Morgunblaðið - 16.11.2006, Síða 24
|fimmtudagur|16. 11. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Ungar íslenskar konur fóru í all-
sérstæða ferð til New York á
dögunum því á dagskránni var
63 km styrktarganga. » 26
ferðalög
Fjöldi landsbyggðarfólks getur
ekki nýtt sér tilboð netþjón-
ustufyrirtækja um hröðustu
gagnaflutningana. » 31
neytendur
Ólafur Guðsteinn Kristjánsson
og Edda Jóhannesdóttir hafa
búið í Berlín í rúmt ár og kaupa
yfirleitt í matinn í Plus. » 28
daglegt
Umhverfisvæn innkaup eru öfl-
ugt meðal í baráttunni gegn
gróðurhúsaáhrifum, en hvernig
eru vörurnar merktar? » 30
vistvænt
Berlín geymir mikinn fjölda keb-
ab-staða enda er aðalrétturinn
þar, döner kebab vinsælasti
skyndibitinn í Þýskalandi. » 28
matur
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Vertu bara „casual“,“ heyristoft sagt þegar einhver spyrhvernig fötum skuli klæð-ast við ákveðið tækifæri.
Flestir hafa tilfinningu fyrir því hvað
„casual“ merkir – það að vera ekki of
fínn – en erfitt getur verið að finna ís-
lenskt orð sem nær yfir það. „Ca-
sual“ er eitt af þeim tíu ensku orðum
sem Námsgagnastofnun hvetur
landsmenn nú til að finna íslenskt orð
yfir, í tilefni af degi íslenskrar tungu.
Hin orðin eru: „crossover“, „date“,
„fusion“, „nick“, „outlet“, „skate“,
„surf“, „trendsetter“ og „wannabe“.
En hvernig verða ný íslensk orð til
og hvaðan koma tillögurnar?
Ágústa Þorbergsdóttir hjá Mál-
stöðinni segir að íslenska tungan sé
mjög frjó og auðvelt að búa til íslensk
nýyrði. „Það eru ekki alltaf einhverjir
sérfræðingar sem búa til ný orð,
þetta er mjög oft sjálfsprottið úti í
þjóðfélaginu, eins og til dæmis orðið
harðkornadekk. Foreldrarölt er líka
gott dæmi um orð sem ekki er búið til
af ákveðinni nefnd sem kemur saman
gagngert til að smíða ný orð. Flest
nýyrði eru samsett úr íslenskum
efnivið, færri nýyrði eru komin til
eins og sími og þota, en sími er mynd-
að af gömlu hvorugkynsorði, síma
sem merkir þráður og þota. sem áður
merkti vindhviða, merkir nú líka
ákveðna gerð flugvéla og sleða úr
plasti. Mörg orð eru líka tökuorð,
eins og til dæmis bíll og skáti, sem
eru mjög vel heppnuð tökuorð því
þau aðlagast vel. Ný orð þurfa að
falla inn í íslenskt beygingakerfi og
að almennri stafsetningu og fram-
burði.“
Gepill, gjammsi eða hvutti?
