Morgunblaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Inga Ólafsdóttirfæddist í Eystra-Geldinga- holti í Gnúpverja- hreppi í Árnessýslu, 1. desember 1921. Hún lést á Vífils- stöðum 11. nóvem- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Pálína Guð- mundsdóttir, f. 27. júní 1891, d. 28. september 1978, og Ólafur Jónsson bóndi, f. 22. febrúr. 1888, d. 31. jan. 1983. Systkini Ingu voru Jón bóndi í Eystra- Geldingaholti, f. 15. okt.1920, d. 8. mars 2001, Guðrún, f. 25. júlí 1924, d. 28. nóvember 1980 og Hrefna, f. 30. október. 1927, d. 9. mars 1994. Inga giftist hinn 11. maí 1946 Stefáni Björnssyni, forstjóra Mjólkursamsölunnar í Reykjavík, f. 1. nóvember 1908, d. 17. mars 1994. Foreldrar hans voru Guð- ríður Jónsdóttir, f. 28. nóvember 1876, d. 4. júlí 1948 og Björn Þor- kelsson, bóndi og hreppstjóri í Hnefilsdal í Jökuldalshreppi í N- Múlasýslu, f. 29. apríl 1880, d. 4. febrúar 1959. Börn Ingu og Stef- áns eru: a) Hrafnhildur lögfræð- ingur, f. 18. nóvember 1946, maki Hjalti Björnsson læknir, f. 8. okó- ber 1944, d. 21. október 1988. Börn þeirra eru Inga Björg lög- fræðingur, f. 10. febrúar 1970, gift Jóhannesi Hauks- syni, viðskiptafræð- ingi og Björn nemi í viðskiptalögfræði, f. 31. júlí 1975. b) Sig- urður læknir, f. 28. mars 1950. Kona hans er Marta Ólafsdóttir líffræð- ingur, f. 16 apríl 1950. Sonur þeirra er Stefán verkfræð- ingur, f. 11 desem- ber 1972. Kona hans er Steinunn Hilma Ólafsdóttir líf- fræðingur. c) Fósturdóttir, Hafdís Ólafsdóttir myndlistarmaður, f. 31. mars 1956, gift Atla Jóhanni Haukssyni tæknifræðingi, f. 30. júlí 1952. Dóttir þeirra er Auður verkfræðinemi, f. 16. okt. 1981. Barnabarnabörn Ingu eru fimm. Inga ólst upp í Eystra-Geld- ingaholti þar sem hún stundaði skógrækt sem var mikið áhuga- mál hennar. Hún var við nám í Húsmæðraskólanum á Blönduósi, starfaði um skeið á skrifstofu Mjólkurbús Flóamanna og var síðan húsmóðir í Reykjavík. Um langt árabil tók hún virkan þátt í störfum Rauða kross Íslands í sjúklingabókasafninu á Lands- spítalanum. Inga verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Fyrir allnokkrum árum snerust sumrin mín um það eitt að komast í sveitina með ömmu og afa. Í sveit- inni áttu þau griðastað. Á leiðinni austur fyrir fjall sat ég undir trjá- plöntum og hlustaði á útvarpið. Við hlustuðum á rás eitt og rædd- um landafræði og örnefni. Ef amma hafði ekki örnefni á reiðum höndum þá var pottþétt ekki til örnefni yfir staðinn og þá var það bara búið til. Amma á heiðurinn af því að enn þann dag í dag get ég þulið upp bæjarnöfnin alla leiðina austur í sveit. Við amma höfðum báðar gaman af að lesa í landið og okkur fannst skipta máli hvað allt hét. Í sveitinni hef ég eignast griða- stað. Þar hefur fólkið mitt komið sér fyrir, byggt sumarbústaði og hlúir að skóginum hennar ömmu. Frá Ottawa í Kanada hugsa ég heim. Ég get ekki fylgt ömmu síð- asta spölinn en hugurinn er heima hjá ykkur öllum. Elsku amma, takk fyrir allt. Auður. Að leiðarlokum vil ég minnast ömmu minnar Ingu Ólafsdóttur sem var mér svo kær. Ömmu sem var af- ar reffileg, keyrði alltaf bíl, gróð- ursetti ósköpin öll af trjám þannig að úr urðu íslenskir skógarlundir, var alltaf að skreppa eitthvað að út- rétta hitt og þetta, var vel lesin, tal- aði endalaust í síma, fylgdist með öllu því sem var á döfinni í þjóð- félaginu, hafði óbeit á handavinnu og eldamennsku, en gerði hvort tveggja vel. Gerði flest það sem hugur hennar stóð til, af miklum krafti, ávallt ófeimin við að segja skoðanir sínar. Amma var hrjúf og hlý allt í senn og úr því varð einstök og góð blanda. Hún var áhrifavaldur í lífi okkar barnabarna sinna, kenndi okkur gildismat og góða siði, hvern- ig gróðursetja skyldi tré þannig að það yxi vel, að öllum Íslendingum væri hollt að lesa Laxness og það sem fyrst á lífsleiðinni, að karl- mönnum færi betur að hafa ekki of stutt hár, að stúlkur mættu gjarnan vera smástrákar í sér og þeim færi líka vel að vera ekki með of stutt hár, að nýjasta tíska sem við kysum stundum að klæðast væri nú ekki alltaf klæðileg, að vera gestrisin, að lesa upphátt