Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 14
!"#
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
MÆLINGAR benda til að brott-
kast þorsks hafi numið tæpum
2.600 tonnum á síðasta ári, eða sem
svarar til 1,27% af lönduðum afla.
Er það talsvert meira en næstu
þrjú ár á undan en minna en á
árinu 2001 þegar þessar mælingar
hófust. Brottkast ýsu er talið hafa
numið tæplega 4.900 tonnum eða
5,24% af lönduðum afla. Er það
svipað hlutfall og árin 2002 og 2003
en talsvert hærra hlutfall en árin
2001 og 2004.
Sérstakar mælingar á brottkasti í
fiskveiðum hér við land hófust árið
2001 og er gerð grein fyrir þeim í
árlegri skýrslu Hafrannsókna-
stofnunar sem hefur að geyma
greinar Ólafs K. Pálssonar fiski-
fræðings o.fl. Skýrslan fyrir rann-
sóknir á síðasta ári hefur nú verið
gefin út.
Tilgangur rannsóknanna er með-
al annars að taka tillit til brottkasts
við mat á stofnum. Einkum hefur
verið lögð áhersla á þorsk og ýsu og
mælingarnar hafa náð til helstu
veiðarfæra, það er að segja línu,
neta, dragnótar og botnvörpu. Frá
árinu 2002 hafa einnig verið tals-
verðar mælingar á ufsa og gullkarfa
í botnvörpuveiðum. Mælingar á öðr-
um tegundum hafa verið takmark-
aðar og oftast ekki nægilegar til að
meta brottkast.
Brottkast er metið með saman-
burði á lengdarmælingum á afla
upp úr sjó og hins vegar lönduðum
afla. Ólafur tekur fram í grein sinni
að aðferðin sé háð því að brottkast
sé lengdarháð og smáfiski á til-
teknu lengdarbili sé hent að til-
teknu marki en stærri fiskur hirtur.
Mest brottkast úr netum
Í skýrslunni kemur fram að
brottkast þorsks í netaveiðum var
talsvert mikið á síðasta ári. 528 þús-
und fiskar fóru aftur í sjóinn og
svarar það til 1.079 tonna eða 3,4%
landaðs afla. Er þetta talsvert
meira en undanfarin ár. Eins og
fyrri mælingar sýna einnig er hent
mun stærri þorski á netaveiðum en
á öðrum veiðum.
Brottkast þorsks var mun minna
á öðrum veiðum. Þannig reyndist
brottkastið í handfæraveiðum lítið
eða 60 þúsund fiskar sem svarar til
42 tonna, eða 0,53% af afla. Er
þetta í fyrsta skipti sem brottkast
er mælt á handfæraveiðum og því
ekki til samanburður við fyrri ár.
Brottkast þorsks í dragnót var
sömuleiðis lítið á árinu eða 47 þús-
und fiskar sem svara til 29 tonna
eða 0,23% af heildarafla. Þetta er
þó nokkur aukning frá síðustu
tveimur árum enda var brottkast á
dragnótarveiðum þá hverfandi. Þá
kemur fram að brottkast þorsks í
botnvörpu var lítið og nær ein-
göngu um að ræða fisk minni en 50
cm. Í heild nam brottkastið 950
þúsund fiskum eða 772 tonnum.
Hlutfallið er 0,93% og er það tals-
verð aukning frá tveimur árum þar
á undan þegar hlutfallið var 0,3 og
0,46%.
Ýsu hent úr togurum
Töluvert brottkast var á ýsu á
síðasta ári, mest af því vegna botn-
vörpu. Brottkast ýsu í botnvörpu
var 5.772 þúsund fiskar sem svarar
til 4.150 tonna. Fara því tæp 8%
aflans aftur í sjóinn. Brottkastið
hefur tvöfaldast frá árinu á undan.
Vakin er athygli á því í skýrslu
Hafrannsóknastofnunar að ýsan
sem hent er af skipum á botnvörpu-
veiðum er mun stærri en sú sem
hent er úr öðrum veiðarfærum, eða
35 til 50 cm fiskur að stórum hluta.
Brottkast ýsu á línuveiðum var
916 þúsund fiskar eða 411 tonn.
Hlutfall brottkasts var 1,3% og
hafði minnkað nokkuð frá fyrra ári.
Mest var hent af fiski undir 40 cm
að lengd. Brottkast ýsu í dragnót
var 414 þúsund fiskar eða 320 tonn.
Hlutfallið er 3,05% sem er mun
lægra hlutfall en á fyrra ári.
Talsvert áunnist
Ólafur K. Pálsson vekur athygli á
því í skýrslu sinni að sérstakar
brottkastsmælingar hafi nú staðið
yfir í fimm ár. Mælingarnar á síð-
asta ári bendi til þess að talsvert
hafi áunnist í því að stemma stigu
við brottkasti á helstu botnfiskum,
að minnsta kosti miðað við ástandið
á árum áður. Brottkast sé þó ein-
ungis í lágmarki, það er að segja
undir 1%, í fimm tilvikum af níu.
Það sé svipað og árið áður en nokk-
ur afturför frá árinu 2003. Þróunin
síðustu tvö ár hafi því verið óhag-
stæð.
Mælt brottkast
þorsks 2.600 t
Skýrsla Hafrannsóknastofnunar bend-
ir til óhagstæðrar þróunar síðustu árin
14 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
UFSI og þorskur eru algengustu
tegundirnar sem komu sem meðafli
á kolmunnaveiðum Íslendinga á
árinu 2005, að því er fram kemur í
skýrslu Hafrannsóknastofnunar
sem byggðar eru á mælingum sem
gerðar voru síðasta sumar.
