Morgunblaðið - 16.11.2006, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Nokkrar þýðingar á verkum rúss-
neska nítjándu aldar skáldsins Niko-
laj Gogol hafa komið út hér á landi.
Þekktasta verk
hans, skáldsagan
Dauðar sálir, kom
út árið 1950 í þýð-
ingu Magnúsar
Magnússonar (hér
var að vísu ekki
þýtt úr rúss-
nesku). Rúmri
hálfri öld síðar
kom út safn smá-
sagna Gogols sem
nefnt var Pétursborgarsögur, eða ár-
ið 2004, og var þar að finna nokkrar af
þekktari sögum höfundarins á borð
við Dagbók vitfirrings og Nefið. Bók
þessi var gefin út af Hávallaútgáfunni
og nú hefur sama útgáfa enn bætt í
hóp Gogol-þýðinga með bókinni
Mírgorod en þar er á ferðinni smá-
sagnasafn sem ólíkt Pétursborg-
arsögum var gefið út sem slíkt í tíð
höfundarins. Nafn bókarinnar má svo
rekja til bæjar í Úkraínu ekki langt
frá æskustöðvum Gogols.
Hér birtast fjórar sögur en ein af
þeim, Taras Búlba, er á lengd við
stutta skáldsögu eða nóvellu. Þar er á
ferðinni eins konar hetjusaga en Go-
gol greinir hér frá bardagamönnum
Úkraínu meðan land það var enn
sjálfstætt. Sagan gerist á sextándu
eða sautjándu öld en kósakkarnir
áttu þá í erjum við Pólland auk þess
sem þeir voru þekktir fyrir stríðs-
hæfileika og miskunnarleysi. Ein-
kenni þessi brutust fram í tíðum
ránsferðum en þess á milli, sam-
kvæmt sögunni, virðast karlmenn
þjóðarinnar aðallega hafa legið á fyll-
eríi. Titilpersónan, eignamaðurinn
Taras, tekur í upphafi á móti sonum
sínum tveimur úr latínuskóla í Kænu-
garði þar sem þeir hafa dvalið und-
anfarin ár. Endurfundirnir vara þó
stutt því Taras fyllist strax miklum
eldmóði um að koma sonum sínum í
stríð og gera þannig úr þeim alvöru
kósakka. Í kjölfarið kynnist lesandi
karlmannasamfélagi kósakkanna, en
því er lýst á lifandi hátt af Gogol, en
sagan einkennist öðru fremur af mik-
illi þjóðerniskennd og dýrkun á
stríðsrekstri og bræðralagi her-
manna. Annað álíka aðlaðandi sér-
kenni skýtur stöku sinnum upp koll-
inum en það er gyðingahatur og
almenn fyrirlitning kósakka-
samfélagsins á þeim trúarhópi. Ekki
er hægt að segja að írónísk fjarlægð
höfundar sé þar fyrir hendi, þvert á
móti umfaðmar Gogol klisjurnar um
gráðuga gyðinginn og reynir jafnan
að búa til úr þeim fimmaurabrandara.
Framvindan er blóði drifin en meló-
dramatík og heimóttarskapur eru
allsráðandi.
Þeir lesendur sem ekki láta blóð-
uga vígvelli kósakkanna stöðva sig í
lestrinum hljóta tvær ágætar sögur í
verðlaun. Hryllingssagan Víj hefst í
sambærilegri stofnun og synir Taras-
ar koma frá í fyrri sögunni, þ.e. eins
konar latínuskóla í Kænugarði. Lýs-
ingarnar á skólavistinni, hegðun
nemenda og sérkennum hinna ólíku
deilda eru skemmtilegar en sagan
greinir frá ferðalagi þriggja nemenda
um strjálbýl sveitasamfélög þar sem
einn þeirra kemst í kast við skelfilega
forynju. Sagan er framsett í formi
ævintýris sem útskýrir kannski það
sem virðist vera samhengisleysi í
framvindunni en hún er ekki síst
áhugaverð fyrir sterkan táknrænan
grunn og allt að því ómeðvitaðan leik
með samskipti kynjanna sem hér er
framsettur í formi baráttu við norn.
Hér birtist líka það einkenni sem eitt
virðist taka gyðingahatrinu fram í
þessum sögum en það er kvenóttinn.
Skemmtilegasta saga bókarinnar
er sú síðasta; sagan af því hvernig í
brýnu sló milli Ívans Ívanovitsj og Ív-
ans Nikiforovitsj en hún á ýmislegt
sameiginlegt með þeim sögum sem
Gogol skrifaði á árunum eftir útgáfu
Mírgorod (og birtust margar hverjar
í Pétursborgarsögum), einkum hæðn-
islega umfjöllun um stjórnstofnanir
og sérdeilis fjarstæðukennda en á
sama tíma táknræna lýsingu á sam-
skiptum fólks. Fyrsta saga bók-
arinnar, Landeigendur frá liðinni tíð,
er að mörgu leyti nostalgísk smásaga
um letilíf óðalsbænda en undir niðri
leynist gagnrýnisbroddur, sem þó
aldrei er sérlega kraftmikill og heil-
mikill kven-og kynlífsótti en það síð-
astnefnda er kannski athyglisverðasti
þáttur annars heldur máttlausrar
sögu.