úr blöðunum fyrir nærstadda ef ske kynni að fróðleik- urinn hefði farið framhjá þeim við lestur blaðsins, að vera metnaðar- full, að borða ekki smjörlíki því það væri mesta eitur og að láta hógværð ekki angra okkur um of. Ekki síst þá kenndi hún okkur að við værum elskurnar hennar og það var gott að vera. Ég mun ævinlega sakna þess og hennar. Inga Björg Hjaltadóttir. „Hún var fædd á fullveldisdaginn með ungmennafélagsandann í blóð- inu“. Þannig lýsir Hrafnhildur Stef- ánsdóttir móður sinni Ingu Ólafs- dóttur frá Eystra-Geldingaholti. Mér, sem þekkti hana svo vel, finnst þessi orð segja allt sem þarf að segja, en æviskeið þeirra sem jörð- ina gista, og þá ekki síst okkar Ís- lendinga sem viljum halda fast í tungu okkar, eigin minningar og menningu, kalla á nánari sögu eftir því sem tíminn hraðar sér áfram. Öðruvísi myndum við aldrei vita hvað kom á undan okkur. En sagan af tengslum og vináttu okkar Ingu Ólafsdóttur er svona: Þegar skuggar stríðsátaka fóru að teygja sig til Íslands í heimstyrjöld- inni síðari og hermenn voru farnir að marsera um götur í Reykjavík óttuðust borgarbúar að loftárásir yrðu gerðar á höfuðstaðinn og börn- um var í óða önn komið fyrir í sveit- um. Foreldrar mínir leituðu fyrir sér um að vista sumarlangt okkur tvö systkinin í Eystra-Geldinga- holti. Elsta heimasætan, sem var 17 ára, Inga Ólafsdóttir, sagði þá við móður sína: „Æ, taktu nú einu sinni stelpu“. Það gekk eftir og úr varð traust og náin ævivinátta sem aldrei hefur borið á skugga. Á miklum mótunarárum vorum við systkinin raunar alin upp að hálfu í Eystra- Geldingaholti. Við vorum þar sumar eftir sumar frá sauðburði til rétta. Okkur var í Geldingaholti tekið eins og eigin börnum þeirra hjóna, Pál- ínu og Ólafs, og Inga tók stelpuna að sér. Hún sýndi mér hvar ást- arsögurnar voru í bókaskápnum, hún kenndi mér að sitja hest og þjálfaði mig þar til mér var treyst fyrir því að sitja ótemjuna Bleik, þegar farið var ríðandi á úti- skemmtun á Álfaskeiði, og hún inn- leiddi mig í skáldskap Einars Bene- diktssonar. Um tvítugt var hún um tíma veik og lá lengi sumars undir bláu súðinni uppi á lofti í gamla bænum. Ég var á stöðugum hlaup- um upp til hennar með fréttir af öllu því sem sagt var og gerðist inni sem úti, sagði grannt frá, þar með talið hvar og hvenær sást til manna- ferða og hverjir voru á ferð með tvo til reiðar. Uppáhaldsljóð hennar var þá úr Fákum Einars Benediktsson- ar: „Ef inni er þröngt tak hnakk þinn og hest /og hleyptu á burt und- ir loftsins þök. /Hýstu aldrei þinn harm. Það er best. / Að heiman, út, ef þú berst í vök.“ Með árunum varð ég trúnaðarvinur hennar og móður hennar og vinaböndin ófust æ þétt- ar við stórfjölskylduna í Eystra- Geldingaholti. Inga Ólafsdóttir er minnisverð kona. Hún var mikill Íslendingur, vildi „Íslandi allt“ af sannri ung- mennafélagshugsjón. Öll ræktun var henni hugleikin. Hún átti afar fallegan garð með íslenskum jurtum við heimili þeirra hjóna við Lauga- dalinn í Reykjavík, en hún naut þeirrar gæfu að eignast að lífsföru- nauti mikinn öðling og sannan heið- urs- og heimsmann, Stefán Björns- son, forstjóra Mjólkursamsölunnar. Og austur í gili fyrir neðan bæinn í Eystra-Geldingaholti, þar sem við þvoðum og skoluðum ullina á berum klöppum undir gróðurmögrum brekkum á æskuárunum, fór hún að rækta skóg. Hún sáði birkifræjum heima í Reykjavík og birkið spratt í öllum gluggakistum hjá henni þar til hún flutti það austur. Áður en varði var Gilið orðið iðgrænt og var skírt Bláland eftir Bláskógaheiðinni á Þingvöllum. Hún varð öllum af- komendum sínum fyrirmynd í rækt- un, skógrækt, málrækt, mannrækt. Inga var alla tíð grönn og spengi- leg, enda sundkona góð. Hún var skjóthuga og framkvæmdi jafnóð- um – og sagði – það sem henni datt í hug, ör í hreyfingum og hljóp við fót fram á efri ár. Hún saknaði þess alla ævi að vera ekki langskóla- gengin og hafði oft orð á. Það var stundum nokkuð verk að sannfæra hana um, að það að vera vel að sér er ekki alltaf byggt á langskóla- göngu. Hún var aftur á móti ákaf- lega víðlesin, mikill Laxness-unn- andi og las öll ný