Morgunblaðið - 08.11.2006, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
FYRIR RÉTTU ári var útlitið ekki
bjart hjá repúblikanum Arnold
Schwarzenegger, ríkisstjóra Kali-
forníu, þegar líkur á endurkjöri virt-
ust harla litlar. Aðeins 36 prósent
kjósenda voru þá ánægð með störf
hasarmyndahetjunnar fyrrverandi,
hlutfall sem hefur hækkað um 20 pró-
sent á síðustu mánuðum.
Alls var kosið um 36 ríkisstjóra-
stöður af 50 í Bandaríkjunum í gær
og eins og svo oft áður tókst ríkis-
stjóranum að halda sér í kastljósi fjöl-
miðlanna fyrir kosningarnar.
Þessi umskipti eru öðrum þræði
rakin til þess, að Schwarzenegger
hefur nýtt síðustu mánuði vel, höfðað
til miðjunnar og lagt mikla áherslu á
umhverfismál og aðgerðir gegn lofts-
lagsbreytingum, málaflokka sem
skipta kjósendur í Kaliforníu miklu
máli. Hann gaf einnig eftir í samn-
ingum við kennarasamtök Kaliforníu
(CTA), þegar hann þótti hafa samið af
sér með kostnaðarsamri málamiðlun.
Sagður úlfur í sauðargæru
Hann sendi þannig George W.
Bush Bandaríkjaforseta opið bréf,
þar sem forsetinn var gagnrýndur
fyrir skort á aðgerðum til að herða
takmarkanir á mengandi útblæstri
frá bifreiðum og þannig sporna gegn
loftslagsbreytingum.
Andstæðingur hans, demókratinn
Phil Angelides, gerði lítið úr þessu
skrefi og reyndi að sannfæra kjós-
endur um að Schwarzenegger fylgdi
þegar öllu væri á botninn hvolft re-
públikönum að máli, þótt hann hamp-
aði grænum gildum andstæðinga
sinna á kosningafundum.
Jafnframt hefur Angelides sakað
Schwarzenegger um að „látast“ vera
demókrati, með því meðal annars að
láta ekki sjá sig í „innan við hundrað
feta fjarlægð frá öðrum repúblikana“,
líkt og blaðið Los Angeles Times
hafði eftir honum fyrir skömmu.
Aðeins þriðjungur skráðra kjós-
enda í Kaliforníu eru repúblikanar og
hefur Schwarzenegger, sem hafði
sextán prósentustiga forskot á An-
gelides í síðustu viku, sakað Bush um
að grípa ekki til nógu róttækra að-
gerða til að draga úr orkusparnaði.
Angelides hefur róið á sömu mið og
leitað stuðnings kvikmyndastjarna, á
borð við Brad Pitt og Juliu Roberts,
við sérstakan skatt – „tillögu 87“ – á
m.a. olíuframleiðslufyrirtæki, sem
ætlað er að stuðla að útbreiðslu um-
hverfisvænna bifreiða.
Angelides hefur hins vegar átt á
brattann að sækja og um helgina sak-
aði hann andstæðing sinn um að nýta
hvert tækifæri til að ganga erinda
stórfyrirtækja, sem hafa lagt mikið fé
í kosningasjóði hans.
Vonarstjarnan Spitzer
Á austurströnd Bandaríkjanna
hefur framboð demókratans Eliots
Spitzers til ríkisstjóraembættisins í
New York vakið einna mesta athygli,
en stjórnmálaskýrendur lýsa honum
sem rísandi stjörnu innan flokksins.
Repúblikaninn George Pataki
ákvað að stíga úr stóli ríkisstjóra fyrir
kosningarnar í gær og eins og tíma-
ritið Economist bendir á í síðasta
hefti sínu hefur barátta þeirra Spit-
zers og repúblikans Johns Fasos ekki
verið ýkja spennandi, slíkir hafa yf-
irburðir þess fyrrnefnda verið í skoð-
anakönnunum á síðustu vikum.
Eins og fyrr segir eru miklar vonir
bundnar við Spitzer, sem hefur gegnt
starfi ríkissaksóknara, innan demó-
krataflokksins og hefur nafn hans
þegar verið nefnt í samhengi við
framtíðarforsetaframbjóðendur
flokksins. Spitzer mældist í könnun-
um með meira fylgi en Pataki en
nokkru minna en repúblikaninn Ru-
dolph W. Giuliani, fyrrverandi borg-
arstjóri New York, sem einnig hefur
verið tengdur við forsetaframboð.
Reuters
Vinsæll Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, bregður á leik með fjölmiðlafólki og starfsmönnum kosn-
ingaskrifstofu sinnar í Irvine á mánudag. Eftir að hafa unnið sögulegan sigur í októbermánuði 2003 dalaði fylgi
Schwarzeneggers sem hefur síðan lagt áherslu á kjósendur úr röðum demókrata og þannig sótt fylgi á miðjunni.