Ufsinn mældist 1031 þúsund fisk-
ar sem gera 2045 tonn, bæði í ís-
lenskri og færeyskri landhelgi, og
samsvarar um 0,8% af veiðunum.
Er þetta verulega hærra hlutfall
frá árinu á undan en magnið en
tonnafjöldinn er þó minni. Þorskur
mældist 191 þúsund fiskar sem
gera 671 tonn, aðallega í íslenskri
landhelgi. Er það 0,265% aflans. Er
þetta heldur hærra hlutfall en 2004
en mun minna í tonnum talið.
Töluvert af síld var einnig í með-
afla og mælist hann 400 tonn, en
mun minna af gulllaxi og gullkarfa.
Ufsi og þorskur
með kolmunna
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá Gesti
Jónssyni, lögmanni: „Það er grund-
vallarregla í réttarríki að sá maður
sem sökum er borinn megi verja
hendur sínar. Til þess á hann rétt á
aðstoð verjanda. Hlutverk verjand-
ans er að gæta hagsmuna skjólstæð-
ings síns, tala máli hans og líta eftir
því að þeir sem fara með opinbert
ákæru- og/eða rannsóknarvald fylgi
leikreglunum. Skyldur verjandans
lúta að því að veita skjólstæðingi
sínum alla þá aðstoð og vörn sem
hann getur.
Í grein Arnars Jenssonar, aðstoð-
aryfirlögregluþjóns hjá embætti rík-
islögreglustjóra sem birtist í Morg-
unblaðinu í gær kemur fram afstaða
gagnvart réttindum sakborninga
sem ég tel áhyggjuefni. Fundið er
að því að sakborningar í svonefndu
Baugsmáli hafi ráðið til sín fjölda
lögfræðinga og endurskoðenda „...til
að draga skipulega fram gagnrýni á
rannsóknaraðila og ákæruvald“.
Átalið er að Baugsmenn hafi varið
miklu fé til þess að ráða fjölda aðila,
þ.m.t. heilu lögfræðistofurnar „...til
að hafa áhrif á niðurstöðu málsins.“
Það er einmitt lögbundið hlutverk
verjanda að setja fram gagnrýni á
rannsóknaraðila og ákæruvald þeg-
ar efni eru til og tala máli skjólstæð-
ings síns í því skyni að hafa áhrif á
niðurstöðu dómara.
Í grein sinni telur Arnar Baugs-
málið vera dæmi um óþolandi þróun
í réttarkerfinu og kallar á „... við-
brögð yfirvalda þessa lands.“ Hvað
á Arnar við? Vill hann takmarka
rétt sakbornings til þess að bera af
sér sakir? Vill hann að þeir sem
stjórna rannsókn opinberra mála
eigi jafnframt að ákveða hverjir
skuli vera verjendur sakborninga og
hvernig þeir skuli haga störfum sín-
um?“
Höfundur er hæstaréttarlögmað-
ur og verjandi Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar.
Hugleiðingar Arnars Jenssonar
SJÓNARHÓLL, ráðgjafarmiðstöð
fyrir foreldra barna með sérþarfir,
hefur endurnýjað samninga við
bakhjarla sína til næstu þriggja
ára. Fulltrúar Sjónarhóls og bak-
hjarlanna staðfestu áframhaldandi
samstarf með undirritun fyrirheita
í gær.
Bakhjarlar Sjónarhóls til næstu
þriggja ára verða Actavis hf,
Landsbankinn, Össur hf., Poka-
sjóður, Hringurinn og Vífilfell hf.,
sem nú bætist nýr í hópinn. Með
undirskrift fyrirheitanna skuld-
bundu bakhjarlarnir sig til að
greiða 39,3 milljónir kr. samanlagt
til rekstrar Sjónarhóls. Árleg fram-
lög þeirra nema 13,1 milljón kr.
Ríkisstjórnin leggur til 45 milljónir
króna til þriggja ára á móti eða 15
milljónir kr. á ári.
Hjá Sjónarhóli er veitt foreldra-
miðuð ráðgjöf um réttindi, úrræði
og þjónustu í íslensku velferð-
arkerfi. Þar geta foreldrar rætt á
eigin forsendum um þarfir sínar
fyrir þjónustu og sótt stuðning til
að fá þeim mætt.
Ráðgjöfin endurgjaldslaus
„Ráðgjöfin hjá Sjónarhóli er að-
gengileg, endurgjaldslaus og óháð
þjónustustofnunum á vegum ríkis,
sveitarfélaga og félagasamtaka.
Þjónustan er fyrir allt landið og
ráðgjafarnir hitta fólk í heima-
byggð sé þess óskað,“ segir í frétt
frá Sjónarhóli.
Stuðningur bakhjarlanna og rík-
isstjórnarinnar ásamt fé sem safn-
aðist í landssöfnuninni „Fyrir sér-
stök börn til betra lífs“ haustið 2003
gerði stofnun Sjónarhóls mögulega.
Frá því Sjónarhóll var opnaður
haustið 2004 hafa á fimmta hundr-
að foreldrar leitað ráða þar vegna
barna sinna. Á grundvelli góðrar
reynslu þeirra af Sjónarhóli bygg-
ist áframhaldandi samstarf við bak-
hjarlana.
Sjónarhóll
endurnýjar
samninga
við bak-
hjarla
Sjónarhóll Bakhjarlar skrifa undir fyrirheit um stuðning næstu þrjú árin.
F.v.: Harpa Leifsdóttir frá Actavis hf., Árni Stefánsson frá Vífilfelli hf.,
Bjarni Finnsson frá Pokasjóði, Andrés Ragnarsson frá Sjónarhóli, Lárus
Gunnsteinsson frá Össuri hf., Ragna Eysteinsdóttir frá Hringnum og Ágúst
Viggósson frá Landsbankanum.