skáldverk sem komu út, þar sem hún raðaði þeim um langt árabil í sjálfboðavinnu á sjúklingabókasafni Rauða krossins á Landspítalanum. Hún batt listi- lega inn bækur og gaf okkur í fjöl- skyldunni band utan um eigin bæk- ur sem við léðum henni til að binda. Um tíma lá hún yfir kirkjubókum að stúdera ættfræði og bjó meðal annars til fallegan ættfræðihring um okkur fyrrverandi ungmeyjar í Geldingaholti, þar sem við sögu komu amma hennar og langamma mín, sem voru hálfsystur, ættaðar af Skeiðunum. Ég minnist Ingu Ólafsdóttur með mikilli hlýju og þakka henni fyrir að ég skyldi einu sinni vera sú stelpa sem hún leiddi að Eystra-Geldinga- holti í Gnúpverjahreppi. Vigdís Finnbogadóttir Inga föðursystir mín var flott kona. Hún var há og grönn, bar sig vel, ávallt vel til fara og átti auðvelt með að tala við fólk. Inga var raun- góð, hjálpsöm og vildi leiðbeina öðr- um. Heimili hennar og Stefáns var stílhreint, þau vildu hafa fallegt í kringum sig, bæði úti og inni. Þann- ig var það á Sunnuveginum og í Blálandi. Þegar ég var krakki komu Inga og Stefán ekki oft í Geldingaholt en það var spennandi þegar þau komu. Ég hef alla tíð litið upp til Ingu og Stefán sagði okkur krökkunum magnaðar sögur af Jökuldal. Svo voru þau á fínni drossíu, það var ævintýri að fá að fara í bíltúr með þeim. Í þau fáu skipti sem ég fór til Reykjavíkur á yngri árum var Inga einkabílstjóri minn. Segja má að Inga hafi gert skóg- rækt að ævistarfi og var íslenska birkið í mestu uppáhaldi hjá henni. Hún tók Geldingaholtsgilið í fóstur og hóf trjárækt þar af miklum krafti. Þar með var Inga komin með annan fótinn á æskustöðvarnar og samverustundum með henni fjölg- aði umtalsvert. Á vorin kom hún margar ferðir með troðfullan fólks- bílinn af trjáplöntum sem hún gróð- ursetti hið snarasta og notaði mik- inn skít. Hún lagði mikla áherslu á að spara ekki áburðinn, án hans næðist ekki árangur í skógrækt. Inga hlúði endalaust að plöntun- um og umhverfinu en hún hlúði líka að fólkinu sínu. Fyrir rúmum 20 ár- Inga Ólafsdóttir ✝ Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför bróður okkar, AXELS RÖGNVALDSSONAR. Pálmi Rögnvaldsson, Ingvaldur Rögnvaldsson. ✝ Innilegar þakkir sendum við ykkur öllum sem sýnduð okkur ástúð og hlýju við andlát og útför ÞORSTEINS THORARENSEN rithöfundar og útgefanda. Guð blessi ykkur öll. Sigurlaug Bjarnadóttir, Ingunn Thorarensen, Hallgrímur Þórarinsson, Björn Thorarensen, Björg Thorarensen, Markús Sigurbjörnsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Útför elskulegrar eiginkonu minnar, MARÓLÍNU ARNHEIÐAR MAGNÚSDÓTTUR, (Möllu), fer fram frá Fossvogskirkju í dag, fimmudaginn 16. nóvember, kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameins- félag Íslands. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Bogi Sigurðsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, BJARNEY RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR frá Þrúðvangi, Vestmannaeyjum, sem lést fimmtudaginn 9. nóvember, verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 25. nóvember kl. 14.00. Örn Aanes, Hólmfríður Sigurðardóttir, Ragnar Jóhannesson, Gerður Guðríður Sigurðardóttir, Ragnheiður Anna Georgsdóttir, Einar Þ. Waldorff, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HILDIGUNNAR SVEINSDÓTTUR, Miðleiti, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi aðfaranótt föstudagsins 10. nóvember, verður gerð frá Foss- vogskirkju föstudaginn 17. nóvember kl. 13:00. Eygló Guðmundsdóttir, Pálmi Ragnar Pálmason, Björk Guðmundsdóttir, Birgir Páll Jónsson, Sveinn Guðmundsson, Margrét Þórmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Bróðir okkar, mágur og frændi, FRIÐRIK SIGTRYGGSSON frá Ytri Brekkum á Langanesi, Kríuhólum 2, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 9. nóvember, verður jarð- sunginn frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 17. nóvember kl. 13:00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins, sími 543 3724. Valgerður, Þorbjörg, Helga, Kolbeinn, tengdafólk og frændfólk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.