónlist líkt og
bókum. Ráðherrann sagði auk þess
að skatturinn á tónlist væri í athug-
un hjá ríkisstjórninni en engar
ákvarðanir hefðu verið teknar í þeim
málum enn sem komið væri.
Össur var þó ekki sáttur við svar
ráðherrans og sagði þingmenn vilja
jafna samkeppnisstöðu milli bóka-
og tónlistarútgáfu. Íslensk tónlist
væri í efra þrepi virðisaukaskattsins,
24,5% flokknum, þannig að með
lækkun lægra þrepsins myndi stað-
an skekkjast allverulega, ekki væri
nóg að málið væri í athugun.
Málið í at-
hugun rík-
isstjórnar
Neðra stigi virð-
isaukaskatts breytt?
JÓN Sigurðsson, viðskipta- og iðn-
aðarráðherra, mælti á Alþingi í gær
fyrir frumvarpi til laga um breytingu
á lögum um tímabundnar endur-
greiðslur vegna kvikmyndagerðar á
Íslandi. Lögin falla úr gildi um
næstu áramót en með frumvarpinu
er lagt til að þau verði framlengd um
fimm ár. Nokkrar breytingar verða
gerðar á lögunum nái þau fram að
ganga, s.s. að framleiðendur þurfi að
óska eftir útborgun endurgreiðsl-
unnar innan sex mánaða frá því að
framleiðslu lýkur.
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað-
ur Vinstri grænna, var afar ánægð
með frumvarpið og fullyrti m.a. að
þetta fyrirkomulag hefði verið lyfti-
stöng fyrir geirann og fyrir flóruna á
akrinum meðal innlendra lista-
manna.
Áfram
endurgreitt
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„AÐ HÖFÐU samráði við forsætis-
ráðherra lýsi ég því hér með yfir að
íslensk stjórnvöld munu gera hið
sama gagnvart Búlgaríu og Rúmeníu
og gert var vorið 2004 gagnvart þeim
ríkjum sem þá gerðust aðilar að
EES-samningnum. Við höfum þann-
ig ákveðið að nýta okkur fyrstu tvö
árin til að sjá hver þörf verður fyrir
vinnuafl hér á landi og hver ásóknin
verður og taka yfirvegaða ákvörðun í
framhaldi af því, fyrir 1. janúar
2009,“ sagði Magnús Stefánsson fé-
lagsmálaráðherra, í utandagskrár-
umræðum á Alþingi í gær. Tilefnið
var fyrirspurn Magnúsar Þórs Haf-
steinssonar, þingmanns Frjálslynda
flokksins, um fjölgun útlendinga á
Íslandi.
Umræðan var á köflum fjörug en
flestir þingmenn sem stigu í pontu
sögðu afar mikilvægt að gæta hóf-
semi og vanda málflutninginn.
Magnús Þór, sem hefur verið mik-
ið í fjölmiðlum að undanförnu vegna
málsins, hóf ræðu sína á þeim orðum
að flestum Íslendingum væri ljós sú
þróun sem hér hefði orðið á undan-
förnum misserum, þ.e. að fólki af er-
lendu bergi brotnu hefur fjölgað
mjög hratt. Magnús sagði m.a. að
þingmönnum hefði verið stillt upp
við vegg þegar frumvarpið um
frjálsa för vinnuafls var afgreitt á Al-
þingi og sagði það hneykslanlegar
aðgerðir og þinginu til skammar.
„Við fengum val um að samþykkja
þetta ellegar myndum við lenda í
vandræðum, sem var tóm blekking.
Við hefðum getað farið fram á þessa
fresti,“ sagði Magnús og vísaði til
þess að hægt hefði verið að fá aðlög-
unarfrest til 2009 og jafnvel til 2011.
„Fyrsti maí árið 2006 var svartur
dagur í sögu þjóðarinnar og þá voru
sendar sennilega köldustu kveðjur
sem verkalýðshreyfingin og laun-
þegar í þessu landi hafa nokkru sinni
fengið því það sem hefur gerst eftir
þetta er að erlent vinnuafl hefur
flætt inn í landið sem aldrei fyrr.
