Morgunblaðið - 16.11.2006, Qupperneq 25
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 25
*g
ild
ir
á
m
eð
an
b
ir
gð
ir
e
nd
as
t.
F
le
ir
i g
er
ði
r
ka
up
au
ka
í
bo
ði
.
LANCÔME KYNNING Í HYGEU KRINGLU OG
SMÁRALIND FIMMTUDAG, FÖSTU DAG OG
LAUGARDAG
Líttu við og kynntu þér spennandi nýjungar:
RÉNERGIE DUO CONCEALER er fyrsti hyljarinn sem vinnur
einnig gegn öldrun húðarinnar.
NUTRIX ROYALE nærandi krem sem inniheldur
drottningarhunang. Hugsaðu vel um húðina núna þegar kuldinn
herjar á hana.
COLOR FEVER varalitirnir eru fáanlegir í fjölda fallegra lita sem
endast og þekja vel.
LE GIFT -glæsilegur kaupauki fylgir þegar keyptar eru tvær
vörur frá Lancôme*.
Kringlan: sími 533 4533
Smáralind: 554 3960
Við mælum með:
Advanced Night Repair Concentrate
Recovery Boosting Treatment
Strax í kvöld getur húð þín byrjað að endurheimta æskuvirknina. Notaðu þessa framúrskar-
andi örvandi 3ja efna samsetningu* í þrjár vikur, 21 kvöld í röð. Þessi öfluga meðferð hjálp-
ar til að losa húð þína við uppsafnaðan skaða. Henni batnar og getur þá á ný einbeitt sér að
því að kljást við daglegt áreiti og umhverfisáhrif.
*Sótt hefur verið um einkaleyfi fyrir þessa efnasamsetningu í Bandaríkjunum og um allan heim.
GJAFA
TÍMI
Þetta er gjöfin þín
ef þú kaupir Estée Lauder vörur fyrir 3.900 eða meira.*
Allt sem þú þarfnast til að kynnast Estée Lauder
Háþróuð krem og litavara, Idealist undrakremið og Daywear
Plus dagkrem. Full stærð af Pure Color glossi, Rhubarb. Nýr
augnskuggi, Mocha Cup. Lash XL maskari. Að auki glæsileg
snyrtitaska
Allt þetta fyrir þig ef þú verslar Estée Lauder vörur fyrir 3.900
krónur eða meira á snyrtistofunni Lipurtá, Hafnarfirði, dagana
16.-22. nóvember.
*Meðan birgðir endast (Verðgildi gjafarinnar er um 8.400 kr.)
Lipurtá, Staðarbergi 2-4, 221 Hafnarfjörður, sími 565 3331
Fjárfestingabankinn nýi, Saga, sem
tekur til starfa á Akureyri í vor verð-
ur til húsa í Gamla barnaskólanum
við Hafnarstræti, á milli Samkomu-
hússins og skátaheimilisins
Hvamms eftir því sem heimildir
mínar herma Akureyrarbær átti
lengi Gamla barnaskólann en Eiður
Gunnlaugsson, athafnamaður í
Kjarnafæði, keypti það fyrir nokkru.
Eiður kvaðst þá ekki vita til hvers
hann myndi notað húsið en sagði þó
eitthvað á þá leið að þar yrði örugg-
lega ekki veitingahús. Má kannski
segja að þar verði fjárveitingahús?
Fullreynt í fjórða sinn, hugsar hún
nú og vonar konan sem ég sagði frá í
síðustu viku að hefði þrisvar lent í
hremmingum í beinu flugi frá Ak-
ureyri til Kaupmannahafnar. Hún
fór utan á sunnudaginn var – en ekki
fyrr en nokkrum klukkutímum of
seint. Þegar farþegar höfðu sest út í
vél fór bara annar hreyfillinn í gang
og kalla þurfti til viðgerðarmann að
sunnan. Óheppnin eltir hana bless-
aða, en vonandi verða allar aðstæður
til flugs á Akureyri í lagi næstu
klukkustundir. Hún á nefnilega að
koma heim í dag.
Óskar Pétursson syngur lög Gunn-
ars Þórðarsonar hér og þar þessa
dagana, enda nýbúinn að gefa út
plötu með þeim fallegu lögum. Norð-
anmenn eru hrifnir af Óskari sem
fyrr og nánast er uppselt á þrenna
tónleika sem hann heldur í Akureyr-
arkirkju um helgina.
Dagur íslenskrar tungu er í dag,
fæðingardagur Jónasar Hallgríms-
sonar og margt á döfinni af því til-
efni. Finnur Friðriksson aðjúnkt
flytur t.d. erindi sem vekur athygli
og nefnist Slettur, slangur og staða
íslensks hversdagsmáls. Finnur hef-
ur upp raust sína kl. 16.15 í stofu 14 í
húsi háskólans við Þingvallastræti.
Handboltaáhugamenn á Akureyri
sátu margir sveittir af spenningi fyr-
ir framan tölvu á sunnudaginn var.