Schwarzenegger rís
upp úr öldudalnum
Gagnrýndi stefnu Bandaríkjaforseta í umhverfismálum og
forðaðist frambjóðendur repúblikana eins og heitan eldinn
Í HNOTSKURN
»Kjörsókn í ríkisstjórakosn-ingum í Kaliforníu var
mest árið 1958 eða 79,5%.
»Schwarzenegger komst tilvalda eftir sigur í auka-
kosningum 7. október 2003.
»Stjórnarskrárbreytinguþarf til að hann geti boðið
sig fram til forseta þar sem
hann er fæddur í Austurríki.
Nairobi. AFP. | Hlýnun loftslags jarð-
ar með tilheyrandi hækkun sjávar-
máls, flóðum og öðrum umbreyting-
um í náttúrunni stefnir í hættu
stöðum þar sem merkar fornleifar er
að finna, allt frá Perú til Egypta-
lands, og náttúruperlum á borð við
stærstu kóralrif heims í Karíbahafi.
Þetta kemur fram í skýrslu Um-
hverfisstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna (UNEP), Atlas of Climate
Change, eða Atlas loftslagsbreyt-
inga, en hún var kynnt í tengslum við
loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í Nairobi í Kenýa sem hófst í
fyrradag.
Hækkandi yfirborð sjávar, tíðari
fellibyljir, veðrun og flóð valda því að
merkilegar fornleifar munu skemm-
ast hraðar. UNEP segir Alexandríu í
Egyptalandi m.a. í hættu og eyði-
legging slíkra sögustaða sé enn ein
ástæðan til að sporna gegn loftslags-
hlýnun. Hækkandi yfirborð sjávar
gæti drekkt eyjum í Kyrrahafi, kór-
alrif við Belize séu t.d. í hættu en
þeim lýsti Charles Darwin árið 1842
sem „allra merkilegustu rifjum í
Vestur-Indíum“.
Þá er rifjað upp í skýrslunni að
sögufrægar byggingar hafi skemmst
í flóðum í Tékklandi 2002.
Ennfremur hafi rústir Ayutthaya,
fyrrum höfuðborgar Taílands,
skemmst og Chavin de Huantar í
Andesfjöllum, fyrrum bústaðir Inka,
séu í hættu vegna bráðnandi jökla.
Achim Steiner, yfirmaður UNEP,
lagði áherslu á það í gær, þegar hann
kynnti skýrsluna, að finna þyrfti
leiðir til að verja svæði og minjar
sem eru í hættu vegna loftslags-
breytinga. „Ef við glötum þessum
svæðum og minjum vegna loftslags-
breytinga gæti það haft áhrif á lífs-
viðurværi fólks sem býr í nágrenni
þeirra en það myndi, einkum í þró-
unarríkjunum, enn auka á fátækt,“
sagði hann.
Jónína Bjartmarz á fundinum
Fulltrúar 189 ríkja sitja fundinn í
Nairobi, eða um 5.000 manns. Jónína
Bjartmarz umhverfisráðherra er
formaður íslensku sendinefndarinn-
ar á þessum tólfta fundi aðildarríkja
loftslagssamnings SÞ og hún mun
síðan sitja ráðherrafund loftslags-
samningsins sem haldinn er í fram-
haldinu 15.–17. nóvember.
Sögufrægir stað-
ir víða í hættu
Bregðast þarf við hlýnun loftslags
eigi merkar minjar ekki að glatast
Sameinuðu þjóðunum. AFP. | Allsherj-
arþing Sameinuðu þjóðanna kaus í
gær Panama til setu í örygg-
isráðinu og batt þannig enda á
langvinnt þrátefli um sæti Róm-
önsku Ameríku. Þannig höfðu
Venesúela og Gvatemala tekist á
um kjörið í 48 umferðum áður en
fulltrúar ríkjanna ákváðu að draga
framboðin til baka.
Talsmaður stjórnar Venesúela
lýsti kjörinu sem sigri, líkt og John
Bolton, sendiherra Bandaríkja-
stjórnar hjá Sameinuðu þjóðunum,
gerði þegar niðurstaðan lá fyrir á
allsherjarþinginu í gær.
Panama í
öryggisráðið
Málstofa
um lagalegan grundvöll hvalveiða
Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101,
föstudaginn 10. nóvember 2006 kl. 12.15-14.00
Dagskrá:
12.15 Inngangur: Tómas H. Heiðar,
þjóðréttarfræðingur í utanríkisráðuneytinu,
forstöðumaður Hafréttarstofnunar Íslands.
12.30 Fyrirlestur: Stefán Ásmundsson,
skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu,
aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu.
13.00 Fyrirlestur: Richard Caddell,
lagaprófessor við Háskólann í Wales, Bangor.
13.30 Fyrirspurnir og umræður.
14.00 Slit.
Lagadeild
Allir velkomnir