Þýðingarnar virðast allar hreint
fyrirtak en sögurnar eru ansi mis-
tækar. Gogol átti eftir að skrifa
nokkrar ágætar smásögur en þær
komu síðar á ferlinum.
Á ferð um Úkraínu
BÆKUR
Þýddar smásögur
Eftir Nikolaj Gogol. Þýðendur Árni Berg-
mann, Áslaug Agnarsdóttir, Þórarinn
Kristjánsson. Hávallaútgáfan. Reykjavík.
2006. 316 bls.
Mírgorod
Björn Þór Vilhjálmsson
Árni Bergmann
Arnaldur Indriðason ákvað að taka sér
frí fyrir þessi jól frá sköpunarverki
sínu, Erlendi Sveinssyni, rannsókn-
arlögreglumanni
frá Eskifirði. Jóla-
saga Arnalds í ár
heitir Konungsbók
og er alls óskyld
Erlendi. Hún
fjallar eins og
nafnið gefur til
kynna um Kon-
ungsbók Eddu-
kvæða, handritið
merka sem geym-
ir öll helstu Eddu-
kvæðin og skilaði þeim til nútímans.
Sagan gerist að megninu til árið
1955 og segir frá íslenskum náms-
manni, Valdemar að nafni, sem heldur
til Kaupmannahafnar að nema norræn
fræði hjá gömlum og úrillum íslensk-
um prófessor sem drekkur of mikið og
býr yfir stórkostlegu leyndarmáli. Áð-
ur en Valdemar getur sagt bingó er
prófessorinn búinn að draga hann með
sér í mikla háskaför til að eltast við
umrædda Konungsbók sem virðist
vera horfin af sínum stað í Kaup-
mannahöfn.
Í þessari sögu er Arnaldur á nýjum
slóðum. Söguna mætti flokka sem
„menningarlega glæpasögu“; ákveð-
inn hlutur úr menningararfinum,
handrit að þessu sinni, er tekinn og
settur á stall og ráðgátan er látin snú-
ast um hann. Þetta er ekki algjör ný-
lunda á Íslandi því að Viktor Arnar
Ingólfsson skrifaði einnig menning-
arlega sögu árið 2002, Flateyjargátu
þar sem annað handrit lék lykilhlut-
verk, nefnilega Flateyjarbók.
Konungsbók sver sig nokkuð í ætt
við Da Vinci-lykilinn sem er ein vin-
sælasta menningarlega glæpasaga síð-
ari ára. Prófessorinn og Valdemar
ferðast um alla Evrópu til að leysa ráð-
gátuna. Arnaldur hefur unnið heima-
vinnuna sína eins og hans er vandi og
leikur sér með eitt mesta leyndarmál
handritafræðanna, svokallaða eyðu í
Konungsbók, en í handritið vantar
nokkur blöð sem enginn veit hvar
lentu. Þá dregur Arnaldur upp skýra
mynd af Evrópu rétt eftir stríð. Lýs-
ingar á nöturlegri Berlín eftirstríðs-
áranna eru með því besta í bókinni.
Hins vegar kann að orka tvímælis að
draga sögulegar persónur inn í at-
burðarásina og má þar nefna Halldór
Laxness sem flækist inn í söguna þeg-
ar hann fær nóbelsverðlaunin — þó að
sjá megi ákveðna samsvörun með því
þegar Halldór kom heim með verð-
launin og þegar handritin komu heim
16 árum síðar. Helsti galli sögunnar er
líklegast sögumaðurinn Valdemar.
Hann er fullur áhuga en nokkuð ragur
í fyrstu að ráðast í ævintýri með pró-
fessornum.
Persónusköpunin nær hins vegar
aldrei mikið lengra. Nokkru ljósi er
varpað á bernsku Valdemars og sam-
skipti hans við móður sína en ekki er
nóg sagt til að lesandi fái skýra mynd
af þessum stúdent. Bókaormurinn
Valdemar verður þannig hálflitlaus og
hrifning hans á íslenskum fræðum
virðist til að mynda einkum felast í því
að hann langar í góða og rólega inni-
vinnu.
Prófessorinn sjálfur er að hluta til
stöðluð manngerð, fræðimaður heltek-
inn af viðfangsefni sínu, drykkfelldur
með hárið út í loftið og minnir stund-
um á pabba Indiana Jones eða tímavé-
laprófessorinn í myndaflokknum Aftur
til framtíðar. Eftir því sem líður á sög-
una öðlast persóna prófessorsins hins
vegar meiri dýpt og lesendur fá meira
að vita um fortíðina sem bjó til þennan
mann, harma hans og sorgir. Þannig
kemst á samband milli lesanda og pró-
fessorsins og þess sem rekur hann
áfram í lífinu.