Þá stóð yfir leikur Stjörnunnar og
Akureyrar í Garðabæ og bein lýsing
var á heimasíðu Akureyrarliðsins,
www.akureyri-hand.is eins og venju-
lega. Sérstakur gluggi á heimasíð-
unni uppfærist sjálfkrafa á 15 sek-
úndna fresti og ég stenst ekki mátið
að gefa lesendum innsýn í dramatík-
ina á lokamínútunni, frá því að Gor-
an Gusic jafnar fyrir Akureyri þegar
48 sekúndur lifa af leiknum.
59:12 22-22 Goran skorar.
59:31 Stjarnan tekur leikhlé.
59:45 Aigars [Lazdins Akureyr-
ingur] vinnur boltann.
59:53 Andri klikkaði í horninu en
Akureyri heldur boltanum.
59:56 Akureyri eru 6 á móti 4.
En Hörður [Akureyringur] fær
einnig 2 mín [brottvísun].
Akureyri hlýtur að skora .
Hreiðar [markvörður Akureyrar]
fer í sóknina.
Tíminn fer í gang .
60:00 Aigars fiskar víti.
60:00 Það er víti og búið, Goran
tekur það.
22-23 Goran skorar .
Akureyri sigrar í frábærum leik!
Eftir að hafa verið 14-9 undir í
hálfleik nær Akureyri að sigra stór-
glæsilega 22-23.
Umræður um Herra Kolbert verða í
kvöld í Samkomuhúsinu eftir sýn-
ingu Leikfélags Akureyrar á verk-
inu, en þeim var frestað um síðustu
helgi vegna veðurs. Sýningin hefur
fengið afbragðs dóma og aðstand-
endur hennar, með leikstjórann Jón
Pál Eyjólfsson í broddi fylkingar,
taka þátt í umræðunum og sitja fyrir
svörum. Allir eru velkomnir og þeim
sem ekki verða á sýningunni er bent
á að mæta um kl. 21.40.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður
opnað almenningi klukkan tíu næsta
laugardagsmorgun, skv. því sem til-
kynnt var í gær. Flestar lyftur verða
í gangi og skíðagöngusvæðið opið.
Snjókoma síðustu daga hefur gert
það að verkum að töluverður snjór
er kominn í brekkurnar og mun
meiri en sést hefur á sama árstíma
nokkur undanfarin ár.
Nemendur Menntaskólans, Verk-
menntaskólans og Háskólans á Ak-
ureyri hafa boðað til opins fundar í
Kvosinni í MA á morgun kl. 15. Þá er
Alþjóðlegur dagur nemenda og hafa
nemendur skólanna þriggja samein-
ast um að helga daginn nú málefninu
Staða nemenda í íslensku samfélagi.
Að sögn aðstandenda fundarins staf-
ar valið á umræðuefninu meðal ann-
ars af þeirri óvissu sem þeir segjast
sjá í stöðu nemenda í framhalds- og
háskólum um þessar mundir.
Glæsileg viðbygging dvalarheimilis-
ins Hlíðar var vígð á dögunum.
Villa slæddist í frétt frá athöfninni
þar sem sagði að Jón Kristjánsson
hefði tekið fyrstu skóflustunguna.
Rétt er að hann var viðstaddur og
skrifaði sem ráðherra undir samning
um bygginguna en það voru tveir
íbúar Hlíðar, Irene Gook og Alfreð
Jónsson, sem tóku fyrstu skóflu-
stunguna. Það leiðréttist hér með.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gamall Nýtt fyrirtæki, Saga, verð-
ur rekið í þessu fallega húsi.
Skapti Hallgrímsson
Rúnar Kristjánsson yrkir vegnaprófkjörs Samfylkingarinnar
á Suðurlandi:
Enn í mála röngu róti
ráðast mannréttindaslys.
Á framboðslistum kynjakvóti
klár er nauðgun lýðræðis!
Og Rúnar yrkir ennfremur:
Þjóðin átti þegnrétt traustan
þessu landi í.
En feigðarverkið fyrir austan
fer að breyta því.
Landvættirnar gegn þeim ganga
er græðgin hefur villt.
Hrokans stíflu hefndin stranga
hiklaust getur bylt!
Vísa var rangfeðruð í þættinum
sem birtist laugardaginn 7. október
og hófst á „Vinnan mín í verði er
lág“. Hún er eftir Björn Pétursson
frá Sléttu. Fjölmargar vísur eftir
Björn eru á vísnavef Skagfirðinga.
Eitt sinn orti hann til konu Tryggva
í Lónkoti, en Tryggvi bruggaði
landa. Hún færðist undan að
afhenda honum landann, en Björn
hafði verið nokkra daga í Lónkoti
við heyskap. Björn orti:
Brúkaðu ekkert bölvað mas.
Bágt er þig að laga.
Mér er frjálst að fá í glas
fyrir þessa daga.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Prófkjör og mas