Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Vestmannaeyjar | Dráttarbraut
Skipasmíðastöðvar Vestmannaeyja,
sem betur er þekkt sem Sælaslipp-
urinn eða Vesturslippurinn, hefur
lokið hlutverki sínu. Síðasti báturinn
var sjósettur í gær en unnið hefur
verið að standsetningu hans undan-
farna mánuði.
Um er að ræða súðbyrðing, sem
smíðaður var á Fáskrúðsfirði 1989.
Hann hét áður Sjöfn ÁR en fær
nafnið Egill og verður heimahöfn
hans í Borgarnesi.
Bjarga menningarverðmætum
Eigendur eru bræðurnir Bjarni og
Páll Björgvinssynir sem segjast
þarna vera að bjarga menningar-
sögulegum heimildum. „Bátar af
þessari tegund eru óðum að hverfa
og það er því metnaðarmál fyrir okk-
ur að gera bátinn upp og bjarga með
því merkri heimild í atvinnu- og
menningarsögu landsins. Hann
verður gerður út með léttu ívafi en
ekki á hefðbundinn hátt. Það á að
fara að hreinsa rennuna inn til Borg-
arness og hvar á Egill betur heima
en einmitt þar?“ sagði Bjarni í sam-
tali við Morgunblaðið.
Sælaslippur er nefndur eftir Ár-
sæli Sveinssyni í Vestmannaeyjum
sem stofnaði slippinn. Slippstjóri er
Þórólfur Vilhjálmsson skipasmiður.
Þórólfur kom fyrst til Vestmanna-
eyja á vertíð hjá Ársæli Sveinssyni
árið 1958. Síðan hefur hann verið við-
loðandi skipasmíðar og slippinn með
einhverjum hléum þó.
Vinnslustöðin hefur keypt land og
hús Skipasmíðastöðvarinnar og ætl-
ar að nýta það undir hráefnisgeyma.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Síðastur Páll Björgvinsson var við Egil þegar hann var sjósettur úr slippnum, áður en honum var lokað.
Síðasti báturinn sjósettur
úr Sælaslippnum
Eftir Ómar Garðarsson
Slippstjórinn Þórólfur Vilhjálmsson við spilin sem komin eru til ára sinna.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Fagmennska í fFagmennska í fyrirrúmi
Stórar dælur - Litlar dælur
Góðar dælur - Öruggar dælur
Úrval af dælum
Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf
Sími 551 7270, 551 7282 og 893 3985.
Þjónustusími utan skrifstofutíma 893 3985.
Þuríður Halldórsdóttir hdl., lögg. skipasali
www.hibyliogskip.is hibyliogskip@hibyliogskip.is
Til sölu neta- og dragnótabátur
Smíðaður í Landskrona 1984,
25,3 bt., 18,8 brl., 14,50 ml.
Aðalvél er Cummins, 250 hö. árg. 2003.
Bátur í góðu ástandi.
Selst með veiðiheimildum á góðum kjörum.
• Vantar veiðiheimildir í krókaaflamarkskerfinu og aflamarkskerfinu.
• Önnumst einnig sölu á hlutafélögum í sjávarútvegi,
veiðiheimildum og skipum í hlutafélagi
Minnum á heimasíðu okkar
www.hibyliogskip.is