Sagan sjálf er spennusaga sem
byggist á eltingarleiknum, leit að lausn
sem er háð í kappi við óprúttna
náunga sem svífast einskis. Sem slík
er hún prýðilega spennandi. Það eru
engin ný sannindi að Arnaldur hefur
góð tök á frásagnartækni, hins vegar
hefði mátt vanda persónusköpun bet-
ur, sérstaklega persónu Valdemars.
En lesturinn er góð skemmtun og það
eru spennandi tímar framundan ef ís-
lenskir glæpasagnahöfundar halda
áfram að vinna úr menningararfinum
með þessum hætti.
Á höttunum
eftir handriti
BÆKUR
Skáldsaga
Eftir Arnald Indriðason,
Mál og menning, 2006. 363 s.
Konungsbók
Katrín Jakobsdóttir
Arnaldur
Indriðason
ekki er stofublóm
heldur einær
runni sem vex
best utanhúss.
Halldóri er illa
við sýprusinn því
hann er eitraður,
en hann laðast þó
að plöntunni og
smám saman fer
líf hans að snúast
um hana. Sam-
band parsins er nokkuð óljóst. Þau
eru ekki viss um hvort þau hafi kysst
eða sofið saman. Halldór er í laumi
Í SÖGUNNI Eitur fyrir byrjendur
hitta lesendur sambýlisfólkið Dísu
og Halldór. Hún er heimspekinemi
sem misst hefur unga dóttur í bíl-
slysi, hann er auðnuleysingi sem
varla fer út úr húsi. Dísa hefur ný-
lega keypt jurt sem þrífst illa enda
er um að ræða sumarsýprus sem
hrifinn af Dísu sem á í ástarsam-
bandi við karlmannlega kynja-
fræðinemann Högna.
Eitur fyrir byrjendur er býsna
kænlega byggð. Ýmist er sjón-
arhornið Halldórs eða alviturs sögu-
manns, sem mér fannst þó á köflum
að gæti allt eins líka verið Halldór.
Stundum minnti verkið mig á bækur
Braga Ólafssonar. Líkt og margar
persónur í bókum Braga lendir Hall-
dór í vandræðalegum aðstæðum,
hann læsist til dæmis inni á eigin
heimili og á í kjánalegum sam-
skiptum við póstinn í gegnum bréfa-
lúguna. Dauðinn er Halldóri hug-
leikinn. Hann sekkur sér í ritið
Launráð og lævís brugg í fimm þús-
und ár og les um menn á borð við
Jack Kevorkian sem framdi umdeild
líknarmorð og yngri bróður Krist-
ófers Kólumbusar, illmennið Bar-
tolómeus landstjóra í Panama, sem
eitraði fyrir fólki. En þrátt fyrir al-
varlegan tón leynist undir niðri
ísmeygilegur húmor. Fræga fólkið
er á ferð í Reykjavík, í spaugilegri
senu rekst Halldór á mæðgurnar
Elettru og Isabellu Rossellini á
Mokka og nafngreind bráðavakt-
arstjarna þvælist að sögn á bör-
unum. Þá má í bókinni lesa fyndna
flökkusögu um konu sem selur kross
með Jesú sem kross með kalli. Þessa
sömu sögu sagði Pétur Gunnarsson í
Efstu dögum sem kom út árið 1994,
líklega er það þess vegna sem mér
finnst hún hálfankannaleg í Eitri
fyrir byrjendur.
Eftir drykkju seyðis af sýprus-
inum finnst Halldóri hann breytast í
ósýnilegan múmínálf. Sennilega
langar hann mest að vera þybbinn
múmínálfur sem lifir við umhyggju í
öruggu skjóli. Bókin er grípandi og
endalokin óvænt og ekki endilega
augljós. En úr hefði orðið betra verk
ef meira hefði verið nostrað við það.
Það er galli að sögupersónur eru
dregnar nokkuð óljósum dráttum,
ég hefði þegið að dvelja lengur með
þeim og kynnast þeim betur.
Eitur fyrir byrjendur er ekki stór
bók en hún fjallar um mikilvæga at-
burði. Sagan býður upp á áhuga-
verðar vangaveltur um sambönd og
sektarkennd og áhrif fortíðar á nú-
tíð. Framan á fallegri bókarkápu sit-
ur múmínmaður og nartar í plöntu.
Ég vona að myndin veki forvitni því
Eitur fyrir byrjendur er athygl-
isverð skáldsaga.
Maður eða múmínálfur?
BÆKUR
Skáldsaga
Eftir Eirík Örn Norðdahl 139 bls. Nýhil
2006.
EITUR FYRIR BYRJENDUR
Þórdís Gísladóttir
Eiríkur Örn
Norðdal
Fylgist með umfjöllun um
þessa bók í helgarútgáfunni
á Rás 2, nú á
laugardaginn kl. 11.00
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
Helgar
tilboð
3.283,-
"Besta íslenska skáldaga sem ég hef lesið lengi."
Kolbrún Bergþórsdóttir, Blaðið