Ágústa segir að talsverður fjöldi
berist af nýyrðatillögum sem ekki
festist í málinu. „Þegar eitthvað nýtt
fyrirbæri kemur í samfélagið eru
miklar vangaveltur um hvaða nafn
skuli gefa því, eins og til dæmis þegar
farsímar komu til sögunnar hér á
landi. Þá hefur almenningur mikinn
áhuga, en ekki aðeins orðanefnd-
irnar. Hingað hringdu mjög margir
og við skráðum um tuttugu tillögur
og ein af þeim var orðið gepill. Aðrar
tillögur sem ég get nefnt eru korta-
sími, kortafarsími, handsími, hvutti,
gaspri, örsími, netsími, fjarsími,
geisli, heimssími, gripsími, fissími,
gemsi, tifsími, smásími, geimsími,
rápsími, gjammsi og vasasími. Eins
man ég eftir orðunum júgurð, mylkja
og skyrja fyrir jógúrt, en þau náðu
ekki hljómgrunni.“
Ágústa segir að öflugt íðorðastarf
sé stundað þar sem orðanefndir komi
saman og smíði fræðileg orð. „Fólk
vill geta talað um sitt fag á íslensku
enda er það hluti af okkar málstefnu
að geta talað á íslensku um allt. Þjóð-
félagið breytist líka og orðin sem Eg-
ill Skallagrímsson notaði, þau nægja
ekki í dag, til dæmis þegar nefna þarf
eitthvað nýtt fyrirbæri sem er fyrir
augum okkar alla daga. Við erum
með dæmi um fjölmörg ný orð sem
hafa sannað sig í málinu, orð eins og
flatskjár, skjávarpi, skanni, hring-
itónn, tölvupóstur, einhverfur, felli-
hýsi, fjölpóstur, niðurhal, netverslun,
sprotafyrirtæki og vistvænn. Þessi
orð voru kannski fyrst framandi en
þau venjast mjög fljótt.“
Ágústa segir Íslendinga mjög
áhugasama um tunguna, þeir vilji
ræða þessi mál og láta sig varða
hvaða ný orð eru tekin inn. Nú er því
tilvalið tækifæri til að virkja sköp-
unargleðina og ímyndunaraflið og
taka þátt í því að skapa ný orð yfir
þau tíu ensku hugtök sem sagt var
frá hér að ofan. Veitt verða þrenn
bókaverðlaun til höfunda bestu til-
lagnanna. Ekki er nauðsynlegt að
senda lausnir við öllum tíu verkefn-
unum. Eitt nýtt orð er gulls ígildi.
Hvernig er
„wannabe“
á íslensku?
Morgunblaðið/Ásdís
Ágústa Þorbergsdóttir Nýyrði eru
oft sjálfsprottin úti í þjóðfélaginu.
Söngkonan Madonna er meira en vel með á nótunum og leiðir oft
tískustrauma, hún hefur líka ósjaldan verið kölluð „trendsetter“.
Hótelerfingjann Paris Hilton mætti hins vegar í gegnum leit sína að
stjörnustaðli flokka sem „wannabe“ . Hvernig ætli orðin myndu
annars hljóma á íslensku?
Þota merkti áður vindhviða en stendur nú jafnframt fyrir plastsleða
og ákveðna gerð flugvéla.
Júgurð, mylkja og skyrja hljóma einkennilega þegar orðið jógúrt
hefur fest sig í sessi og sömuleiðis geimsími, gepill, rápsími eða
hvutti, en þessi orð voru meðal fjölmargra tillagna sem bárust um
nýyrði fyrir farsímann.
Tillögur skal senda á netfangið
jong@nams.is eða til Náms-
gagnastofnunnar, ekki síðar en
27. nóvember.
Mikil neysla á rauðu kjöti getur aukið til
muna áhættu kvenna á að fá brjósta-
krabbamein, að því er ný rannsókn staðfestir
og greint var frá í netmiðli BBC nýlega.
Rannsóknin, sem gerð var við Harvard-
læknaháskólann í Boston, náði til 90 þúsund
kvenna, sem ekki höfðu haft tíðahvörf. Þær
voru látnar fylla út spurningalista um neyslu-
venjur sínar með nokkurra ára millibili, fyrst
árið 1991, síðan árið 1995 og loks árið 1999. Á
tveggja ára fresti var svo kannað hvort kon-
urnar höfðu greinst með brjóstakrabba eða
ekki. Í lok rannsóknarinnar hafði alls 1.021
kona fengið brjóstakrabba. Þær konur, sem
borðuðu að staðaldri einn og hálfan skammt
af rauðu kjöti á dag voru tvöfalt líklegri til að
fá brjóstakrabba en þær konur, sem borðuðu
aðeins þrjá til fjóra skammta á viku. Sérfræð-
ingar benda á að rautt kjöt innihaldi í mörg-
um tilfellum vaxtarhormóna, sem séu þó al-
gengari í Bandaríkjunum en í
Evrópulöndum, auk þess sem krabbameins-
valdandi efni geti borist í kjötið við suðu og
meðhöndlun.
Rautt kjöt ýtir
undir brjóstakrabba
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rautt kjöt Virðist ekki vera gott fyrir konur í of miklu magni.