Sennilega eru komin hingað eitthvað
um 10 þúsund manns frá áramótum.“
Magnús sagði stefna í óefni og nú
þegar væru merki um að Íslendingar
væru að missa vinnuna vegna þess að
þeir væru ekki samkeppnisfærir við
erlent vinnuafl sem reiðubúið væri
að vinna undir lágmarkstaxta.
Áhyggjur af umræðunni
Félagsmálaráðherra sagðist geta
fullvissað þingheim um að vel væri
fylgst með framvindu mála og
byggði hann á upplýsingum frá ýms-
um aðilum, s.s. fulltrúum Alþýðu-
sambands Íslands og Samtökum at-
vinnulífsins. „Ég átti í gær [á
mánudag] fund með ASÍ og í morgun
[í gær] með Samtökum atvinnulífs-
ins. Þar lýstu þeir áhyggjum af þeim
farvegi sem umræðan hefur verið í
undanfarna daga og það er mál
manna að ráðningar erlends vinnu-
afls hafi færst til betra horfs en var
fyrir 1. maí sl.“ Ráðherra sagðist þá
vilja auka sýnilegt eftirlit með kjör-
um og aðbúnaði erlends vinnuafls í
samvinnu við aðila á vinnumarkaði
og sagðist vinna að því um þessar
mundir.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri grænna, dró ekki úr þörf
umræðunnar á meðan hún væri á
hófstilltum og uppbyggilegum nót-
um og fjallaði yfirvegað um það
vandamál sem íslenskt samfélag
stæði frammi fyrir. „[Umræðan]
verði ekki til þess að æsa upp útlend-
ingaandúð og aðgreiningarhyggju.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
hafnar því að ræða þessi mál á þeim
nótum.“
Guðrún Ögmundsdóttir, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, sagði að
greina þyrfti á milli útlendinga og
innflytjenda til að rugla ekki fólk í
ríminu. Uppræta þyrfti fordóma en
ekki að kynda undir þá og tala yrði
niður fordóma sem lægju undir niðri.
Magnús Þór tók aftur til máls og
sagði þá ríkisstjórnarflokkana hafa
platað Samfylkinguna og Vinstri
græna upp úr skónum í vor í störfum
félagsmálanefndar. Upp hefðu kom-
ið loforð um alls kyns stefnumótun
og vinnu sem ekki hefði enn verið
farið í. „Ríkisstjórnarflokkarnir
gerðu þetta að yfirlögðu ráði, þeir
notuðu þetta sem hagstjórnartæki til
að halda aftur af launaskriði í land-
inu,“ sagði Magnús Þór og bætti því
við að opnað hefði verið fyrir allar
flóðgáttir í viðleitni til að reyna halda
aftur af verðbólgu.
Þingmaðurinn gagnrýndi aftur
stjórnarandstöðuflokkana, þ.e. Sam-
fylkinguna og Vinstri græna, sem
hann sagði hafa brugðist launþegum
mjög illa og það ætti eftir að verða
þeim dýr mistök.
Orð Magnúsar Þórs féllu í grýttan
jarðveg hjá þingmönnum stjórnar-
andstöðuflokkanna og einnig félags-
málaráðherra sem sagði ræðu Magn-
úsar Þórs með ólíkindum og að
þingmaðurinn hefði ekki aðeins verið
kominn út á tún heldur ofan í skurð.
Tveggja ára aðlögun-
artími verður nýttur
Félagsmálaráðherra segir undanþáguheimild beitt varðandi vinnuafl frá Búlg-
aríu og Rúmeníu – Fjörug umræða á Alþingi um fjölgun útlendinga á Íslandi
Í HNOTSKURN
»Í tilkynningusem Frjáls-
lyndi flokkurinn
sendi frá sér síð-
degis í gær er
ákvörðun félags-
málaráðherra
fagnað.
»Flokkurinntelur takmörkun á frjálsu
flæði vinnuafls frá Rúmeníu og
Búlgaríu fyrsta skrefið í átt til að
ná betri tökum á stýringunni en
verið hefur.
Morgunblaðið/Eyþór
Lagt við hlustir Þrátt fyrir að heitar umræður sköpuðust á Alþingi í gær
um fjölgun útlendinga er oft létt yfir mönnum á meðan þeir hlýða á ræður.
Magnús Þór
Hafsteinsson
♦♦♦